Bergmál - 01.08.1955, Page 28
B E R C, M Á L
ÁG Ú ST
þarna voru gripu nú einnig til
vopna og hröðuðu sér því næst
að opna alla fangaklefana.
Lartal sagði þeim Plevko og
Morjana hvað hann hyggðist
fyrir í fáum orðum og snaraðist
því næst út úr fangageymslunni
og hélt til herbergis Critos.
Hann hafði réttilega gizkað á,
að einhver myndi vera þar á
verði. Sá sem þar sat var svart-
ur á brún og brá, mjög feitur,
gamall hermaður, auðsjáanlega
heljarmenni að burðum, en
hann ranghvolfdi augunum af
skelfingu er Lartal þusti inn í
herbergið. Lartal miðaði á
hann byssunni og skipaði hon-
um að kalla alla varðmennma
saman á hallartorginu.
Lartal horfði út um glugga Si
Khalil á fylgjendur Critos, er
þeir söfnuðust saman á torginu.
Gamli maðurinn, stoltur og
fullur baráttuhugs, greip gamla
herdeildarriffilinn sinn, en
Morjana hélt sig fast að hlið
Lartals. Hann fann að hún titr-
aði af æsingi og ákafa en ekki
var hún hrædd.
Tíu hermenn, sem Lartal gat
treyst stóðu hér og þar í varð-
turnum hallarinnar.
„Leggið niður vopnin,“ hróp-
aði Lartal til hermannanna, sem
nú höfðu safnazt fyrir á torginu.
Þeir vissu ekkert hvaðan á
sig stóð veðrið og lituðust um í
allar áttir með rifflana reiðu-
búna, ef þeir skyldu sjá eitthvert
skotmark, en nú buldi við
kúlnahríð rétt yfir höfðum
þeirra.
Þetta reyndist nægileg að-
vörun. Hermennirnir köstuðu
nú frá sér vopnum og réttu upp
hendurnar og brátt höfðu fylgj-
endur Si Khalil hópast út á
torgið og hirt vopnin, en rekið
alla fangana inn í fangaklefana.
Lartal gaf sér ekki tíma til að
bíða og sjá hvernig þessu lykt-
aði, hann vissi það að hann mátti
engan tíma missa, ef honum ætti
að takast að ná yfir til fjallanna
og í gegnum leynistíginn í tæka
tíð til þess að bjarga herdeild-
inni frá algjörum ósigri. Messa-
oud hafði þegar söðlað hestana
og Si Khalil, þótt gamall væri',
krafðist þess að fá að köma með
og nokkrum mínútum síðar
héldu nokkrir tugir manna af
stað í fylgd með Lartal.
Morjana veifaði til þeirra, er
þeir lögðu af stað og brosti hug-
hreystandi þótt hún væri með
tárin í augunum. En augnatillit
Paul Lartals kapteins gaf henni
endurnýjaðan styrk og trú á það
að allt myndi fara vel.
Þeir fóru eins hratt yfir og
26