Bergmál - 01.08.1955, Síða 8

Bergmál - 01.08.1955, Síða 8
B E R G M Á L---------------- af Peter frænda, með því að bjóða vinnukonunum inn í setu- stofu til tedrykkju með sér, ef henni fannst hún vera einmana, en slíkt gerðu ekki margar hefð- arfrúr á árinu 1870. Ég geri ráð fyrir að Peter frændi hafi verið mjög ástfang- inn af henni þegar þau giftust og hún líka af honum, en ég efast um að honum hafi nokk- urn tíma verið ljóst til fullnustu hvað hann gekk út í. Ég býst við að hann hafi ef til vill hugsað sem svo, að hann hefði gifzt viðkvæmri stássmeyju með barnssál og ég efast ekki um að Soffia hafi leikið það hlutverk oft mjög vel, þegar það hentaði henni. Hann var mjög góður við hana, nærfærinn og eftirlátur og lét aldrei í ljósi að hann byggist við því að hún væri til neins nýt í sambandi við bú- skapinn eða annað, en það sem hann virðist aldrei hafa skilið, er það að það getur verið mjög leiðigjarnt að vera eftirlætis- brúða einhvers, þegar því fylgir þáð að vera alltaf skilin eftir í barnaherberginu. Mér finnst það alltaf gremju- legt, þegar leiðinlegustu getspár almenningsrómsins koma fram. Þegar Peter frændi giftist ---------------------- Ágúst Soffíu, þá var almennt álitið og talað að þegar nýjabrumið væri horfið, þá myndi Soffía verða leið á því að vera bóndakona og þá myndi Peter frændi jafn- framt fá að kenna á því. Þetta almenningsálit reyndist rétt, hún varð leið á því og hann fékk að kenna á því. Þetta var hans eigin sök að miklu leyti, hann var maður sem vann hörðum höndum og hafði lítinn tíma aflögu til að sinna henni og þar sem hann var sannfærður um að hún væri einungis til skrauts og datt aldrei í hug að láta hana fá nokkurt viðfangsefni til að glíma við eða gefa henni tæki- færi til að taka þátt í heimilis- störfunum á einn eða neinn hátt og þar sem þau voru auk þess barnlaus, þá hafði hún ekkert að gera annað en stofna til vandræða. Og þegar þau höfðu verið gift í'þrjú ár, þá var sannarlega svo komið. Þar sem þú ert giftur maður, þá veiztu það að fyrsta stig, eða frumstig gönuhlaups hjá konum er það, að þær eyða of miklum peningum og Soffía frænka var mjög ginnkeypt fyrir þessu atriði. Hún hafði verið alin upp sem auðmannsdóttir án nokkurrar 6

x

Bergmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.