Bergmál - 01.08.1955, Page 64

Bergmál - 01.08.1955, Page 64
Bergmál-----------------------------------------------Ágúst aðdáun hans hafði stöðugt aukizt þar til uppi á klettunum kvöldið áður. Þá hafði honum skilizt það að hann var raunverulega mjög ástfanginn af henni. Og hann var ekki síður sannfærður um það nú, er hann horfði á fölt andlit hennar og tárvotu augun. Hann gat ekki fengið af sér að særa Christine Dunbar hvað sem í boði væri. Að lokum sagði hann og leit niður fyrir sig: „Ég vil ógjarnan taka nokkra ákvörðun í skyndi eða óhugsað, en mynduð þér hafa á móti því að ég ræddi þetta mál við Arnold Faber, hann er bezti vinurinn sem ég á hér og eini maðurinn sem ég gæti treyst til að segja mér hreinskilnislega hvað hanri áliti. Hann myndi ekki minnast á þetta við nokkurn mann, ef ég bæði hann fyrir það.“ „Mér finnst,“ bætti hann við og roðnaði lítið eitt. „Mér finnst að við séum bæði hlutdræg í þessu máli, því að það snertir okkur að vissu leyti bæði, ekki satt? Johnny er sjúklingur minn og ég ....“ Hann hafði verið að því kominn að segja við hana að hann elsk- aði hana, en hætti við það. Tony Mordaunt var enn á milli þeirra eins og dökkur og óyfirstíganlegur skuggi. Honum þótti vænt um að Christine samþykkti þessa uppástungu og fannst hann þá geta beðið hana að koma út með sér í gönguferð síðar um daginn. „Ég held að okkur ætti að takast að líta á þetta mál öðrum augum ef við komumst á brott frá hælinu. Ég gæti beðið Arnold að líta eftir því sem ég þarf að gera og ég er viss um að Alex gefur yður leyfi til þess að fara út, eigum við að segja klukkan hálf fjögur.“ Christine kinkaði kolli til samþykkis. Það var engin alúð í rödd hennar er hún muldraði kurteislega: „Þakka yður fyrir.“ David var dapur í bragði, er hann fylgdi henni til dyranna og horfði á eftir henni niður ganginn. 15. kafli. Ástarjátning. Klukkan hálf fjögur stóð Christine reiðubúin á tröppunum utan við hælið og í sama mund kom David á bíl sínum að tröppunum. Hún var klædd nýrri, ljósblárri sumardragt, sem fór henni mjög 62

x

Bergmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bergmál
https://timarit.is/publication/1971

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.