Afmælisblað Hauka

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Qupperneq 33

Afmælisblað Hauka - 15.02.1946, Qupperneq 33
þess, að fulltrúar yrðu kjörnir af hálfu íþróttafé- laganna, til þess að vinna með mönnum, tilnefnd- um af bæjarstjórn, að jiví að velja stað fyrir vænt- anlegt íþróttasvæði Hafnfirðinga, og koma því máli í framkvæmd. í tilefni þessa héldu íþróttafélögin sameigin- legan fund og var þar samþykkt að lýsa því yfir, sem vilja íþróttafélaganna í bænum, að íþrótta- svæðinu yrði valinn staður að Víðistöðum, og var ennfremur samþykkt að fá íþróttafulltrúa ríkis- ins, Þorstein Einarsson, til þess að skoða alla þá staði í nágrenni Hafnarfjarðar, sem til mála gætu komið undir íþróttasvæðið, og fá álit hans um, hvaða stað hann teldi lieppilegastan sem slíkan. í áliti íþróttafulltrúa, sem hann sendi íþrótta- fél. eftir að hann hafði lokið athugunum sínum, kemst hann meðal annars svo að orði: „Eftir að hafa athugað legu þessara svæða út frá veðurfari og fjarlægð við miðju bæjarins, einnig aðstæður til lagningar valla og brauta, fegrun þess og vistleika, bæði fyrir íþróttaiðkend- ur og almenning, sem kemur til þess að horfa á æfingar og keppni, þá leyfi ég mér að dæma Víðistaðina hentugasta svæðið fyrir framtíðar- íþróttasvæði Hafnfirðinga." Þetta álit íþróttafulltrúans var mikill ávinning- ur fyrir þá, sem vildu hafa íþróttasvæðið að Víði- stöðum, enda fór það svo, að í íþróttanefnd þeirri sem stofnað var til með þeim hætti, er hér getur áður um í grein þessari, var samþykkt að athuga möguleikana á því að fá Víðistaðina keypta, og mæla staðinn og gera síðan áætlun um kostnað við að koma þar upp íþróttasvæði. Því miður urðu störf íþróttanefndarinnar ekki eins árangursrík og vonir manna stóðu til. Nefnd- in gerði enga alvarlega tilraun til þess að semja við eiganda Víðistaða um kaup á staðnum og eftir tveggja ára starf var loksins látin fara fram halla- mælingar þar. Það voru því eigi nein undur, þótt íþróttamenn lýstu óánægju sinni yfir þessu aðgerðarleysi í íþróttasvæðismálinu, en það gerðu þeir á stofn- AFMÆLISBLAÐ HAUKA 33

x

Afmælisblað Hauka

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afmælisblað Hauka
https://timarit.is/publication/1975

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.