Mímir - 01.05.1984, Síða 41

Mímir - 01.05.1984, Síða 41
Ef þgf.-brottfallið verkaði á eftir /-hljóðvarpinu kæmu fram orðmyndir með e og / í stofni en ekkert -i í endingu, þ.e. *flet, *kett, og þannig skapaðist ósamræmi vegna þess að í þessum orðum er ö í stofni ef og aðeins ef hvorki -i né -a eru í beygingarendingu. Það er því sennilegt að það sé þessu sérstæða sérhljóðasamræmi „að kenna“ að áðurnefnd níu orð enda í þgf. et. á -i þótt stofnar þeirra endi á einföldu samhljóði, þ.e. að þgf.-brottfallið verki ekki á þau vegna þess að það myndi raska þessu samræmi. í orð- um sem enda í stofni á samhljóðaklasa, eins og kötlur, Ieggst sérhljóðasamræmið (/-hljóðvarp- ið) á sveif með samhljóðaklasanum við að við- halda þgf.-endingunni.8 Þá eru eftir 98 sem hvorki eru brottfalls- né /-hljóðvarpsorð af þeim 198 sem enda í stofni á einföldu samhljóði en missa ekki þgf.-ending- una, þ.e. undantekningar frá þgf.-brottfallinu sem ekki er hægt að rekja til hljóðkerfis- eða hljóðbeygingarreglna. Þegar þessi orð eru borin saman við þau 192 orð sem eru endingarlaus, er ekki augljós neinn sá munur á stofngerð þeirra sem valdið gæti mismunandi hegðun þeirra gagnvart þgf.-brottfallinu, hvorki er varðar endahljóð stofnsins né stofnsérhljóðið. Þó er tvennt sem sker sig nokkuð úr hvað varðar þau orð sem ekki missa þgf.-endinguna: Annars vegar eru tvíkvæð orð sem mynduð eru með viðskeytunum að og uð eins og fatnað- ur og söfnuður, alls 30 orð hjá Valtý. Dæmi um þess konar orð eru: (17) getnaður, hagnaður, iðnaður, kostnaður, sparnaður, vefnaður, frömuður, könnuð- ur, mánuður, söknuður E.t.v. mætti hugsa sér þá skýringu á hegðun þessara orða að þgf.-brottfallið verkaði á ein- hvern hátt öðruvísi á tvíkvæð orð en einkvæð eða þá að það verkaði síður á orð sem enda í 8. Það sem sagt hefur verið hér að ofan á einnig við um orð með á og ó í stofni, t.d. þráöur og spónn, en þar kemur œ fyíir í stofni ef -;'er í endingu (sbr. dæmi (15)), annars á/ó. stofni á tannbergsmæltu önghljóði. Þessarskýr- ingar virðast ekki standast því að bæði eru til mörg tvíkvæð orð sem alltaf eru endingarlaus í þgf. et., t.d. bikar, vesír og urmull (Valtýr nefnir tæplega 40 slík orð), og einnig eru fjölmörg dæmi þess að orð sem enda í stofni á einföidu tannbergsmæltu önghljóði séu endingarlaus í þgf. et., t.d. kliður, sauður, snúður o.fl. Þar sem eðlileg skýring á hegðun orða eins og fatnaður og söfnuður er ekki sjáanleg verður að gera ráð fyrirað þau séu merkt í orðasafninu á þann hátt að þgf.-brottfallið verki ekki á þau. Vegna þess hve samstæða heild þessi orð mynda (öll tví- kvæð, mynduð með viðskeytunum að og uð) er ekki víst að merkja þurfi hvert orð fyrir sig heldur að geyma megi þessar upplýsingar með viðskeytunum í orðasafninu. Elins vegar eru það sémöfnin sem skera sig úr. Af þeim 98 orðum sem enda í stofni á ein- földu samhljóði og enda á -/ í þgf., en eru hvorki brottfalls- né /-hljóðvarpsorð, er 51 sérnafn (eða 25,8% af heildarfjöldanum 198 orðum). Hins vegar eru sémöfnin aðeins 19 (eða 10%) af þeim 192 orðum sem enda á einföldu samhljóði og missa þgf.-endinguna. Nú hegða sérnöfn sér oftlega öðruvísi en „venjuleg“ samnöfn, t.d. bæta þau ekki við sig ákveðnum greini og eru sjaldnast notuð í fleirtölu, en þessi óvenjulega hegðun þeirra stafar sennilega af merkingarleg- um orsökum. Það eru hins vegar einnig til dæmi þess að sémöfn hegði sér afbrigðilega gagnvart hljóðkerfis- og hljóðbeygingarreglum og verða nefnd hér tvö slík: í fyrsta lagi verkar áðurnefnd brottfallsregla mjög misjafnlega á sémöfn og kemur þar þrennt til greina: a) ekki brottfall og þgf.-/ fellur ekki brott: Gunnar+i b) ekki brottfall og þgf.-/ fellur brott: Hug- in+0, Munin+0 c) brottfall og þgf.-/ fellur ekki brott: Þrán+i, Baldr+i í öðru lagi bæta sum sémöfn ekki við sig end- ingu í nf. et„ t.d. Jón en ekki *Jónn, sbr fónn og 41

x

Mímir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mímir
https://timarit.is/publication/1937

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.