Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Blaðsíða 4
ÁVARP
BEN. G. WAAGE,
forseta /. S. I.
Mér er sönn ánægja að minnast 15 ára starfs-
afmælis Knattspyrnufélagsins „Hauka“ í Hafnar-
firði og sömuleiðis að þakka félaginu fyrir ágætt
íþróttastarf á ýmsum sviðum og ánægjulegt sam-
starf.
Knattspyrnufélagið „Haukar“ gekk í I.S.I. 23.
febrúar 1932, eða tæpu ári eftir stofnun félagsins,
sem var 12. apríl 1931, eins og kunnugt er. Síðan
liafa Haukar verið í Í.S.Í. og reynzt áhugasamir
sambandsmenn. Þeir hafa skilið nauðsyn á vexti
og viðgangi hinna frjálsu íþróttasamtaka lands-
manna, Í.S.Í., þótt þeir væru fáir í fyrstu. Þeir
voru aðeins þrettán, drengirnir, sem stofnuðu
Knattspyrnufélagið „Hauka“, og má því telja það
happatölu félagsins.
Það er eins með Hauka, eins og svo mörg önnur
íþróttafélög, að þau byrja smátt, en vaxa ár frá ári
og sum komast í fremstu röð í einhverri íjDiótta-
grein, eins og Haukar, sem nú eiga ein beztn
handknattleikslið landsins, kvenna og karla. A
Jieim hefur sannazt, að hægfara þróun er bezt,
vissust og öruggust. Allt frá fyrsta knattspyrnu-
sigri félagsins, 5. júní 1932, til þessa dags, hafa
J^eir sýnt oss, að þeir eru drengir góðir, sem að-
eins vilja sigra drengilega á allan hátt.
Eitt atvik úr sögu Hauka er mér sérstaklega
minnisstætt. Það var á þeim árum, sem hinn vin-
sæli og snjalli knattspyrnumaður Halldór heit-
inn Árnason (Dolli) kenndi þeim knattspyrnu.
Halldór hafði lofað Haukum að koma suður í
Hafnarfjörð á áríðandi félagsfund. En Jietta var
um hávetur, þegar allra veðra var von, enda fór
svo, að illt Var að komast héðan suður í Hafnar-
fjörð vegna snjóþyngsla. En „Dolli“ var ágætur
skíðamaður og steig á skíði sín og fór suður í
Fjörð. Ég slóst í förina. Ferðin gekk vel suður;
við komum óvænt á fundinn um kvöldið og var
vel tekið. Þar voru rædd áhugamál Hauka af
kappi, ákvarðanir teknar nm ýms félagsmál, eink-
um þó knattspyrnuiðkanir félagsmanna næsta
sumar. Ég minnist þess, hve félagsmenn voru
hrifnir af „Dolla“, sem lét ófærðina ekki hefta
för sína á Jzennan áríðandi fund.
Það er sagt að Knattspyrnufélagið „Haukar"
hafi verið stofnað á Jaeim tíma, sem Hafnfirðing-
ar létu sig íþróttir litlu skipta. En Jrótt félagið hafi
oft barist í bökkum fjárhagslega, Jrá hafa forystu-
menn þess alltaf getað haldið starfseminni áfram
og aukið hana stórum, til ómetanlegs gagns fyrir
æskulýðinn í Hafnarfirði.
Um margra ára skeið liafa Jaeir gefið út blað
innan félagsins, sem J:>eir nefna „íþróttapiltinn",
og hefur sú blaðastarfsemi haft mikla þýðingu
fyrir félagsmenn og fundahöld þeirra um íþrótta-
mál Hafnfirðinga, t. d. má sjá það á gjörðabókum
félagsins, að Hermann Guðmundsson, Jiáverandi
formaðnr Hauka, kemur fram með ákveðna til-
lögu um byggingu sundlaugar í Hafnarfirði. En
sundlaugin er nú ein hin mesta heilsu'lind Hal'n-
firðinga.
Eitt af því skemmtilegasta og um leið gagnleg-
asta fyrir knattspyrnumál Hafnfirðinga á þessu 15
ára afmæli, tel ég það að nú hafa fjórir Hafnfirð-
ingar (þar af þrír frá Haukum) lokið munnlegu
dómaraprófi á námskeiði Í.S.Í. 1945. Um leið og
ég þakka dómaraefnum þennan áhuga, vil ég
vænta þess, að þeir ljúki einnig hinu verklega
dómaraprófi næsta vor, svo að Hafnfirðingar fái
að Jressu leyti eins góð skilyrði til knattspyrnu-
þjálfunar með dómara og aðrir kaupstaðir á ís-
landi.
Haukar hafa farið margar glæsilegar íþróttá-
ferðir um landið. Þeir hafa keppt í knattspyrnu
og handknattleik á Akranesi, Keflavík, Vest-
mannaeyjum, ísafirði og síðast en ekki sízt í höf-
uðstaðnum. Þótt þeir hafi ekki alltaf borið sigur
úr býtum, þá hafa þeir alltaf keppt vel og drengi-
4
AFMÆLISBLAÐ H A U K A