Mosfellingur - 09.05.2024, Síða 22
- Bókasafn og Listasalur22
fyrir 10-12 ára
í bókasafni mosfellsbæjar
11.-13. júní kl. 9:30-12:00
Myndasögusmiðja
Hefur þú gaman af allskonar týpum? Flest okkar hafa sett upp grettu,
fýlu eða gleðibros fyrir myndavélina, en hvernig teiknum við þessi
ólíku svipbrigði? Í myndasögusmiðjunni skapa þátttakakendur sínar
eigin myndasögupersónur frá grunni og læra að breyta hversdaglegum
hlutum í stórskemmtilegar persónur.
Smiðjustjóri er Vilborg Bjarkadóttir, myndlistarkennari.
Smiðjan er ókeypis og er allt efni innfalið. Skráning er nauðsynleg og
fer fram í gegnum sumarfrístundarvef Völu - sumar.vala.is.
Langar þig til þess að prófa að tálga? Eða langar þig að tálga
meira? Nú er tækifærið því laugardaginn 1. júní verður
tálgunarsmiðja fyrir börn í Bókasafni Mosfellsbæjar.
Smiðjan er ætluð 6-12 ára börnum en 9 ára og yngri komi í
fylgd með fullorðnum. Smiðjustjóri er Bjarni Þór Kristjánsson,
handverksmaður og kennari. Allur efniviður, tæki og tól verða
til taks á staðnum.
Tvær samskonar smiðjur eru í boði, sú fyrri kl. 13 og sú seinni
kl. 14. Hámarksfjöldi í hvora smiðju eru 7 börn og er skráning
nauðsynleg. Skráning fer fram í gegnum sumarfrístundarvef
Völu - sumar.vala.is
Tálgunarsmiðja
FYR IR BÖRN
1 . J Ú N Í K L . 1 3 - 1 4 & 1 4 - 1 5
Í B Ó K A S A F N I M O S F E L L S B Æ J A R
Síðasta sögustund vetrarins verður með heldur
óhefðbundnu sniði en í stað upplesturs fáum við
leikhópinn Mikil ósköp í heimsókn með
skemmtilega ferðasýningu.
Sýningin heitir „Ef ég væri grágæs“ og fjallar um
veruna Grjótgerði sem þráir það að vera ekki bara
grá, heldur líka glöð og hýr á brá, líkt og grágæsin.
Sýningin er 25 mínútur að lengd, uppfull af tónlist,
leik og dansi. Leikarar sýningarinnar eru Ellen
Margrét Bæhrenz og Arnmundur Ernst Backman.
„Ef ég væri grágæs“
í Bókasafni Mosfellsbæjar
Miðvikudaginn 22. maí kl. 17
í Bókasafni Mosfellsbæjar
25. maí kl. 12-15
dr. bæk
Við hvetjum allt hjólreiðafólk til að koma
með hjólhestana sína í fría ástandsskoðun
hjá doktornum í upphafi sumars.
Hann með kemur farandskoðunarstöðina
sína, pumpu, olíur og nokkra skiptilykla.
Doktorinn skoðar hjólin og
vottar heilsu þeirra.