Margt smátt : fréttabréf Hjálparstofnunar kirkjunnar - 01.10.2019, Page 12
12
Hjálparstarf kirkjunnar þakkar stuðninginn
Trésmiðjan Akur ehf
Valfell fasteignasala
Þorgeir og Ellert hf
BORGARNES
Borgarbyggð
Gilsbakkakirkja
PJ byggingar ehf
Solo hársnyrtistofa sf
Sprautu- og bifreiðaverkstæðið Borgarness
STYKKISHÓLMUR
Agustson ehf
Ásklif ehf
Þórsnes ehf
GRUNDARFJÖRÐUR
Dodds ehf
Þjónustustofan ehf
ÓLAFSVÍK
Steinprent ehf
HELLISSANDUR
KG Fiskverkun ehf
Sjávariðjan Rifi hf
Skarðsvík ehf
REYKHÓLAHREPPUR
Þörungaverksmiðjan hf
ÍSAFJÖRÐUR
GG málningarþjónusta ehf
Harðfiskverkun Finnboga
Jón og Gunna ehf
Orkubú Vestfjarða ohf
Samgöngufélagið-www.samgongur.is
SMÁ vélaleigan
Vestfjarðaleið ehf
BOLUNGARVÍK
Bolungarvíkurkaupstaður
Endurskoðun Vestfjarða ehf
SÚÐAVÍK
Súðavíkurhreppur
FLATEYRI
Sytra ehf
PATREKSFJÖRÐUR
Fiskmarkaður Patreksfjarðar ehf
Vesturbyggð
TÁLKNAFJÖRÐUR
Allt í járnum ehf
Bókhaldsstofan Tálknafirði
Gistiheimilið Bjarmalandi
BÍLDUDALUR
Hafkalk ehf
HÓLMAVÍK
Sparisjóður Strandamanna
DRANGSNES
Rúna ehf
Sigurbjörg Halldórsdóttir
HVAMMSTANGI
Geitafell - Seafood Restaurant
Alls söfnuðust 6,3 milljónir króna með átaki Hjálp ar starfs kirkj-
unnar Ekk ert barn útund an í ágúst og september síðastliðnum
þegar val greiðslu kröfur voru sendar í heima banka lands manna.
Andvirði söfnunarinnar fer til verkefna innanlands í þágu barna
sem búa við fátækt.
Foreldrar grunnskólabarna sem búa við kröpp kjör hafa mörg
undanfarin ár leitað stuðnings hjá Hjálparstarfi kirkjunnar við
að útbúa börnin í skólann. Flest sveitarfélög í landinu útvega nú
skólagögn án endurgjalds og hefur aðstoð Hjálparstarfsins breyst
samkvæmt því. Stuðningurinn felst nú helst í því að aðstoða
barnafjölskyldur sem hafa ekki efni á að kaupa skólatöskur,
hlýjan vetrarfatnað, íþróttavörur og fleira sem til fellur í upphafi
skólaárs og yfir veturinn.
Hjálparstarf kirkjunnar styrkir börn og unglinga undir átján ára
aldri og sem búa við fátækt til íþróttaiðkunar, tónlistarnáms og
tómstundastarfs. Samtals 42 börn og unglingar undir átján ára
aldri fengu styrk á síðasta starfsári til íþróttaiðkunar, tónlistar-
náms og tómstundastarfs, meðalupphæð styrkja var 27.776
krónur. Fyrir milligöngu Hjálparstarfsins geta börn og unglingar
einnig sótt sumarbúðir og sjálfstyrkingarnámskeið.
Framtíðarsjóður er sérstakur sjóður Hjálparstarfsins sem notaður
er til að styrkja sjálfráða ungmenni til náms sem gefur þeim
réttindi til starfs eða veitir þeim aðgang að lánshæfu námi.
Sjóðurinn hefur verið til frá árinu 2006 en markmiðið með
styrkveitingu úr honum er að rjúfa vítahring stuttrar skólagöngu,
lágra launa og fátæktar. Á síðasta starfsári nutu 58 ungmenni
styrks til greiðslu skólagjalda í framhaldsskólum og fyrir bóka- og
efniskostnaði. Meðalupphæð hvers styrks var 33.463 krónur.
Mjöll Þórarinsdóttir og fleiri sjálfboðaliðar aðstoðuðu félagsráðgjafa Hjálparstarfs kirkjunnar við að taka til skólatöskur, nestisbox,
drykkjarbrúsa, liti, yddara, strokleður o.fl. sem þarf að nota heima við eftir skóla og sem barnafjölskyldur gátu nálgast hjá Hjálpar-
starfinu í upphafi skólaárs.
Ekkert barn útundan
– Takk fyrir frábæran stuðning við starfið!