Mosfellingur - 09.05.2024, Síða 12
- Bæjarblaðið í Mosfellsbæ12
Fjórða árið í röð hafa Golfklúbbur Mos-
fellsbæjar og Palli Líndal ákveðið að taka
höndum saman og halda Palla Open styrkt-
armótið í golfi.
Í ár verður mótið haldið til styrktar sum-
arbúðunum í Reykjadal. Verkefnið hófst
með Palla Open á síðasta ári þar sem átti að
nota styrktarfé, sem var yfir þrjár milljónir,
til að útbúa 20 fermetra búningsklefa fyrir
einstaklinga með miklar sérþarfir. Þessi
búningsklefi átti að vera með tilheyrandi
sérbúnaði.
Eftir að verkefnið fór af stað og arkitekt-
arnir Óskar Þór Óskarsson og Vífill Björns-
son fóru að skoða málið fórum menn að
velta fyrir sér hvort að þessi breyting á
gömlu húsnæði myndi ganga. Áhættan við
að fara í þessar breytingar þótti of mikil
vegna óvissu um breytingar á gömlu hús-
næði.
Í framhaldi af þessu var ákveðið í samráði
við sumarbúðirnar í Reykjadal, Golfklúbb
Mosfellsbæjar og Palla Líndal að safna
fyrir endurbótum á búningsklefum fyrir
sundlaugina í Reykjadal og séraðstöðu fyrir
einstaklinga með miklar sérþarfir.
Verkefnið hefur því stækkað töluvert eða
frá því að fara úr 20 fermetrum í rúmlega
120 fermetra rými. Eins má áætla að kostn-
aður við þetta verkefni aukist töluvert og má
ætla að hann verði um 12-15 milljónir. Það
er þegar byrjað að leita að samstarfsaðilum
að þessu verkefni sem eru vonandi tilbúnir
að leggja styrktarfé á móti styrkjarfé Palla
Open sem verður á milli 6-7 milljónir.
Stefnir í metþátttöku
Á Palla Open í fyrra mættu til leiks 244
kylfingar og var þetta stærsta golfmót GM
á síðasta ári. Eins var þetta næst stærsta
golfmót á Íslandi í fyrra. Í ár stefnir aftur
í metþátttöku.
Palla Open verður haldið laugardaginn 8.
júní á Hlíðarvelli og er þátttökugjald 7.500
kr. Fyrsta holl verður ræst út kl. 7.
Blik Bistro verður með sérstakt tilboð á
steikarhlaðborði fyrir þátttakendur mótsins
og verður hægt að skrá sig á það um leið og
þátttakendur skrá sig á mótið. Eins verða
góð tilboð á öðrum veigum.
Skráning í mótið hefst á föstudaginn kl.
10:00 og fer fram í gegnum golfboxið.
Samstarfshópurinn við Hlíðavöll: Óskar Þór arkitekt, Ágúst framkvæmdastjóri GM, Andrea, Hildur og
Bergljót frá Reykjadal, Vífill Björnsson arkitekt og Palli Líndal.
Palli Líndal og GM safna fyrir Reykjadal með móti 8. júní
Styrktarmótið Palla
Open haldið í 4. sinn
Hreinsunarátak
í Mosfellsbæ
DAGANA 8.–20. MAÍ VERÐUR
HREINSUNARÁTAK Í MOSFELLSBÆ
Á því tímabili eru íbúar Mosfellsbæjar
hvattir til að huga að umhverfinu og
hreinsa í kringum hús sín og næsta
umhverfi.
Hreinsun gróðurs og lóða
Meðan á hreinsunarátakinu stendur er gott tækifæri
fyrir íbúa að taka til hendinni í garðinum og snyrta
runna og beð og eru þeir sérstaklega hvattir til að
klippa hekk og tré sem ná yfir gangstéttar og stíga.
Gámar fyrir garðaúrgang verða aðgengilegir
á þessu tímabili í hverfum bæjarins á
eftirtöldum stöðum:
Holta- og Tangahverfi – Neðan Þverholts
(milli Akurholts og Arnartanga)
Höfða og Hlíðahverfi – Vörubílastæði
við Bogatanga
Teiga- og Reykjahverfi – Skarhólabraut
ofan Reykjavegar og við Sunnukrika
Hlíðartúnshverfi – Við Aðaltún
Helgafellshverfi – Efst í Brekkulandi
og við Snæfríðargötu
Leirvogstunga – Á stæði við stoppistöð á Tunguvegi
Mosfellsdalur – Á bílastæði við Þingvallaveg
Hreinsunardagar á opnum
svæðum 17.–20. maí
Helgina 17.–20. maí verður ráðist í hreinsunarátak á
opnum svæðum bæjarins og með fram nýbyggingar-
svæðum. Afturelding og skátafélagið Mosverjar
munu að venju aðstoða við hreinsunina og taka
vel til hendinni.
Allir íbúar Mosfellsbæjar eru hvattir til að
taka þátt í hreinsunarátaki Mosfellsbæjar
og hjálpast að við að gera bæinn fallegan
og snyrtilegan fyrir sumarið.
Umhverfissvið Mosfellsbæjar
SumarStarfSmaður
óSkaSt
Ráðið er í fjórar vikur yfir sumartímann á námskeiðin. Hægt er að semja
um að vinna bæði heilan og hálfan vinnudag yfir þessar 4 vikur.
Í sumar verður boðið upp á sumarnámskeið Lágafellssóknar fyrir
6-9 ára krakka eins og síðustu ár. Námskeiðin verða starfrækt að
safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3, 270 mosfellsbæ.
Vinnutími starfsfólks verður á bilinu kl. 8:30 - 16:30 með sveigjanleika
eftir vinnuskipulagi. Vika 1: 10. – 14. júní / Vika 2: 18. – 21. júní /
Vika 3: 24. – 28. júní / Vika 4: 12. – 16. ágúst
Nánari upplýsingar veitir Bogi æskulýðsfulltrúi: bogi@lagafellskirkja.is
s: 6906766, sr. Arndís Linn sóknarprestur s: 8668947, Ólína Margeirsdóttir
formaður sóknarnefndar Lágafellssóknar s: 8981795.
umsóknir sendast á: lagafellskirkja@lagafellskirkja.is