Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Page 8
ÁVARP
KJARTANS ÓLAFSSONAR
1. formanns íþróttaráðs Hafnarfjarðar
Ekki vakti það mikla atliygli liér í bænum, þeg-
ar Knattspyrnufélagið „Haukar“ var stofnað fyr-
ir 15 árum. Þess var heldur ekki að vænta, að það
þætti miklum tíðindum sæta, þótt rúmlega tugur
drengja á fermingaraldri byndist samtökum í því
skyni að iðka íþróttir. Við hinir eldri menn, sem
vissum um þetta fyrirtæki drengjanna, munum í
mesta lagi hafa litið svo á, að þeir gætu liaft gott
af að spreyta sig á þessu, en fæstum okkar mun
hafa dottið í hug, að þessi samtök hins fámenna
hóps mundu marka djúp spor eða eiga sér langa
sögu.
En sjálfir voru drengirnir á annarri skoðun.
Þeirra litlu kollar voru fullir af áhuga og stórum
framtíðaráformum. Félagið þeirra átti að verða
stórt og öflugt íþróttafélag og láta mikið að sér
kveða. Og þessi fámenni drengjahópur hóf ótrauð-
ur baráttuna við örðugleikana, sem voru margir
og miklir. Ástæðan til íþróttaiðkana var slæm og
ekki höfðu þeir ráð á neinum fjármunum til úr-
bóta. Sjálfir ruddu þeir dálítinn íþróttavöll til
bráðabirgða í tómstundum sínum og þar hittust
þeir til íþróttaiðkana á kvöldum, þegar þeir
höfðu lokið vinnu eða skólagöngu. Þeir héldu
marga málfundi og bollalögðu um framtíðina.
Um skeið gáfu þeir út lítið blað, til að koma
áhugamálum sínum á framfæri og afla þeim
fylgis.
Drengirnir áttu góðan hauk í hqyni, þar sem
var séra Friðrik Friðriksson. Við hann höfðu þeir
ráðfært sig um félagsstofnunina. Hann hvatti þá
til dáða og gaf félagi þeirra nafn. Hann fylgdist
með viðleitni þeirra og var þeim hollur vinur og
ráðgjafi. Leiðsögn þessa ágæta manns og örðug-
leikarnir, sem hinir ungu stofnendur félagsins
glímdu við og yfirunnu, reyndist félaginu hið
Irollasta veganesti, og að því býr það enn í dag.
Knattspyrnufélagið „Haukar“ var fámennt
fyrstu árin og átti erfiða aðstöðu, en brátt kom
að því, að það óx að félagatölu og efldist á allan
hátt. — Góður vilji og ötulleiki stofnendanna
reyndist sigursæll. Nú um langt skeið hefur þetta
félag talið fjölmenni innan sinna vébanda og
starfsemi þess staðið með miklum ljlóma. það
hefur eflt ungt fólk til afreka í íþróttum og látið
mikið gott af sér leiða. Félagið hefur á liðnum ár-
um átt mikinn og merkilegan þátt í því, að uppala
æskulýð þessa bæjar við holla líkamsmennt og
heilbrigt líf. Fordæmið, sem það hefur gefið, má
á margan liátt vera öðrum til fyrirmyndar. Nú á
15 ára afmælinu getur félagið því með gleði litið
svo ógerlegt reyndist að koma honum upp fyrir
þennan vetur. En hálfnað er verk þá hafið er. Nú
er grunnurinn undir skálann tilbúinn, svo að
hægt verður að hefja byggingu lians fyrr að vori.
Öll vinna við grunninn var unnin í sjálfboða-
vinnu, og er það ætlunin, að byggja skálann að
eins miklu leyti og liægt er án aðkeyptrar vinnu.
Það er líka siðferðisleg skylda okkar að sýna, að
við viljum eitthvað á okkur leggja, þegar mál okk-
ar fá jafn góðar nndirtektir hjá stjórnarvöldum
bæjarins og raun ber vitni um í þessu máli.
Þess vegna vil ég minna alla hafnfirzka íþrótta-
menn á hið forna spakmæli: Margar henditr
vinna létt verk.“ Leggjum senr flest hönd á plóg-
inn, jafnt þau, sem skíðaíþróttinni unna og þau,
sem leggja stund á frjálsar íþróttir, og þá mun
okkur vinnast létt að konta skálanum upp í
sumar.
Að lokum vil ég, fyrir hönd Skíða- og skauta-
félags Hafnarfjarðar færa Haukum innilegustu
óskir um frægð og frama á komandi árurn og
þakka þeim störf þeirra í þágu hafnfirzkra íþrótta-
mála á liðnum árum.
Þórsbergi, um áramótin 1945—’46
AFMÆLISBLAfi H A U K A