Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Side 30
Hraðkeppnimeistarar 1944 og 1945
höfðum yfirhöndina í leiknum þar til á síðustu
mínútu, að Ármanni tókst að gera ]afntefli. I
stað þess að framlengja, eins og lög gera ráð fyrir,
var okkur sagt, að leikurinn skyldi ekki fram-
lengdur, af óskiljanlegum ástæðum.
Næsta kvöld var svo leikið aftur og þá unnu
Ármannsstúlkurnar, enda sögðu áhorfendur, að
við hefðum verið óþekkjanlegar frá því kvöldið
áður.
Undanfarin tvö ár höfum við tapað með að-
eins einu marki fyrir íslandsmeisturunum í úti-
handknattleik, og sama er að segja um innanhúss-
mótin, að þar hefur ekki munað miklu að okkur
tækist að sigra alla keppinauta okkar nema í. R.,
sem við gerðum jafntefli við. Fengurn við flest
stig og urðum við þar með íslandsmeistarar í
I. flokki. Auk þess urðum við Hafnarfjarðar- og
hraðkeppnimeistarar, svo að við megum vera
ánægðar með árangurinn þetta ár.
S.l. sumar fór svo flokkurinn lil Isafjarðar til að
taka þátt í íslandsmótinu, sem þar var lialdið.
Þátttaka í þessu móti var því miður allt of lítil,
því að aðeins fjögur félög tóku þátt í mótinu, þar
af tvö félög frá Hafnarfirði (Haukar og F. H.).
Árangurinn hjá okknr var góður á Jressu móti,
])ar sem við urðum nr. 2. Töpuðum við með að-
eins einu marki fyrir ísfirðingum, sem urðu Is-
landsmeistarar að þessu sinni. Þetta er eini leik-
urinn, sem við höfum tapað á árinu 1945, Jrað er
að segja á opinberu móti.
Um kennara flokksins, senr verið hafa margir
og góðir, ætla ég ekkert að segja, því þeirra mun
getið á öðrum stað hér í blaðinu, en það eru aðr-
ir, sem ég get ekki látið lijá h'ða að minnast, en
það eru Jæir, sem hafa gefið verðlaunagripi til að
keppa um í handknattleik kvenna. Þessir menn
STARFANDI NEFNDIR
O G FULLTRÚAR HAUKA
Knattspyrmmefnd: Friðþjófur Sigurðsson, Vil-
hjálmur Skúlason og Jón Pálmason (yngri).
Handknattleiksnefnd: Guðsveinn Þorbjörns-
son, Stefán Egilsson og Halldór Arinbjarnar.
Skemmtinefnd: Karl Auðunsson, Stefán Egils-
son, Rut Guðmundsdóttir, Halldór Arinbjarnar
og Benedikt Sigurðsson.
Fjáröflunarnefnd: Marteinn Marteinsson, Lár-
us Sigurðsson, Hermann Guðmundsson, Þor-
björg Magnúsdóttir, Sigurlaug Arnórsdóttir og
Friðþjófur Sigurðsson.
Ritnefnd: Hermann Guðmundsson, Magnús
Kjartansson, Sigurbjörn Þórðarson og Böðvar B.
Sigurðsson.
Fulltrúi Hauka í Iþróttabandalagi Hafnarfjarð-
ar: Hermann Guðmundsson. Varafulltrúi: Krist-
ján Andrésson.
Fulltrúi Hauka í vallarnefnd: Kristján Andrés-
son.
Fulltrúi Hauka í Skíðaskálanefnd: Lárus Sig-
urðsson.
liafa skilið nauðsyn Jress, að íþróttalíf í Hafnar-
firði þurfi að eflast, og til þess að efla Jrennan
áhuga hafa þeir gefið verðlaunagripi til að keppa
um, og má Jrví segja, að Jreir haldi að vissu leyti
uppi íþróttalífinu í Hafnarfirði. Fyrir Jressar
gjafir \ il ég færa þeim kærar þakkir okkar Hauka-
stúlknanna.
Að endingu vil ég óska öllum Haukum til
hamingju með 15 ára afmælið, um leið og ég
skora á ykkur, Hauka-stúlkur, að cefa vel og cefa
rétt.
Staðarfelli, 27. des. 1945
30
A FMíLISBLAfi H A U K A