Mosfellingur - 09.05.2024, Page 16
- Fréttir úr bæjarlífinu16
Framkvæmdir eru hafnar við nýja fjalla-
hjólabraut í Ævintýragarðinum í Ullarnes-
brekkum.
Magne Kvam hjá Icebike, sem sá
um að leggja gönguskíðabrautirnar í
Blikastaðalandinu í vetur, sér um fram-
kvæmdina. Stefnt er að því að brautin verði
tilbúin um miðjan júní. Fljótlega verður
einnig farið í að uppfæra frisbígolfvöllinn
í Ævintýragarðinum þar sem nokkrum
brautum verður hliðrað til og heilsár-
spallar lagðir. Vaxandi áhugi er fyrir bæði
frisbígolfi og fjallahjólreiðum og aðstæður í
Mosfellsbæ þykja henta sérstaklega vel fyrir
báðar greinar.
Framkvæmdirnar í Ævintýragarðinum
eru hluti af því að styrkja og efla Mosfellsbæ
sem heilsueflandi samfélag.
Tilbúin braut um miðjan júní • Frisbígolfvöllur uppfærður
Útbúa fjallahjólabraut
í Ævintýragarðinum
Undirritaður hefur verið samningur við
nýja verta í golfskálanum í Bakkakoti.
Það eru þau Jónína Unnur Gunnarsdóttir
og Birgir Örn Sigþórsson sem munu sjá um
rekstur golfskálans í Bakkakoti næstu árin.
Jónína og Birgir eru margreynd í veitinga-
bransanum og hafa komið víða við. Þau
eru bæði virkilega spennt fyrir þessari nýju
áskorun sem og golfklúbburinn.
Það hafa verið miklar breytingar í
Bakkakoti síðastliðið ár, fyrst ber að nefna
framkvæmdir við breytingar á vellinum.
Kláraðar verða tvær nýjar brautir núna í
byrjun sumars.
Risinn er glæsilegur garðskáli sem stór-
bætir aðstöðuna fyrir alla kylfinga. Í gamla
skálanum hefur eldhúsið verið tekið í gegn
og verið er að leggja lokahönd á breytingar
á afgreiðslunni þar. Einnig hafa verið keypt
ný húsgögn.
Biggi og NíNa ásamt ágústi
framkvæmdastjóra gm
Nýir vertar í Bakkakoti
hjólaBraut í uNdirBúNiNgi
Hjónin Biggi og Nína taka við veitingarekstrinum í dalnum
Laus störf
í Mosfellsbæ
Öll laus störf hjá Mosfellsbæ
og stofnunum má sjá og sækja
um á ráðningarvef bæjarins:
www.mos.is/storf
Auglýsing
um skipulag
Tillaga að deiliskipulagsbreytingu
Álafosskvosar fyrir Álanesskóg
Breytingin felur í sér stækkun á mörkum deiliskipulags
Álafosskvosar um Álanesskóg. Markmiðið er að
skilgreina frekar áætlanir og heimildir til framkvæmda,
grisjunar og viðhalds skógarins í samræmi við kröfur
Umhverfisstofnunar. Áætlað er að gera Álanesskóg
að útivistarskógi með áningarstöðum og trjákurluðum
stígum.
Hægt er að kynna sér tillögurnar á vef Mosfellsbæjar
á slóðinni mos.is/skipulagsauglysingar og á vef
Skipulagsstofnunar á slóðinni skipulagsgatt.is
Athugasemdir skulu berast með rafrænum
hætti í gegnum skipulagsgáttina.
Athugasemdafrestur er til og með 24. júní 2024.
Tillaga að nýju deiliskipulagi
fyrir lokahús við Völuteig
Veitudeild Mosfellsbæjar vinnur að því að koma upp
svokölluðu lokahúsi milli íbúðarsvæðis við Víðiteig og
athafnasvæðis við Völuteig. Deiliskipulagstillagan gerir
ráð fyrir 70 m² mannvirki sem hýsir loka auk rafmagns
og stýriskápa. Aðkoma að lóðinni er frá Völuteig.