Bergmál - 01.08.1955, Page 43

Bergmál - 01.08.1955, Page 43
Bergmál 1 9 5 5 ----------------------- beygði hann út af aðalveginum og ók eftir troðningum inn í lítið skógarrjóður. Strax og hann hafði lokið einhverju verki, þá vildi hann jafnan verða aftur hinn raunverulegi Max Lustrier eins fljótt og mögulegt var. Hann tók ferða- tösku úr aftursæti bílsins. Hann hafði fataskipti, fór úr kvenfatnaðinum og í sín eigin föt, sem voru smekkleg grá sumarföt, dökkt bindi og flóka- hattur. Hann þurrkaði máln- inguna mjög vandlega úr and- liti sér, setti kvenfatnaðinn og hárkolluna í töskuna, sem fötin hans höfðu verið í. Nokkrum mínútum síðar ók hann eftir þjóðveginum á ný. Eftir klukkustundar akstur á strandveginum myndi hann aka rétt hjá háum sjávarhömrum og þá gæti hann numið staðar og varpað töskunni með kvenfatn- aðinum þar fram af. Nokkrir þungir steinar í viðbót við fatn- aðinn í töskunni mundu sjá um að hún sykki strax og þar með væri ungfrú X úr sögunni. Þennan bíl, sem hann hafði keypt notaðan í útjaðri Rocville, myndi hann jafnframt losa sig við þar, og þá var ekkert annað eftir heldur en að ganga dálít- inn spotta áfram eftir veginum og setjast inn í annan bíl, sem hann átti, og beið eftir honum á afviknum stað rétt við þjóðveg- inn. Því næst gæti hann ekið áfram ókvíðinn og áhyggjulaus. Þannig hafði þetta oft tekizt áður hjá honum og Max var viss um það að þannig myndi þetta ganga einnig nú. Hér var ekk- ert undir heppni komið eða til- viljun. Hvert skref og hver hreyfing sem Max gerði var fyrirfram útreiknuð og fram- kvæmd hiklaust og ákveðið, því að M'ax var kaldrifjaður og ákveðinn náungi. Einu sinni eða tvisvar á liðnum árum hafði hann neyðst til þess að nota skammbyssuna, sem hann bar í hylki undir hægri upphandlegg. Max myndi áreiðanlega skjóta, ef kringumstæðurnar krefðust þess, enda þótt svipur hans væri blíðlegur og andlitsdrættirnir fínlegir og kvenlegir. Max ók því áfram í bezta skapi eins og hann var alltaf er hann hafði framkvæmt eitt- hvert verk. Það var orðið fram- orðið, komið nokkuð fram yfir miðnætti og enginn sást á veg- inum, jafnvel ljósin í þorps- gluggunum voru slökkt, þar sem hann ók um. Til hægri handar, hinu megin við trén gjálfraði Miðjarðarhafið letilega á rauðu 41

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.