Mosfellingur - 09.05.2024, Síða 4

Mosfellingur - 09.05.2024, Síða 4
www.lagafellskirkja.is kirkjustarfið - Bæjarblað í rúm 20 ár4 HelgiHald næstu vikna Tvær fermingarathafnir verða Hvíta- sunnudaginn 19. maí í Lágafellskirkju og þær síðustu á þessari „vertíð”. Um 160 börn hafa fermst í 13 athöfnum. sunnudagur 12. maí - lágafellskirkja Kl. 11: Blessunarguðsþjónusta skírnarbarna. Skírnarbörn síðustu ára boðin sérstaklega velkomin á krúttlega fjölskyldustund með krílasálmasniði í umsjón Áslaugar Helgu Hálfdánardótt- ur djákna, Guðlaugar Helgu Guðlaugs- dóttur og presta kirkjunnar. Kl. 13:00 - 15:30: Vorhátíð barnastarfs- ins. Barnakór, saga, hoppukastalar, Dr. Bæk og léttar veitingar í boði! sunnudagur 26. maí Kl. 20: Heilunarguðsþjónusta í Lágafellskirkju. Sr. Arndís Linn þjónar. sunnudagur 2. júní Kl. 20: Kvöldmessa í Lágafellskirkju. Sr. Arndís Linn þjónar. kyrrðardagur 18. maí Á þessum laugardegi verður dagskrá frá 9 til 11 í og við Lágafellskirkju. Upplýsingar og skráning á lagafells- kirkja@lagafellskirkja.is. Ekkert gjald er tekið fyrir kyrrðardaga og eru allir sem áhuga hafa velkomnir! sumarmessur 2024 Samstarfsverkefni kirknanna í Mosfells- bæ, Kjalarnesi & Kjós. Nánar á Facebook og Instagram. Rafræn fermingarskráning 2025 Skráning er hafinn inn á heimasíðunni okkar fyrir börn fædd 2011. sumarnámskeið lágafellssóknar Uppl. og skráning á lagafellskirkja.is Opnað fyrir umsóknir um matjurtagarða Matjurtagarðar bæjarins verða stað- settir austan Varmárskóla þar sem gömlu skólagarðarnir hafa verið. Aðkoma að görðunum er að norð- anverðu frá Kvíslarskóla. Leiguverð fyrir matjurtargarða er óbreytt, eða 2.500 kr. fyrir 50 fm garð. Aðgengi að vatni og kaffiskúr verður við garðana. Tekið er við umsóknum í gegnum netfangið matjurtagardar@ mos.is en garðarnir verða tilbúnir til noktunar 17. maí. KB þrautin haldin í fjórða sinn 18. maí KB þrautin fer fram laugardaginn 18. maí í Mosfellsbæ. Þetta er fjórða árið í röð sem Kettlebells. is stendur fyrir þessu skemmtilega þrautahlaupi. KB þrautin er frábært tækifæri fyrir vinahópa, fjölskyldur og vinnufélaga að takast saman á við fjölbreyttar, krefjandi og skemmtilegar þrautir í einstöku útivistarumhverfi Mosfellsbæjar. Þrautirnar verða um 30 talsins og hlaupið sjálft í kringum 10 kílómetr- ar. Ræst er í hlaupið um kl. 9.30 og verður fjöldi þátttakenda takmark- aður. Allar frekari upplýsingar má nálgast á www.kettlebells.is. Jarðvegsvinna á Varmárvelli í fullum gangi • Nýr fótboltavöllur og 200 m hlaupabraut gervigras lagt á aðalvöllinn að Varmá sumarið 2025 Eins og Mosfellingar hafa væntanlega tekið eftir er vinna við Varmárvöll í fullum gangi. Á dögunum var skrifað undir samning um fyrsta áfanga nýframkvæmda við fyrirtækið Óskatak. Verkið var boðið út fyrr í vetur og var fyrirtækið Óskatak ehf með lægsta tilboðið eða kr. 136.359.500 sem var töluvert undir kostnaðaráætlun. Verkið felur í sér jarðvinnu og fergingu vegna gervigrasvallar. Auk þess felst verkið í uppgreftri fyrir frjálsíþróttavelli, fyllingu og fergingu á honum þegar fergingu er lokið á gervigrasvelli. efnið af svæðinu endurnýtt Endurvinnsla og nýting er í hávegum höfð og mest af því sem fjarlægt er af svæðinu fer í nýtingu annars staðar. Tartaninu úr hlaupabrautinni var rúllað upp og flutt í Skemmtigarðinn í Gufunesi þar sem það verður endurlagt. Sandur er notaður sem íblöndunarefni fyrir gæða- mold, mold fór í uppgræðslu á námum við Krýsuvík og í nýjan kirkjugarð við Úlfarsfell og malbikið verður notað sem mulningslag á bílaplani Icelandair. Vegna aðstæðna þarf farg að liggja á vellinum þar til sig undirlagsins hefur komið fram. Áætlað er að það gæti tekið allt að fjóra mánuði. Næstu áfangar eru lýsing, lagnavinna og yfirborðsfrágangur sem verður boðið út í þremur útboðum. Sumarið 2025 verður lagt gervigras á fótboltavöllinn og í framhaldi verður gengið frá 200 metra hlaupabraut ásamt frjálsíþróttasvæði. Að auki verður jarðvegurinn undir fram- tíðar stúkubyggingu undirbúinn. Leikvöllur við Leiru- tanga endurgerður Á hverju ári eru 1-2 leikvellir á opnum svæðum endurgerðir og leiktækjum skipt út. Framkvæmdir hafa nú staðið yfir við endurgerð leikvallar við Leirutanga þar sem búið er að rífa allt malbik af og verið er að jarðvegsskipta fyrir nýtt undirlag. Fótboltavöllurinn verður með gervigrasi og verða ný mörk sett upp. Á svæðinu er einnig körfu- boltavöllur og verða gúmmímottur á honum auk þess sem nýjar körfur verða settar upp. Samhliða er skipt um girðingar umhverfis vellina. Mynd/RaggiÓla varmársvæðið í dag svona gæti nýtt vallarstæði litið út Á dögunum veitti íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar styrki til ungra og efnilegra ung- menna. Styrkirnir eru í formi launa yfir sumartímann og ungmenni sem hafa sýnt sérstaka hæfileika á sínu sviði geta sótt um styrk til nefndarinnar. Markmiðið með styrknum er að koma til móts við þau ungmenni sem geta ekki með sama hætti og jafnaldrar þeirra unnið sumar- vinnu hjá Mosfellsbæ vegna æfinga eða keppni, skipulags eða annarra þátta sem tengist íþrótt þeirra, tómstundum eða listum. Styrkhafar ársins eru sjö talsins: Berglind Erla Baldursdóttir, golf; Daníel Bæring, hand- bolti; Eberg Óttarr Elefsen, trompet; Oddný Þórarinsdóttir, fiðla; Skarphéðinn Hjaltason, júdó; Sól Snorradóttir, hjólreiðar og Stefán Magni Hjartarson, handbolti. Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar veitir styrki í formi launa yfir sumartímann styrkir til efnilegra ungmenna Erla Edvardsdóttir, formaður nEfndarinnar, mEð styrkhöfum

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.