Bergmál - 01.08.1955, Page 6

Bergmál - 01.08.1955, Page 6
 B E R G M Á L Á G Ú S T mjög sterkur, myndarlegur mað- ur, sæmilega vel gefinn, þó ekk- ert sérstaklega og ég held að hann hafi verið talinn mjög góð- ur bóndi, sérstaklega við naut- griparækt. Hann var ógiftur fram til þrjátíu og fimm ára aldurs og var systir hans ráðs- kona hjá honum. En þegar hann varð þrjátíu og fimm ára þá varð hann skyndilega ástfang- inn af ungfrú Soffíu Channing, þeirri sömu og þessi mynd er af. Enginn þarf að undrast það, sem sér þetta málverk, þótt Peter frændi yrði ástfanginn af Soffíu, það mátti heita að hver einasti af yngri mönnunum í Surrey væri ástfanginn af henni enda var hún ekki einungis falleg, heldur einnig kát, glað- lynd og aðlaðandi á allan hátt og ágætum gáfum gædd. Hún lék vel á píanó, dansaði ágæt- lega, talaði þrjú eða fjögur tungumál og guð má vita hvað fleira hún gat. Og hún var dóttir Sir Essmond Channing, sem var eða hefir kannske verið fyrrver- andi landstjóri í Surrey. Það ér því mjög skiljanleg af- staða Peters frænda. Hitt er aftur á móti ekki eins augljóst hvers vegna hún varð ástfangin af honum. Hún var aðeins tví- tug og hafði verið alin upp við auð og allsnægtir og elskaði sam- kvæmislíf, og henni var í lófa lagið að velja úr ungum mönn- um. En í stað þess að velja sér einhvern aðalsmann úr hópi að- dáenda sinna, setti hún sig upp á móti fjölskyldu sinni, sneri baki við flestum vinum sínum og fyrirgerði rétti sínum til þess að verða arfs njótandi eftir föður sinn, til þess að giftast þessum risa, þrjátíu og fimm ára gömlum bónda uppi í sveit, sem ekki var talinn neitt sérstakt gáfnaljós. Já, vegir konunnar eru órannsakanlegir. Fjölskylda Soffíu var henni sem sagt mjög reið fyrir þessa framkomu, en fjölskylda Pet- ers frænda var honum einnig reið að vissu leyti. Þeim fannst hún algjörlega óhæf til að verða eiginkona Peters og töldu að hún myndi ekki verða honum mikil stoð eða stytta við búskapinn. Auk þess gramdist þessari bændafjölskyldu mjög fram- koma Channingfólksins. Nú á tímum jafnréttisins eigum við erfitt með að átta okkur á þeim gífurlega stéttarmun sem ríkti fyrir hundrað árum síðan og stéttarígurinn var oft jafnvel meiri í lægri stéttunum heldur en hinum hærri. Peter frændi var álitinn hafa flekkað heiður 4

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.