Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Blaðsíða 25
ÍSLANDSMEISTARAR
í HANDKNATTLEIK
INNANHÚSS 1943
Efri röð, frá vinstri: Stefán Eg-
ilsson, Karl Auðunsson,
Jón Egilsson.
Neðri röð, frá v.: Guðsveinn
Þorbjörnsson, Sigmar Guð-
mundsson, Bjarni Sveinsson.
skólar iðkað hann nokkuð og þá sérstaklega
Menntaskólinn í Reykjavík. Þar mun handknatt-
leikur hafa verið iðkaður fyrst hér á landi, og var
það Valdimar Sveinbjörnsson, sem kenndi hann
þar.
Þegar Haukar töldu sig orðið kunna reglurnar
og voru búnir að æfa um nokkurt skeið, fóru þeir
að beita sér fyrir að fá lið til að keppa við, en Jrar
var ekki um auðugan garð að gresja, því þá var
[rað eingöngu Menntaskólinn, sem iðkaði hand-
knattleik. Háðu Haukar nokkra leiki við Mennta-
skólann, en ekki reyndumst við sigursælir, því að
Menntaskólapiltarnir voru góðir leikmenn og
vel æfðir.
Um Jjetta leyti fór Knattspyrnufélagið Valur
að æfa handknattleik, einkum til þess að vera í
þjálfun um veturinn. Hófust þá strax leikir milli
Hauka og Vals, enda höfðu þessi félög haft
nokkra samvinnu.
Þróunin í handknattleik frá þessum árum hef-
ur verið mikil, og nú skipta þeir hundruðum,
sem iðka þessa íþrótt. Ég lield að fáar íþróttir liafi
rutt sér eins fljótt til rúms hér á landi og hand-
knattleikur og í fáum landsmótum er meiri |>átt-
taka heldur en einmitt handknattleik. Þess vegna
þarf að gera meira fyrir Jressa íþróttagrein en
gert hefur verið til þessa, og ber Jrá sérstaklega að
nefna dómara. Þeir hafa verið fáir, og teldi ég
heppilegast, að haldin yrðu dómaranámskeið,
eins og knattspyrnumenn hafa gert og að dómara-
AFMÆLISBLAB H A U K A
Keppni milli Hauka og F. H.
17. júni 1944
25