Bergmál - 01.08.1955, Side 52

Bergmál - 01.08.1955, Side 52
B E R G M Á L------------------- „Það er fallegt,“ sagði frú Cotton, „en það eru of mörg herbergi í því.“ Þetta var hárrétt hjá frú Berthu Cotton, eins og reyndar allar smáathugasemdir hennar, sem jafnan voru sagðar svo blátt áfram, að þær hlutu að sannfæra. Húsið hafði verið byggt handa gamaldags sveita- klerkum, sem þarna höfðu búið um. langan aldur með fjölskyld- ur sínar, einn eftir annan. Svefnherbergin voru mörg og stofurnar rúmgóðar. Búrinu létu Cotton-hjónin breyta í eldhús. En gamla eldhúsið notuðu þau fyrir geymslu. Geymslur og skemmur voru margar og auk þess kjallari. „Ekki skil ég hvernig Grund- sells-hjónin fóru að ráða við þetta hús,“ sagði frú Cotton er henni varð hugsað til hjónanna sem átt höfðu húsið næst á und- an þeim, en þau hjón höfðu að- eins búið í því í tæp fimm ár. Herra Grundsell hafði verið smávaxinn, glaðlyndur og ham- ingjusamur maður, mjög vin- sæll inni í þorpinu. Ekki nærri eins efnaður og Sam Cotton, en ef til vill hamingjusamari. Kona hans, allmörgum árum eldri en hann, hafði í fyrstu verið mönn- um ráðgáta. Hávaxin, dökk yfir- -------------------- Ágúst litum, útlendingsleg kona, fá- mælt. En ekkert dylst fyrir heilli herdeild af þvottakonum og húshj álpar-konum, að minnsta kosti ekki til lengdar, og það kvisaðist — enda þótt því væri aðeins hvíslað — að hún drykki. Sjaldan, að vísu, en — jeminí — þvílík kynstur í einu. „Stór skápur fullur af flösk- um,“ sagði frú Tyzer. „Gin- flöskum. Og önnur hrúga — ekkert smáræði —• dysjuð úti í garðinum.“ En þrátt fyrir það hafði frú Grundsell gefist upp. Ef til vill hefir henni fundizt húsið of ein- angrað. Hún talaði oft um Black- pool með söknuði og þrá. Herra Grundsell, sem allt lét eftir henni, fór einnig að óskum hennar í þessu. Kvöld eitt í myrkri og slagviðri, er engir voru á ferli, ók hann henni á brott ásamt öllu hennar hafur- taski í stóra, lokaða bílnum sín- um. Eða svo sagði hann sjálfur frá, síðar. Hún sást aldrei í Marlhammer upp frá því. Og stuttu síðar hafði Grundsell ákveðið að selja. „Ég er ekki undrandi á því,“ sagði frú Tyzer. „Stórt og mikið hús, og hann aleinn í því.“ 50

x

Bergmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.