Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.10.2019, Síða 8

Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.10.2019, Síða 8
8 Hjálparstarf kirkjunnar þakkar stuðninginn Norræna ferðskrifstofan Smyril Line Nýi tónlistarskólinn Nýi ökuskólinn ehf Nýtt Skil slf Olíudreifing ehf Orðabankinn sf Ottó B. Arnar ehf Ó. Johnson & Kaaber ehf Ólafur Þorsteinsson ehf Ósal ehf ÓV jarðvegur ehf Pingpong.is Plast - miðar og tæki ehf Premis ehf Raflax ehf Rafsvið sf Réttur - ráðgjöf & málflutningur Rikki Chan ehf Rima Apótek Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja- SSF Segull ehf Sigurborg ehf Skorri ehf Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs SM kvótaþing ehf Snyrtistofan Gyðjan ehf Sólon Bistro Special Tours Sport-Tæki ehf Sprinkler pípulagnir ehf Spör ehf, auglýsingastofa Stansverk ehf Sveinsbakarí Söngskólinn í Reykjavík Tannlæknastofa Tómasar Einarssonar Tannréttingar sf TCM Innheimta ehf TEG endurskoðun ehf Terra Export ehf THG Arkitektar ehf Tónastöðin ehf Trans Atlantic ehf - ferðaskrifstofa Trésmiðja GKS ehf Tösku- og hanskabúðin ehf Umbúðamiðlun ehf Umslag ehf Útfararstofa Svafars og Hermanns ehf VA arkitektar ehf Varmi ehf VDO ehf Verslunin Álfheimar Verslunin Brynja ehf Vesturröst-Sérverslun veiðimanna Vélar og verkfæri ehf Vélvík ehf Við og Við sf Virkjun ehf VOOT Beita VSÓ Ráðgjöf ehf Frá árinu 1989 hafa Hjálparstarf kirkjunnar og Fósturforeldrar stutt starf Sameinuðu indversku kirkjunnar, United Christian Church of India eða UCCI, með því að greiða kostnað við skóla- og heimavist fyrir börn og unglinga ásamt því að senda stök framlög til viðhalds bygginga og til starfsemi 40 rúma sjúkrahúss sem UCCI rekur. Starfsárið 2018 – 2019 styrktu Hjálparstarf kirkjunnar og Fósturforeldrar 225 börn og unglinga til náms en auk þess greiddi Hjálparstarfið laun fyrir átta kennara við skól- ann. Heildarframlag nam 10,7 milljónum króna. UCCI hefur starfað í Andhra Pradeshfylki í austurhluta Indlands frá árinu 1968. Frá stofnun hefur kirkjan hjálpað fjölskyldum sem tilheyra hópi hinna stéttlausu í fylkinu og búa við örbirgð. UCCI rekur þar skóla, heimavist og spítala ásamt því að gefa fólki mat. Áslaug Stefánsdóttir Indlandsvinur er upphafskona Fósturfor- eldra en það er hópur fólks sem greiðir fyrir veru barna í skóla og heimavist UCCI með reglulegum fjárframlögum. Fæst barnanna eru munaðarlaus en sakir fátæktar og fordóma komast þau ekki í almenna skóla. Þegar börnin hefja skólagöngu hjá UCCI opnast þeim möguleiki til betra lífs en félagsleg staða þeirra og fátækt annars býður þeim. Auk þess er þeim um leið forðað frá óhóflegri vinnu, hungri og skorti á læknisþjónustu. Skólastarfið er því mikilvæg forvörn gegn því að börn lendi í vinnuþrælkun. Menntunin býr með börnunum það sem eftir er og hefur margvísleg áhrif á möguleika þeirra til að lifa með reisn. Samstarf Hjálparstarfs kirkjunnar og UCCI hófst í kjölfar þess að skóli UCCI brann til kaldra kola árið 1988 en þá voru nem- endur 400 talsins í sjö bekkjardeildum. Skólastjórinn heimsótti þá Áslaugu til Íslands og saman leituðu þau til Hjálparstarfs kirkjunnar um aðstoð við endurbyggingu skólans. Í byrjun árs 1989 sendi Hjálparstarfið 15.000 bandaríkjadali til verksins og hefur samstarfið haldið áfram óslitið síðan þá. Unglingar fá tækifæri til verknáms hjá UCCI. Meðal námsgreina eru körfugerð saumar, smíði, rafiðn og jarðrækt. Skóli og heimavist fyrir börn hinna stéttlausu í þrjátíu ár

x

Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar
https://timarit.is/publication/1939

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.