Bergmál - 01.08.1955, Side 42

Bergmál - 01.08.1955, Side 42
B E R G M Á L------------------ kom leiftursnöggt fram undan kápunni og trékylfa skall á vanga gjaldkerans svo að hann lyppaðist niður af stólnum og lá hreyfingarlaus á gólfinu. Max skeytti ekki meira um hann. Satt var það að hann var grannvaxinn og kvenlegur í út- liti, en lund hans var laus við alla veiklun og viðkvæmni. Heilum mánuði hafði hann eytt í að athuga sinn gang og skipu- leggja þetta atvik, enda var hvert skref, sem hann tók nú, fyrirfram hnitmiðað og ákveðið. Morguninn eftir myndi hann vera kominn aftur heim í litla húsið sitt og vinir hans myndu spyrja hann, hvort hann hefði gert ánægjulega ferð til Parísar. Við borð gjaldkerans stóð dá- lítil grænleit skjalataska, og stóð utan á henni með gylltúm stöfum: Spilahöllin í Rocville. Max tók þessa tösku upp án þess að opna hana og gekk með hana undir hendinni . til dyr- anna. Honum var vel kunnugt um hvað í henni var. Það voru mestallir þeir peningar, sem spilahöllin hafði tekið inn þenn- an dag og það var nógu mikið til þess, að hann gæti lifað áhyggjulau.su lífi í marga mán- uði. Max þekkti orðið þessa spila- ----------------------Á g ú s x höll út og inn, hann hafði líka eytt 4 vikum í það að athuga sinn gang og þessi fjögra vikna bið gerði honum kleift að at- hafna sig þarna áhættulaust. Hann gekk rólega út úr her- berginu og niður eftir gangin- um gegnum anddyrið og út í náttmyrkrið, en til eyrna hans barst ómur af röddum gestanna, sem sátu við spilaborðin í sölun- um. Hann hélt á töskunni undir hendinni en gylltu stafirnir sneru að honum sjálfum. Dyravörðurinn við útidyrnar bauð honum góðar nætur og eftirlitsmaðurinn á bílastæðinu fylgdi honum að gráa Citroen- bílnum hans og tók við greiðsl- unni, en því næst ók Max af stað. Það var ekkert óvenjulegt við neitt af þessu. Þetta hafði hann gert á hverju einasta kvöldi í 4 vikur. Jafnvel líka haldið á grænni tösku undir hendinni. En fram til þessa hafði það verið hans eigin taska en ekki taska sem spilahöllin átti. Max ók eftir strandveginum á leið sinni til baka til Nice, sem var 50 mílna leið. Græna task- an lá í sætinu við hlið hans, og hann raulaði fyrir munni sér. Allangt utan við Rocville — 40 —

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.