Voröld - 01.11.1948, Side 13

Voröld - 01.11.1948, Side 13
listir Symfóniuhijómsveit'Reyjíjavlkur unöir stjórn ör. victors von Urbantschitsch. Beethoven og Bíbob Tónl'istarlíf , Reykjavíkur hefur verið auðugt undanfarin ár, -en tónlistarunnendur eru þó ekki fyllilega ánægðir enn. Þeir vilja aneira, ,og það, sem er efst á óskalista þeirra, er syjnfóníuhljómsyeit. I fyrra- vetur var komið á fót Sym- fóníuhljómsveit Reykjavíkur og 'hélt hún þrjó hljómleika, suuna endurtekna. I hljóm- sveitinni voru um 40 hljóð- færaieikarar, og var þetta al-, þjóðleg svæit, eins og venju- lega er í slíkum hljómsveitum, hvar sem þær eru. Auk Islend- inganna voru í henni Þjóð- verjar, Austurríkismenn, Dani, Breti og menn méð sænskt og fcínverskt blóð í æðum sínum. En tilraunin þótti takast vel, fólkið var á- nægt og vongott.- Hljómsveitin mun nú vænt- anleg'a hefja æfingar þessa V O R Ö L JD dagana, þrátt fyrir óteljandi erfiðleika, sem hún ó við að stríða. Þótt 'hér sé marg't á- gætra hljóðfæraleikara, vant- ar tilfinnaniega sum hljóð- færi, sem ómissandi eru í hljómsveitina, til dæmis blást- urshljóðlfærin. Ur þessu ræt- ist vonandi smátt og smátt, og er til dæmis von á þýzkum trompétleikara innan skamms, sém vonaiidi v>erður liðtækur maður. Versti Þrándur í Götu hljómsveitarinnar er þó sá gamli erkifjandj alls menning- arlífs, peningarnir. Margir af hljóðfepralefkurum okkar hafa lífsviðurværi sitt af því að leika fyrir dansi \ kaffihús- um. Þeir hlaupa frá Mozart undir stjórn Abrahams í bí- bob á saxófón og þaðan í þj óðlög útvarpshlj ómsveitar- innar. Árangurinn af slíkum vinnuskilyrðum er sá, að hljóðfæraleikararnir • geta ekki lagt mikinn tíma í æf- ingar og hljómieika án þess að fá greidd laun. Þegar þeir fást til að setjast í ólaunaða hljómsveit, mæta þeir illa á æfingum, eins og von er. Það er mörgum Ijóst, að við svo búið má ekki standa. Eina lausnin er symfóníu- hljómsveit, sem getur greitt meðlimum sínurn fyrir störf þeirra, og hefur ráð á að fá þá menn erlendis, sem ekki eru til hér. Frumvarp til laga um slíka hljómsveit var lagt fyrir alþingi í- vor, en náði ekki afgreiðslu. Samkvæmt því á að leggja 25 aura skatt á hvern aðgöngumiða kvik- myndahúsa, samtals um 600 þús. kr. á ári. Síðan á Sym- íónruhljómsvéil íslands að' sjá útvarpinu og' Þjóðleikhús- inu fyrir hijómleikum og auk þess1 að halda almenna hljóm- leika. Frh. á 23. siðu. 13

x

Voröld

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Voröld
https://timarit.is/publication/1956

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.