Mímir - 01.05.1984, Síða 62
STARFSANNÁLL MÍMIS
1982-1983
Eins og oft er um stjórnir setti kjörin stjórn
Mímis fyrirárið 1982 — 1983 sér ýmis fögurfyr-
irheit, er skyldu framkvæmast í stjórnartíð
hennar. En heldur varð hljótt og fátt um hin
fögru fyrirheit og lentu flest þeirra í glatkist-
unni. Skal ekki ijölyrt um ógerða hluti en tekið
til við að rekja þá gerðu.
Skemmtanahald var allt samkvæmt hefð.
Lögðu stjórnarmeðlimir sig mjög í líma við að
allar skemmtanir Mímis væru bundnar göml-
um hefðum, siðum og venjum. Allt skemmt-
anahald á vegum félagsins lenti á stjórninni, þar
sem upp kom mjög dularfullt mál. Skemmti-
nefnd sú er kosin var á aðalfundi félagsins
haustið ‘82 hvarf! Nefndu sumir þennan atþurð
„Dularfulla skemmtinefndarhvarfíð“. Að vísu
barst sú njósn að nefndin hefði misskilið hlut-
verk sitt og verið í því að skemmta sjálfri sér, í
stað þess að skipuieggja skemmtan annarra
Mímisliða.
Kraftakvöld var haldið um haustið og var að
nokkru helgað því að 175 ár voru liðin frá fæð-
ingu Jónasar Hallgrímssonar. Þórarinn Frið-
jónsson las ljóð og Grasaferð var flutt í leikgerð
Arnars Björnssonar og Erlings Sigtryggssonar.
Jólarannsóknaræfing var haldin með tilheyr-
andi látum. Kristinn Kristmundsson skóla-
meistari á Laugavatni flutti erindi kvöldsins:
„A,ð afla til búsins á vestfirsku. Hugleiðing út
frá Sturiungu.“
Þorrablót félagsins var haldið um miðja Góu.
Kom það lítt að sök nema fyrir þá, sem hafa
sérlegt dálæti á súrum og skemmdum mat, þar
sem ekki var þorramatur á borðum. Silja Aðal-
steinsdóttir var heiðursgestur kvöldsins.
Að vori var farið í ferð upp í Borgarfjörð.
Heilsað upp á Egil, Snorra og fleiri undir leið-
sögn Sveins Skorra Höskuldssonar. Eins og
alltaf í ferðum Mímis var „mikið gaman“,
sérlega þó, er rútunni var snúið til heimferðar.
Um haustið var flengst vestur í Dali á slóðir 4
Laxdælu. í þetta skiptið var fararstjóri Þórður
Hclgason. Minnast menn þess helst úr þessari
ferð að veður var heldur vont og að farkosti
Mímisliða varð skreipt á svellinu og lenti utan
vegar. Óhapp þetta kom þó ekki að sök og voru
menn hressir að vanda.
Tveir almennir félagsfundir voru haldnir um
veturinn. Annar um námið í íslensku þ.e. til-
högun 90 e. náms til B.A. prófs í íslensku. Hinn
fundurinn var um Ijármál Háskóla Isiands.
Voru þetta fámennir fundir.
Haustið 1983 ákvað stjórnin að halda kynn-
ingarfund í Stúdentakjallaranum fyrir I. árs
nema. Jafnframt voru nemar af öðrum árum
velkomnir. Varð þetta heldur fámennur fund-
ur. Þrír nemar á l. ári mættu, auk nokkurra af
öðrum árum.
Útgáfa á vegum Mímis var þessi heist: Síma-
skrá kom út í Iok nóvember. í tilefni 175 ára
fæðingarafmælis Jónasar Hallgrímssonar var t
gefin út smábæklingur. Um hann sáu Páll Vals-
son og Haukur Hannesson. Hallgrímur Helga-
son myndskreytti. Söngbók Mímis, Tumma
kukka, var endurprentuð. Mímir, blað stúdenta
í íslenskum fræðum kom út og var það nr. 30
(21. árg).
Eitt af hinum fögru fyrirheitum stjórnar, sem
komst að einhverju marki til framkvæmda, var
að birta fundargerðir stjórnar á auglýsingatöflu í
Á308. Átti það að vera liður í þeim áformum
stjórnar að ná til hins almenna nemanda, sem
gæti fylgst með störfum stjórnar með þessu
móti. Fékk hinn almenni nemandi nóg lesefni
þennan vetur, því stjóm Mímis var með ein-
dæmum fundaglöð.
Þegar stjórn ársins 1982—1983 leit yfir
„afrek“ sín þennan vetur, verður að játast að
hún sæmdi sjálfa sig ekki fálkaorðu fyrir
frammistöðuna. En ef litið er yfir annál þennan
er hann síst magrari en annálar undanfarinna
ára.
Að lokum má kannski geta nafna þeirra er ^
héldu um stjórnartaumana í Mími þetta ár:
Þorsteinn G. Indriðason formaður, Sigríður
Steinbjörnsdóttir gjaldkeri og Arnhildur Arn-
aldsdóttir ritari.
Arnhildur Arnaldsdóttir
62