Bergmál - 01.08.1955, Side 5

Bergmál - 01.08.1955, Side 5
SVEITASTELPAN Smásagu eftir Nigel Balchin. Höfundur þessarar sögu, Nigel Bal- chin, er brezkur kaupsýslumaður, tæplega fimmtugur að aldri. En jafn- framt kaupsýslunni hefir hann stund- að allmikið ritstörf og árið 1942 kom út fyrsta bók hans og síðan hver af annarri. En þekktastur er hann fyrir bók, sem heitir „My own executioner", sem kom út 1943, sem er mjög skemmti- leg og vel gerð skáldsaga um viðfangs- efni nýtízku sálfræðings. Sú bók hefur verið þýdd á fjölda tungumála og jafnframt kvikmynduð. Balchin hefur mjög skemmtilega kýmnigáfu sam- fara góðum gáfum og skarpskyggni. Eiginlega var það af hreinni tilviljun að ég fékk að heyra þessa sögu, sem ég ætla að segja hér á eftir. Ég hafði verið að taka til í rusli uppi á háalofti og rakst þá á gamalt málverk af mjög smávaxinni konu, sem virtist hafa verið ákaflega fögur. A myndinni var einnig stór veiðihundur. Charles frændi minn var staddur hjá mér þegar þetta var og sýndi ég honum málverkið og spurði hann af hverri það væri. Charles brosti og sagði: „Þessi mynd er af „sveitastelpunni“ svokölluðu. Hún hét annars Soffía og var gift Peter langafa þínum. Ég man óljóst, að ég sá þau þegar ég var smástrákur. Hún var mjög grannvaxin og smávaxin, með allra smávöxnustu konum og þótti mjög falleg. Maðurinn hennar, Peter langafi þinn, var aftur á móti rúmlega þriggja álna maður og beljaki að stærð. Peter var bóndi eins og margir af forfeðrum hans höfðu verið á undan honum og hann bjó að Rayburn Keep í Surrey, en sá búgarður hafði verið í eign fjöl- skyldunnar í marga ættliði. Ray- burn Keep þótti góð bújörð á þeim tíma, enda átti Peter um 'sex hundruð ekrur lands og bún- aðist vel. Peter frændi var, eins og ég hefi áður sagt, beljaki að stærð, 3

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.