Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Blaðsíða 32

Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Blaðsíða 32
Sundlaug Hafnarfjarðar að grafa grunn fyrir sundlaugina, en vegna ým- issa örðugleika miðaði verkinu hægt álram þar til á árinu 1941. Þá var hafin bygging sjálfrar laug- arinnar. Arið eftir tók bærinn raunverulega sundlaug- arbygginguna í sínar hendur, með skipun svo- nefnds sundlaugarráðs. Sundlaugarráðið hagaði þó þannig starfi sínu, að fullt tillit var tekið til samþykkta og ákvarðana sundlaugarnefndar. Fyrir dugnað og framtak sundlaugarráðs gekk bygging sundlaugarinnar mun betur en hægt var að búast við, og 29. ágtist 1943 var sundlaugin komin upp, og var hún vígð þann dag með mik- dli viðhöfn. Er laugin liið myndarlegasta mannvirki, mun fullkomnari en áætlað var í fyrstu, en óyfirbyggð. Er það stór galli hvað snertir vetrarrekstur henn- ar, hinsvegar er liún skemmtilegri óyfirbyggð að sumarlagi í góðri tíð. Þótt knattspyrnuvöllurinn á Hvaleyrarholti nægði Haukum hin fyrstu ár félagsins, fór ekki hjá því að liann yrði allt of lítill þegar félaginu óx fiskur um hrygg og það eignaðist 1. flokk í knattspyrnu og fór að reyna sig við knattspyrnu- félögin i Reykjavík. Þess vegna lögðu Haukar í það mikla vinnu og fjármuni að lagfæra og stækka völlinn, en sú við- gerð dugði skammt og var séð strax á árinu 1935, að hinar einu úrbætur sem dyggðu væri stór og fullkominn völlur á hagkvæmari stað en sá gamli. Það var á skemmtifundi Hauka 1935, sem hug- myndin um fullkomið íþróttasvæði í Víðistöð- um kom fyrst formlega fram, í erindi sem þar var flutt um þessi mál. Hinsvegar hafði oft áður á nreðal íþróttamanna verið rætt um Víðistaðina senr hinn fyrirheitna stað fyrir íþróttastarfsemina, og það var í alla staði eðlilegt. Hugur æskunnar hafði ávallt laðast að þessu svæði. Þar fóru fram fyrstu íþróttaæfing- arnar úti og þar var gerður fyrsti vísirinn að í- þróttavelli. Þar að auki voru Víðistaðir eina svæðið í nágrenni bæjarins, sem rúmar leikvelli, áhorfendasvæði, hris og bílastæði, og annað sem þarf að koma fyrir á fullkomnu íþróttasvæði. Síðan þessi hugmynd kom fram fyrst í Hauk- um, hefur margt verið gert til þess að koma henni í framkvæmd. Samþykktir voru gerðar innan Hauka um að fá íþróttafélögin í bænum til þess að ljá 'málinu fylgi sitt, og Haukar liafa lagt sig fram af fremsta megni í baráttunni fyrir framgangi málsins. Árið 1943 náðist sá árangur, að bæjarstjórn skrifaði íþróttaráði Hafnarfjarðar bréf og óskaði 32 A F M Æ L I S B L A Ð H A U K A

x

Afmælisblað Hauka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælisblað Hauka
https://timarit.is/publication/1975

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.