Bergmál - 01.08.1955, Síða 12
B E R G M Á L-------------------
frétti náttúrlega um það síð-
astur allra manna.
Eins og þú veizt, þá er það
sterkur þáttur í eðli fjölskyldu
okkar að vilja lifa sínu einka-
lífi út af fyrir sig og skipta sér
ekki af málefnum annarra. Og
þótt bræður og systur Peters
hefðu verið gröm yfir því að sjá
„sveitastelpuna“ koma honum í
svo mikil vanræði, sem raun
bar vitni um og gera hann óham-
ingjusaman, þá hafði aldrei
verið minnst á það einu orði
innan fjölskyldunnar, en sam-
band Soffíu við Grinton lávarð
fyllti mælinn, og það var ákveð-
ið innan fjölskyldunnar að ein-
hver yrði að tala við Peter.
Á fjölskyldufundi var ákveðið
að biðja föður minn að fara og
tala við hann, og ég hefi alltaf
haft ánægju af því síðan að
minnast frásagnar föður míns
mörgum árum síðar, af því
þegar hann fór að heimsækja
Peter. Þeir samfundir voru
mjög einkennandi fyrir þá báða.
Faðir minn sat í tvær klukku-
stundir heima hjá Peter í Ray-
burn Keep. Þeir voru báðir
bændur og mest allan tímann
ræddu þeir um búmálin. En í
þann mund að faðir minn ætlaði
að fara að fara sagði hann:
„Eftir á að hyggja, Peter, þá
---------------------- Á g ú s x
myndi ég í þínum sporum líta
eftir Soffíu.“
Þá svaraði Peter frændi: „Það
er ekki svo auðvelt, því að hún
er aldrei hér heima.“ „Ég veit
það,“ sagði faðir minn, „en G ...
lávarður ....“
„Einmitt það,“ greip Peter
frændi fram í.
„Það gengur fjöllunum
hærra,“ sagði faðir minn. „Auð-
vitað kemur mér þetta ekkert
við, en mér fannst ég samt þurfa
að minnast á það við þig.“
„Þakka þér fyrir,“ sagði Peter
frændi, og síðan kvöddust þeir.
Sennilega hefur hvorugur þeirra
nokkru sinni á ævinni talað eins
mikið um einkamál sín eins og
í þetta skipti.
Ef slíkt kæmi fyrir nú á dög-
um, þá geri ég ráð fyrir að Peter
frændi myndi annað hvort leigj a
sér spæjara til þess að fylgjast
með Soffíu og síðan sækja um
hjónaskilnað, eða þá hins vegar
að leita huggunar einhvers stað-
ar annars staðar. En þetta var
árið 1870 og hann tók sig upp
og hélt beina leið til London til
að líta eftir henni.
Náttúrlega veit enginn með
fullri vissu nákvæmlega hvað
gerðist, en orðrómurinn sagði
að hann hefði fundið hana
heima í íbúð Grintons lávarðar,
10