Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.10.2019, Blaðsíða 16

Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.10.2019, Blaðsíða 16
www.gjofsemgefur.is GJÖF SEM GEFUR Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is geturðu styrkt bágstadda fjölskyldu á Íslandi eða erlendis um nauðsynjar. Gefðu frumlega og skemmtilega gjöf sem getur breytt miklu fyrir fólk sem þarf á aðstoð að halda. „Elsku systir, þú hefur gefið fjölskyldu í Afríku vatnsbrunn“. Gjafabréf fyrir fjölskyldu í Afríku. Fyrir andvirði þessa gjafabréfs verður fátækri fjölskyldu í Úganda eða Malaví gefin geit. Fjölskyldurnar, þ.á m. mun- aðarlaus börn sem búa ein, taka þátt í þróunarverkefni með Hjálparstarfi kirkjunnar. Fyrst er vatns aflað og það svo nýtt til að veita á akra, til að gera fiskiræktartjarnir eða til að halda skepnur. Geit gefur af sér mjólk, tað til áburðar, afkvæmi og skinn sem ýmist má nota heima eða selja fyrir nauðþurftum. Taðið bætir uppskeruna, fæðan verður fjöl- breyttari með prótínum geita og heilsan batnar. Afkoman verður öruggari en með upp saman og lífsgæðin meiri. Geit afurð skerunni einni Gjafabréf Andvirði þessa gjafabréfs fer til kaupa á skólagögnum fyrir börn á Íslandi. Það er leikur að læra Það verður leikur að læra með nauðsyn- legar bækur, ritföng, skjólgóða úlpu, tölvu og skólagjöldin greidd í framhalds- skóla. Með þessu gjafabréfi sérð þú til þess að unglingur frá efnalítilli fjölskyldu á Íslandi hafi þetta allt meðferðis og sé klár í skólann. Þú dregur úr líkum á því að unglingurinn hætti í skóla og lendi í vítahring lítillar menntunar, lágra launa og fátæktar – að barn líði fyrir stöðu foreldra sinna. Gjöf til skólabyrjunar er góð gjöf. Gjafabréf Andvirði þessa gjafabréfs gefur hlutdeild í brunni. Hreint, tært og frískandi vatn er undirstaða alls lífs í heiminum. Þó hafa 800 milljónir manna ekki aðgang að hreinu vatni. Brunnur breytir þessu fyrir allt að 600 manns, til frambúðar. Í þorpi í Malaví mun lífið taka stakkaskiptum. Heilsufar batnar og vinnuálag á stúlkum og konum verður minna, því það er þeirra hlutverk að sækja vatn. Stúlkur fá loksins tíma til að ganga í skóla og konur fá meiri tíma til að sinna börnum, ræktun og velferð fjölskyldunnar. Þetta gjafabréf gefur 20 manns hlutdeild í brunni og þar með vatn til áratuga. Hreint vatn fyrir 20 manns PIPA R\TBW A • SÍA • 133581

x

Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar
https://timarit.is/publication/1939

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.