Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Page 16
I. FLOKKUR 1941
Ejsta röð, frd vinstri: Helgi Hóseasson, Sigur-
björn Þórðarson, Páll Oafsson, Sœvar Magnús-
son.
Miðröð, frá v.: Lárus Bjarnason, Stefán Egils-
son, Friðþjófur Sigurðsson.
Neðsta röð, frá v.: Þorsteinn Jónsson, Guð-
mundur Eyþórsson, Jón Egilsson.
var ákaflega mikill. Spumingin var hvoít okkur
tækist að sigra Val, og það er óhætt að fullyrða,
að óskir Hafnfirðinga um að okkur tækist vel,
fylgclu okkur til Reykjavíkur það kvöld. Eitt var
ákveðið innan meistaraflokks Hauka þá, áður en
leikur skyldi hefjast, að flokkurinn skyldi leika
eins vel og hann gæti. Leikar fóru svo eins og fiest-
um er kunnugt, að Haukar báru sigur af hólmi,
og er óhætt að segja, að það iiafi verið góður og
verðskuldaður sigur (22:16). Var þetta í fyrsta
skipti, sem Valur var sigraður í meistaraflokki, og
hafði þessi fyrsti stórsigur félagsins allgóð áhrif á
félagslífið. Það hygg ég, að margur Vals-maður
nruni hafa álitið með sjálfum sér, að „litli bróðir“
væri nú orðinn nokkuð stór, og eitt er víst, að
þessi sigur okkar var engu öðru að þakka en góðu
félagslífi, og þá sérstaklega, live æfingar voru vel
sóttar. í þessu sambandi vil ég geta þess, að þá um
sumarið og veturinn höfðu Haukar ágætiskenn-
ara, sem var Garðar S. Gíslason. Garðar hafði þá
og hefur nú umfangsmikinn atvinnurekstur, og
eyddi hann miklum tírna og fyrirhöfn í það að
kenna félaginn. Ég vil einnig taka það fram, að
hann kenndi sem áhugamaðnr allan þann tíma,
sem hann kenndi hjá Haukum, bæði knattspyrnu
og handknattleik.
Þá er vert að geta þess, að árið 1943 hefst hrað-
keppnimót kvenna í handknattleik hér í bæn-
um. Var það Jón Mathiesen, þáverandi formaður
íþróttaráðs Hafnarfjarðar, sent gaf forkunnarfagr-
an bikar til að keppa um, en Haukar sáu um mót-
ið. Voru þátttakendur aðeins þrjú félög, Haukar,
F. H. og K. R. Leikar fóru svo, að K. R. bar sigur
úr býtum í þessu móti. Var keppninni hagað svo,
að keppa skyldi sama daginn, og það félag, sem
tapaði einum leik, var úr. Kom það því í hlut eins
flokksins, að keppa tvo leiki samfleytt, en seinna
var horfið frá því ráði, og skyldi liver flokkur
leika aðeins einn leik sama daginn.
Fyrr á árinu hafði kvenfl. Hauka keppt í meist-
aramóti kvenna í handknattleik og var keppt í
Reykjavík. Hlaut flokkurinn mjög góða dóma
fyrir leik sinn og lenti í úrslitum gegn Ármanni.
Þurfti að leika tvo leiki til að úrslit fengjust.
8.
Árið 1944 má teljast viðburðaríkasta ár í sögu
íþróttalífsins í Hafnarfirði. Auk hinna venjulegu
móta, sem fóru fram hér, kom hingað flokkur
frjálsíþróttamanna úr Vestmannaeyjum, til að
taka þátt í bæjakeppninni, sem að þessu sinni var
háð hér. Þá var haldið Hafnarfjarðarmót í hand-
knattleik í kvenfl. og meistaraflokki karla. Sigr-
uðu Haukar í báðurn flokkum, í kvenfl. með 6:4,
en í karlaflokki með 7:6.
Þá kom hingað flokkur kvenna úr Knattspyrnu-
félaginu „Tý“ í Vestmannaaeyjum, er keppa
skyldi við félögin hér. Leikar fóru svo, að Haukar
sigruðu Týs-stúlkurnar, sem aftur á móti sigruðu
F. H.
Langmerkasti viðburðurinn í íþróttalífinu var
án efa, að hér var haldið meistaramót kvenna í
handknattleik.Var þetta í fyrsta skipti, sem hér var
haldið landsmót í íþróttum, og var það vel til fall-
ið, að það skyldi vera í handknattleik kvenna, því
hér í Hafnarfirði er sá hópur ungra stúlkna orð-
inn allstór, er iðkar þessa hollu og skemmtilegu
íþrótt.
Þá var og haldið hraðkeppnimót kvenna í
handknattleik, hið annað í röðinni, og voru þátt-
takendur sönni félög og árið áður. Leikar fóru
svo, að kvenflokkur Hauka sigraði mjög glæsilega.
Þetta vor vinna Haukar vor- og haustmót í
knattspyrnu, hlutu 16 stig og unnu þar með stiga-
bikar Í.S.Í. og nafnbótina „Knattspyrnumeistarar
Hafnarf jarðarF. H. hlaut 12 stig. Haukar unnu
í 1. og 2. fl. á báðurn mótunum, en F. H. 3. fl. á
háðum mótum.
16
AFMÆLISBLAfi HAUKA