Bergmál - 01.08.1955, Page 26
KVIKMYNDASAGA
Heillandi — viðburðarík — ástarsaga.
E YÐIMERKUR
HERDEILDIN
Eftir Marcel de Grave
Það sem áður er komið:
Poul Lartal kapteinn í frönsku Út-
lendingaherdeildinni fer með herflokk
til að leita að Omar Ben Kalíf, en er
þá gert fyrirsát og liði hans gereytt.
Sjálfur særist hann hættulega, en er
þá bjargað af ungri stúlku, sem hjúkr-
ar honum og skilur hann því næst
eftir þar sem leitarmenn Útlendinga-
herdeildarinnar finna hann og flytja
hann til bækistöðva sinna. Síðar slæst
hann í fylgd með Plevko, gömlum Her-
sveitarmanni, undir leiðsögn arabisks
manns, sem fylgir þeim um leynistíg
inn í Iraouenfjallgarðinn, þar sem þeir
koma að lokum að fagurri borg og er
Lartal leiddur fyrir foringja borgar-
innar, sem nú gengur undir nafninu
Si Khalil, en er í raun og veru gamall
Herdeildarmaður. — Ungur, mentaðar-
gjarn maður að nafni Crito hyggst ná
völdum í þessari friðsömu borg með
því að giftast Morjana, en Si Khalil,
faðir hennar, vonar að Lartal komi í
veg fyrir það með því að giftast Mor-
jana sjálfur. Fyrstu nóttina í leyni-
borginni læðist launmorðingi inn í
svefnherbergi Lartals.
Eitt andartak brá fyrir
áhyggjusvip á andliti Critos. En
svo létti yfir honum á ný. Því að
bumburnar boðuðu honum það,
að nú væri Útlendingaherdeild-
in að nálgast þá gildru, sem
hann hafði búið henni. Hann
hraðaði sér niður á torgið og lét
þegar þeyta orustulúðra. Ridd-
arar þustu nú að úr öllum átt-
um, og nokkrum mínútum síðar
lagði. heill herflokkur af stað.
Si Khalil horfði á þetta allt úr
glugganum ásamt dóttur sinni.
„Ég hefi brugðizt þér Morj-
ana og kapteini Lartal. Ég vildi
að ég hefði nú aðstöðu til þess
að grípa inn í, bara að ég hefði
24