Bergmál - 01.08.1955, Page 48
B E R G M Á L-------------------
tekið upp skammbyssu?“ spurði
hann.
Max glotti illmannlega. „Til
þess að vernda sjálfan mig.“
„Fyrir mér, eða hvað?“
„Já, fyrir yður. Ég verð að
skjóta yður til þess að ég sé
öruggur sjálfur.“ Hann miðaði
byssunni á brjóst Charnots.
„Einmitt það, hvað ætti ég að
geta gert yður? Ég, sem einmitt
hefi gert mér far um að hjálpa
yður.“
Max gekk eitt skref aftur á
bak. Hann vildi vera viss um að
hann fengi ekki blóð á fötin sín
um leið og skotið riði af.
Nú hafði hann yfirtökin og
hafði endurheimt sjálfstraust
sitt, er hann sagði rólega: „Ein-
hverntíma í dag verða öll blöð
og jafnframt útvarpið yfirfull
af fréttum um þjófnað sem
framinn var í spilahöllinni í
Rocville —“
Max hnykkti til höfðinu í átt-
ina að töskunum. „Sá þjófnaður
var framinn af konu, sem klædd
var grænni kápu og hvítum
sumarkjól, sem þér sáuð í tösk-
unni. Auk þess ók sú kona grá-
um Citroen bíl, sem nú liggur á
hliðinni hérna uppi í brekkunni.
Ég hefi ekki hugsað mér að gefa
yður tækifæri til að gefa lög-
reglunni upplýsingar um það að
---------------------- Á g ú s T
þessi kona hefði í raun og veru
verið dulbúinn karlmaður, sem
þér gætuð ennfremur lýst ná-
kvæmlega.“
Charnot sagði ekkert og virt-
ist hugsi, en að andartaki liðnu
fór hann að hlæja, góðlátlega.
Max þoldi ekki þennan hlátur.
„Haldið yður saman“. En
Charnot lét sér hvergi bregða og
hélt áfram að hlæja, að baki
honum glampaði á spegilsléttan
sjóinn í sólskininu úti fyrir ....
„Ef yður þóknast svo, þá getið
þér þaggað niður í mér með
skammbyssunni yðar,“ sagði
hann blátt áfram.
Max ætlaði ekki að láta segja
sér það tvisvar. Hann vildi Ijúka
þessu af sem fyrst. Hann þrýsti
á gikkinn.
Það heyrðist daufur smellur.
Honum gafst þó ekki tími til að
undrast þetta, því að Charnot
stökk á hann. Hann féll á gólfið
og Charnot á hann ofan, og
Charnot var bæði þungur og
sterkur, svo að Max var eins og
barn í höndum hans. Stór hnefi
skall af heljarafli á kinnbeini
hans og Max vissi ekki af sér
meir.
Þegar hann raknaði við, lá
hann í hnút uppi á hörðum
bekk, bundinn á höndum og fót-
46