Mímir - 01.05.1984, Page 29

Mímir - 01.05.1984, Page 29
En tvöfalda afstöðu til kvenna má einnig greina hjá sögumanni. Hinir hörðu fordómar Steins gagnvart konum koma að vísu ekki fram hjá honum. í lýsingu hans á Diljá er að finna bæði samúð og aðdáun. Hins vegar má lesa það út úr sögunni að konur eigi sér það eina tak- mark að verða ástkonur og mæður, þ.e. að full- nægja frumhvötum og skapa líf. Þær eiga engan þátt í eilífðarþrá karlmannsins, hjá þeim er ekki að finna vitsmunaleg viðhorf og leit að „æðri“ tilgangi. Þetta fer á engan hátt á milli mála í sögunni. Baráttan stendur hins vegar um það, hvort þessi tengsl konunnar við sköpun og líf eru góð eða af hinu illa. í báðum tilfellum eru konur gerðar ákaflega dularfullar og óraunveru- legar, eins og kom glögglega fram í lýsingunni á Diljá, þegar hún kom til Steins um nótt. Að þessu leyti er fróðlegt að bera kvenlýsing- una í Vefaranum saman við kvenpersónur í seinni verkum Halldórs Laxness. Það gerir Hallberg í bók sinni um Vefarann. Eftir saman- burð við Heimsljós, Sölku Völku, Islands- klukkuna og Atómstöðina segir hann: „Grund- vallarviðhorf þessa mikla æskuverks hefur ekki raskast, þótt mat hans á konunni sé orðið allt annað en fyrrum“.9 Þetta grundvallarviðhorf mun vera að líta á konur sem tákn jarðneskrar tilveru sem felur jafnframt í sér að konan er „í eðli sínu“ heiðin. Það má vissulega til sanns vegar færa að svipað viðhorf til kvenna sé að finna í síðari verkum Halldórs. Þrátt fyrir nýtt mat á konum, eru kvenpersónur hans alltaf dularfullar, stundum yfirnáttúrulegar. í Vefar- anum hvetur Steinn Elliði konur óbeint til að vera „eitthvað annað og meira en kynferðisvera og barneignavél" (bls. 180—181), en eins og margoft hefur komið fram, er það augljóslega hinsta markmið kvenna, skv. sögunni, að njóta ásta og ala börn. Eftir að Halldór snerist til sósí- alisma, gerðist hann hiklaus talsmaður kven- frelsis og var raunar orðinn það þegar árið 1925 með greininni Drengjakollurinn og íslenska konan sem birtist í Morgunblaðinu 9. ágúst. Kvenfrelsisviðhorf hans kemur skýrast fram í persónu Sölku Völku og Uglu. Þær vilja vera menn, manneskjur og reyna að brjótast út úr hinu hefðbundna kvenhlutverki. En um leið er þeim, eins og öðrum kvenpersónum Laxness, lýst sem miklum kynverum, í órjúfanlegu sam- bandi við móður jörð. Ýmsar kvenpersónur Laxness eru „heiðnar“ í þeim skilningi að þær eiga rætur langt aftur fyrir siðmenninguna, eru nátengdar hinum óskiljanlegu, óviðráðanlegu frumöflum náttúrunnar. Hvergi kemur þetta betur fram en í persónugerð Úu í Krislnihaldi undir Jökli. Hún er dulmögnuð og yfirnáttúru- leg. Hún er lífið sjálft. Vefarinn mikli frá Kasmír er saga mikilla átaka. Og það er vissulega óljóst hvernig þess- um átökum lyktar, eins og Hallberg segir: Það er auðsætt að þessi innri barátta Steins milli guðs og heimsins, sem tveggja ósættanlegra afla, er svo tvísýn, að hverja stund liggur við ósigri guðs, þótt Steinn leggist sjálfur með öllu afli á þá sveifína.10 En barátta þessi fer ekki bara fram innra með Steini Elliða, hún á sér stað í sjálfri framvindu sögunnar. Og þótt það sé Iátið heita svo, að munklífshugsjónin sigri í lífi Steins, eru átökin í sögunni aldrei leidd til lykta. Hvorki lok sjö- undu bókar né áttundu bókar eru hin rökrétta lausn sögunnar. í Vefaranum er ekki um neina endanlega lausn flækjunnar að ræða. Höfundur kemst ekki að neinni niðurstöðu. Að vísu lýkur átökunum í lok sjöundu bókar, en ekki endan- lega. Höfundur er knúinn til að fullkomna hug- mynd Steins Elliða í verki, gera meinlætahug- sjón hans að lokaatburði sögunnar. En einnig þá er auðfundið að hitt viðhorfið er með í myndinni, „ástir vesallar skapaðrar konu“ eru honum enn hugstæðar. Hér er því ekki bara um að ræða tvö andstæð lífsviðhorf sem takast á, heldur er þeim haldið svo ákaft fram hvoru gegn öðru, að söguhöfundi tekst ekki sjálfum að gera upp á milli þeirra. Það hefur verið látið að því liggja að átökin væru milli tvenns konar viðhorfa til lífsins, tvíhyggju og einhyggju. Það 9. Peter Hallberg: Vefarínn mikli, II, 1954, bls. 102. I0. sami, bls. 100. 29

x

Mímir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.