Bergmál - 01.08.1955, Síða 59
Bergmál
1955
Henni varð litið á David. Hann virtist vera rólegur eins og hann
átti að sér, en hún sá það að hann hélt svo fast um armana á stóln-
um að hnúar hans hvítnuðu.
,,Toni fór aftur til herdeildar sinnar í Þýzkalandi og ég fékk
atvinnu sem læknir. Hann var vanur að skrifa mér reglulega einu
sinni í viku, og í eitt skipti tókst honum að fá tíu daga frí og koma
heim.
En svo, um það bil þrem mánuðum eftir að við trúlofuðumst, þá
skriíaði hann mér og sagðist vera í einhverjum vandræðum og
jaínframt sagðist hann vilja slíta trúlofun okkar. Hann sagði ekki
berum orðum hver þessi vandræði voru, sem hann hafði lent í,
en það mátti lesa milli línanna, að það væri eitthvað í sambandi
við aðra stúlku.
Ég sendi honum trúlofunarhringinn í bréfi, og ég skal viður-
kenna það að ég var hræðilega döpur og niðurbrotin yfir þessu.
Ég gat ekki farið að grátbiðja hann að skipta um skoðun og auk
þess, jæja, ég tók þá afstöðu að grafa mig í starf mitt og reyna að
gleyma honum. En svo alllöngu síðar þá fékk ég aftur bréf frá
honum.“ Christine talaði nú lægra en áður. „Ég sá það strax að
það var ekki rithönd Tona utan á bréfinu, þótt nafn hans sem
sendanda stæði utan á því og á einu horni umslagsins var skrifað:
/„Opnist aðeins eftir dauða minn.“ Þetta var hræðilegt reiðarslag.
J'aínvel nú, svona löngu síðar, gat hún séð sjálfa sig, er hún
opnaði bréfið með titrandi fingrum, og hún mundi glöggt hversu
henni hafði íundizt blóðið storkna í æðum sér er hún las bréfið.
David sat þögull og horfði á borðið fyrir framan sig.
„Það er ekki margt sem ég hefi við þessa frásögn að bæta,“ sagði
Christine. „Bréfið kom frá Austur-Berlín og var aðeins nokkrar
línur. Tony hafði skrifað þetta bréf sama dag og hann skrifaði hitt
bréfið, þegar hann sleit trúlofun okkar. Hann sagði í þessu bréfi,
að þetta bréf myndi ég aðeins fá eftir að hann væri dáinn, því að
hann skildi það eftir í vörzlu manns, sem hann treysti fullkomlega
og myndi senda mér það að sér dánum. Hann sagði mér að hann
elskaði m,ig ennþá og að hann hefði ekki slitið trúlofun okkar
vegna þess að það væri önnur stúlka í spilinu, heldur af öðrum
ástæðum, sem hann gæti ekki sagt mér frá.“
57