Mímir - 01.05.1984, Page 25

Mímir - 01.05.1984, Page 25
Steins, þ.e. að konan keppi ekki eftir því sem er æðra, hinu andlega og óforgengilega? Að vissu leyti ýtir lýsingin á Diljá undir þessa kenningu. Hins vegar er greinilegt að ástin er það afl sem ræður í Iífi hennar frá upphafi til enda. Ást hennar til Steins er skilyrðislaus og óbreytanleg. Hún trúir á ástina, að hún sé heilög og hrein, sterkari en allt annað og geti meira að segja af- máð verstu syndir. Diljá setur skoðanir sínar hvergi fram í löngu, samfelldu máli. Það gerir Jófríður hins vegar í bréfum sínum. Hennar viðhorf er þetta: Ástin er hið eina sanna líf. Ástin er lífið, ekki hitt. Ástin er veruleikinn, en ekki hitt. Alt er Iýgi nema ástin. Án ástar er alt ófyrirsynju og eingin huggun nemadauðinn. (bls. 119) Ástin er samkvæmt þessu viðhorfi það eina sem gefur lífinu gildi. Hún er óviðráðanlegt afl, sem tekur menn heljartökum svo þeir verða frávita og sjúkir, hún brýtur öll lögmái. Hún er svo dýrmæt að menn verða að kosta öllu til, skyld- um sínum, heiðri sínum, sálu sinni. Ástina er ekki að finna í hjónabandinu, ramma hins borgaralega þjóðfélags. Hún er sjaldnast fyrir hendi í því sambandi karls og konu sem bindur þau saman í fjölskyldu til að eiga böm og gera þjóðfélaginu gagn: En ekkert er fjær því en hjónabandið að geta satt þrár sannrar konu — Hjónabandið er skipbrot, þar sem æfíntýrafleyið er rekið upp í kletta — Ástin — það er ekki ríkulegt heimili með gleð- skap og gestaboðum né stór fjölskylda og bláeygð böm. Nei, þetta er ekki ástin, Diljá mín. Alt jDetta er hégóminn. (bls. 96—99) Nátengd þessari hugmynd um ástina er hug- myndin um móðurástina. Jófríður segir: „En með fæðíngu Steins rann upp ný sól í lífi mínu. Tilfinníngar vöknuðu, sem mig hafði síst órað fyrir að leynst gætu í brjósti mér; ég gleymdi sjálfri mér í móðurgleðinni, endurfæddist.“ (bls. 101). Að vísu er vafamál hvaða mark sé takandi á Jófríði, sem er taugaveikluð og ófullnægð broddborgarafrú. Andstæðan milli hennar og Diljár er augljós þegar Diljá les þetta bréf. En Diljá er fyrr en varir komin í sömu stöðu og Jó- fríður, orðin óhamingjusöm forstjórafrú, sem aldrei hefur „lifað neinar sælustundir“ eins og hún segir sjálf (bls. 420). Þótt Diljá hrylli við orðum Jófríðar um ástina meðan hún er enn hálfgert bam, er það þó viðhorf Jófríðar senr hún aðhyllist sem fullorðin kona. Hér er sið- ferðileg hlið málsins ekki sett á oddinn, heldur hin tilfinningalega. Ástin er hafin yfir gott og illt, rétt og rangt. Diljá telur ástina eina þess megnuga að afmá allar syndir og afbrot: „Guð fyrirgefur mér, ef þú leyfir mér að elska þig. — Því ef þú elskar mig ekki, þá er eingin friðþæg- íng til fyrir syndir okkar innan endimarka til- verunnar.“ (bls. 484—485). Að mati Steins Ell- iða er ekki til nein ást sem er háleit og hrein, ást er bara fínt orð yfir hina syndsamlegu kynhvöt mannsins: „Svo bundin er ástin kynfærum mannsins, að vanaður maður kennir einskis, sem við hana á skylt — En ástir takmarkast af kynferði. Ástir eru óhefjanlegar yfir náttúr- una.“ (bls. 178-179). Fyrir Diljá er spurningin ekki hold eða andi, rétt eða rangt. Þær grundvallarandstæður sem hún þarf að gera upp á milli eru dauði og líf. Eins og fram hefur komið í lýsingu Diljár er mikil áhersla lögð á tengsl hennar við náttúr- una og þar með lífið sjálft. Meðan hún er enn bara hálfvaxin kemur móðurhugmyndin fram: Hún hnipraði að sér fæturna, svo að stríkkaði á klæðunum yfir mjöðmum hennar, og mýktin kom glögt í ljós á þekkum ávala ósnortinna jóm- frúlendanna ... hæf til að verða móðir heilla kynslóða ... (bls. 58) Áður hefur verið minnst á þann óróa og óánægju sem Diljá finnur fyrir þegar hún er orðin fullþroskuð stúlka og engum manni gefin. Þá er það augljóslega „lífið“ sem hún þráir: En bæri það við, að hún vaknaði á næturnar við óp lauslátra kvenna, sem létu drukkna karl- menn fylgja sér heim af brekánsballi, þá leið á laungu áður en hún gat sofnað aftur, því þessar tryltu raddir, sem rufu næturkyrðina, töluðu máli lífsins. Lífið var ekki skáldsagnalestur í mjúkum stóli. Og það var lángt, síðan hún vissi, 25

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.