Mímir - 01.05.1984, Page 19

Mímir - 01.05.1984, Page 19
eilífðin hafði hirt þá eins og hverja aðra dána hljóma. Svipur hennar lýsti ekki framar af fjálg- um þrám og órættum draumum. Augu hennar vóru eins og silfrað flos eða brotið blý. — Hún var kona há og faunguleg, líkamsformin ávöl og mjúk, svo að hver smæsta hreyfíng líkamans varð að formfögrum leik og kom því betur í Ijós, sem klæði hennar vóru nærskornari. Hvelfdur barmurinn og hinar mjúku lendar, þrýstnar og sterkar, töluðu án afláts í heillandi þokka sínum um ofurfyllíng kvenlegrar frjósemi. (bls. 380) Sögumaður lætur ekkert tækifæri ónotað til að minna á og draga fram kvenlegan vöxt hennar og fegurð. Allt útlit hennar á að bera vott um frjósemi og líf. Hún er nú orðin sú kventýpa í verkum Halldórs Laxness, sem Sveinn Skorri Höskuldsson kallar „kynósa" konur.8 Þegar Steinn Elliði hefur játað henni ást sína á sinn sérkennilega hátt, fer hún til hans um nótt. Lýsingin á henni þá er mjög athyglisverð, hvergi kemur betur fram það viðhorf að konan sé dulmögnuð og nátengd hinum óskiljanlegu frumöflum náttúrunnar: Hún staðnæmist í dyrunum og sleppir enn ekki hendinni af hurðarhúninum, en heldur áfram að stara. Viðjar skynseminnar eru brotnar, blindur náttúrukrafturinn birtist í þessum næturaugum ... Persónuleikur hennar er gufað- ur út í tómið, þángað sem öll form gufa, hún er ekki leingur manneskja, en vitrast hér sem lík- amníng nafnlausra ragna í mynd hinnar fyrstu og hinstu lífveru, blindrar, hugsunarlausrar og skelfílegrar. (bls. 433) í áttundu bók gerist allt mjög hratt og lýsingar eru æði snubbóttar. Þeir hörmulegu atburðir sem gerast í lífi Diljár koma fram í bréfi frá henni sjálfri til Steins. Hún hafði farið til eigin- manns síns, játað framhjáhaldið, hann framið sjálfsmorð, hún síðan misst fóstrið sem Steinn hafði gert henni og síðast en ekki síst, fallið í ónáð Ylfingamóður og þar hrundi síðasta stoð- in. Hún á nú enga von aðra en þá að Steinn taki 8. Sveinn Skorri Höskuldsson: „í leit að kvenmynd eilífðar- innar", Skirnir, 1972. hana að sér. Hún fer því suður til Rómar og er sagt frá því á þennan hátt: Rómaborg í allri helgi sinni hefur furðu Iítið að- dráttarafl fyrir únga, vansvefta konu, sem ferð- ast hefur dagfari og náttfari í þrjá sólarhrínga til þess að heimta elskhuga sinn úr tröllahöndum. (bls. 486) Hér fer ekki milli mála, að sá sem segir söguna, lítur á málin með augum Diljár að þessu sinni. Frá sjónarmiði Steins var hún komin til að reyna að vekja „dýrið í manninum“, komin til að „gánga í lið með þeim hluta veru minnar, sem Drottinn býður mér að sigrast á vegna ríkis himnanna“ (bls. 486). Þetta er sjónarmið Steins, ekki sögumanns. í fyrri hluta bókarinnar er Diljá fyrst og fremst lýst sem hinni hreinu mey, ímynd sak- leysis og hreinleika. Henni er bæði lýst utan frá og séð inn í huga hennar. Þegar henni er lýst utan frá, er jafnan lögð áhersla á kvenlegan þokka hennar og tengir sögumaður slíkan þokka aldrei við synd og saurlífi, heldur við líf og frjósemi. í lýsingunni á henni er að finna tvær alda- gamlar týpur bókmenntanna, Maríuna, sak- lausa og hreina, og kynveruna hoidlegu. Hinu kynferðislega í fari hennar er hins vegar Iýst á jákvæðan hátt, ólíkt viðhorfi Steins, og minnir á náin tengsl hennar við náttúruna og uppruna lífsins. Aberandi munur á henni og Steini Elliða er að hún reynir aldrei að vera annað en hún er, hún er bara hún sjálf. Steinn Elliði er orðsins maður, hann er annaðhvort sítalandi eða sí- skrifandi. Diljá er aftur á móti ekki sú sem talar, heldur sú sem er. Þetta kemur m.a. fram þegar sögumaður talar um að hún hafi verið „fákunn- andi í orðsins list, en fjálgur harmurinn og hin ángráða blíða vóru orðum máttugri í svip henn- ar“ (bls. 57). Sjálf segir hún: „Orðin segja aldrei hjarta manns. . . Mig lángar að tala alt öðru máli en því sem orðin ná yfir“ (bls. 67). Fyrst og síðast er í lýsingu Diljár minnt á að hún er manneskja. „Augun í þessu mannsbarni vóru heit af þjáningu“ (bls. 59) segir snemma í 19

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.