Mímir - 01.05.1984, Side 21
í klaustur. Það sérkennilega við öll sjónarmið
Steins — því hann hrekst milli margra og mis-
munandi viðhorfa — er að skírlífi er í öllum til-
fellum nauðsynlegt. Það er nauðsynlegt, hvort
sem hann ætlar að þjóna sjálfum sér, Guði eða
mönnum. Reyndar er síðastnefnda viðhorfið,
þjónustan við mennina eiginlega óljósasta hug-
mynd Steins. Af bréfum hans til munksins er
helst að skilja þá hugmynd svo að hann ætli að
verða „hin skírlífa hetja fólksins“ sem bægir
óvinum mannkynsins frá því.
Það segir sig eiginlega sjálft, að karlmaður
sem dýrkar skírlífi og fyrirlítur kynlíf, hlýtur að
hafa mjög neikvæða afstöðu til kvenna. Konur
höfða kynferðislega til hans, vekja hjá honum
löngun til hins „illa“, frá náttúrunnar hendi eru
konur hættulegasti andstæðingur heilbrigðs
karlmanns sem keppir eftir skírlífi. Strax í upp-
hafi sögunnar lýsir Steinn Elliði fyrir Diljá
viðbjóði sínum á öllu hennar kyni. Hún bregst
ókvæða við: „Líkt og konan hafi ekki sál alveg
eins og karlmennirnir, dóninn þinn.“ (bls. 39).
Steinn Elliði játar því að vísu, en bendir jafn-
framt á, að karlmanni standi nákvæmlega á
sama um það, hann líti aldrei á konu nema með
eitt í huga. Afstaða Steins er orðin mótaðri og
magnaðri í þriðju bók. Oft hefur verið vitnað í
þessi orð hans: „Ég uppgötvaði snemma að
konan höfðaði einúngis til hins illa í veru
minni“ (bls 171). Þarna kemur líka fram, að
Steini Elliða hafði einu sinni fundist konan
ákaflega dularfull og heillandi: „Ég leit konuna
svipuðum augum og biblíuna eða huldufólks-
sögurnar og titraði frammi fyrir þessum leynd-
ardómi; konan með öllu hinu dularfulla í fari
sínu og háttum varð draumalandið mitt.“ (bls.
172). En afstaða hans breyttist, þegar hann
„skygndist inn í fylgsni mannlegrar náttúru",
m.ö.o. þegar hann sannfærðist um þá lífsskoð-
un, sem þegar hefur verið lýst.
Fegurð konunnar var ekki leingur yfirnáttúru-
legur hulduljómi, heldur hið ytra skin ástríðulífs
hennar: því fegurri, því syndugri. Þokki hennar
stendur í jöfnu hlutfalli við vergirni hennar. (bls.
172)
Það er ljóst, að trúarbrögð Steins og þráin eftir
fullkomnun er eingöngu ætluð karlmönnum.
„Konan er nefnilega hvorki meira né minna en
hættulegasti meðbiðill Guðs og keppinautur,
þar sem sál mannsins er í tafli. Það eru tvö reg-
inöfl innan vorrar jarðnesku tilveru sem heya
reipdrátt unt sál mannsins; Annars vegar er
hinn svokallaði Guð, takmark hinnar andlegu
þrár mannsins hins vegar er hold konunnar"
(bls. 175). í klaustrinu á Steinn við tíðar freist-
ingar að stríða. Við messugjörðina fann hann
„kvennaþefinn leggja um alla kirkjuna“ (bls.
355) og honum finnst konur utan klaustursins
leggja snörur sínar fyrir hann.
í byrjun sögunnar hafnar Steinn hjónaband-
inu á þeirri forsendu, að „fullkominn maður
giftist ekki öðru en hugsjón sinni“ (bls. 38) þ.e.
konan er karlmanninum hindrun á Ieið hans til
andlegra afreka, enginn getur verið fulllkominn
nema skírlífur karlmaður. Seinna þegar hann er
orðinn eldri og vangaveltur hans orðnar flókn-
ari og meiri, ber hjónabandið aftur á góma. Nú
skoðar hann hjónabandið frá þjóðfélagsiegu
sjónarmiði: „Kveneignin er grundvöllur alls
eignarhalds“ (bls. 181). Og hann fordæmir
þjóðfélagið, sem úthrópar þann mann, sem
„hvetur konuna til að hefja kvenleik sinn til
æðra aðals“ og „krefst þess að konan sé eitthvað
annað og meira en kynferðisvera og barneigna-
vél“ (bls. 180—181). Hann hafnar algjörlega
platónskri ást milli karls og konu: „Það kann að
vera mögulegt að elska símastaura á platónska
vísu, — konu aldrei. Maðurinn elskar og mun
elska konuna vegna sköpulags hennar. . . “
(bls. 179). Steinn hafnar hjónabandinu líka
vegna þess að hlutverk konunnar í þeirri stofn-
un sé í raun hlutverk skækjunnar. „skækjan, —
það er konan; konan — það er skækjan. Aðra
kaupi ég til samneytis við mig æfilángt — hina
kaupi ég til samneytis við mig eina nótt. .. “
(bls. 184). Steinn Elliði er hér sem oftar kominn
í mótsögn við sjálfan sig. Annars vegar er hann
sannfærður um að konan geti aldrei verið neitt
nema kyntákn í augum karlmanns. Hins vegar
gerir hann þá kröfu til kvenna, að þær séu eitt-
hvað annað og meira, að þær láti ekki kúga sig
21