Mosfellingur - 09.05.2024, Síða 26

Mosfellingur - 09.05.2024, Síða 26
 - Íþróttir26 j a ko s p o r t ( N a m o e h f ) - k r ó k h á l s 5 f - 1 1 0 á r b æ r Sími: 566 7310 - jakosport@jakosport.is - jakosport.is AftureldingAr vörurnAr fást hjá okkur sport íslandi Á aukafundi aðalstjórnar Aftureldingar þann 2. maí var Ásgeir Jóns- son kjörinn nýr formaður félagsins. Þá voru þau Níels Reynisson og Hildur Bæringsdóttir einnig kjörin í stjórn. Ásgeir leysir Birnu Kristínu Jónsdóttur af hólmi sem hefur gengt formennsku síðustu sex ár og Níels og Hildur koma inn í stað Sigurðar Rúnars Magnússonar og Reynis Inga Árnasonar. Fyrir sitja einnig í aðalstjórn þau Hrafn Ingvarsson varaformaður, Geirarður Long, Inga Hallsteinsdóttir og Hildur Pála Gunnarsdóttir. Stærsta uppgjafarglímumót Íslands, Mjölnir Open, var haldið hjá Mjölni í apríl. Alls voru rúmlega níutíu keppendur skráðir til leiks frá átta félögum víðs vegar um landið. Keppt var í 10 þyngdarflokk- um, 6 hjá körlum og 4 hjá konum. Í opnum flokki karla sigraði Mosfell- ingurinn Logi Geirsson en hann vann allt sem hægt var að vinna á mótinu en auk þess að sigra opna flokkinn, sigraði hann einn sinn þyngdarflokk (-99kg) og hlaut auk þess verðlaun fyrir uppgjafartak mótsins. Nýtti sumarið vel á styrk frá Mosó Nýlega fór Logi til Finnlands og tók þátt, með öðrum Mjölnisstrákum, í ADCC North European Open. Logi gerði sér lítið fyrir og vann gull í -88 kg flokki. Fram undan er svo Íslandsmót í uppgjafarglímu sem fram fer 25. maí. Það er gaman að segja frá því hann er einn af þeim ungmennum sem hlaut styrk frá Mosfellsbæ síðastliðið sumar til þess að stunda sína íþrótt (brazilian jiu jitzu) af krafti. Hann nýtti sumarið og æfði vel. Hann er fæddur 2005 og hefur æft í Mjölni síðan 2017 ásamt því að æfa taekwondo, handbolta og körfubolta hjá Aftureldingu á grunnskólaaldri. Óstöðvandi í glímunni Mosfellingurinn Logi Geirsson Logi geirsson Kraftlyftingafélag Mosfellsbæjar, Kraft Mos, nældi sér í tvö brons á Íslandsmeist- aramóti unglinga um helgina. Alexander Fannar Hallsson í 83 kg flokkki og Helgi Krist- berg Ólafsson Born í 93 kg flokki en hann er nú kominn í landsliðshóp. Gríðarlegur áhugi er um þessar mundir á kraft- lyftingum, þá sérstaklega á meðal eldri borgara. Má greina þennan mikla áhuga eftir að Rúv fór að fjalla um kraftlyftingar sem heilsurækt. Íslandsmóti karla og kvenna í júdó fór fram laugardaginn 27. apríl í Laugardalshöllinni. Skarphéðinn Hjaltason úr JR sigraði bæði -90 kg flokkinn og Opinn flokk en þar mætti hann Aðalsteini í úrslitum og vann með glæsilegu kasti. Þetta voru fyrstu Ísland- meistaratitlar Skarphéðins í flokki fullorðinna. Fram undan er Norðulandamót í lok maí þar sem hann keppir bæði í U-21 og fullorðinsflokki. Tvöfaldur Íslandsmeistari Skarphéðinn Hjaltason landaði sínum fyrstu stóru titlum í júdó skarphéðinn fyrir miðju Brons hjá Kraft Mos ásgeir og birna Ásgeir nýr formaður Fótboltasumarið er komið á fleygiferð og meistara- flokkar Aftureldingar eiga spennandi heimaleiki í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Meistaraflokkur kvenna mætir bikarmeisturum Víkings sunnudaginn 19. maí kl. 14:00 en þjálfari Víkings er John Andrews fyrrum þjálfari og leikmaður hjá Aftureldingu. Meistaraflokkur karla fær stórlið Vals í heimsókn föstudaginn 17. maí kl. 19:30. Í liði Vals má meðal annars finna Gylfa Þór Sigurðsson, Birki Má Sævars- son og Aron Jóhannsson sem hafa allir spilað á HM í fótbolta. Birkir Már er einmitt bróðir Arons Elí Sæv- arssonar fyrirliða Aftureldingar og því munu bræður berjast á Malbikstöðinni að Varmá í þeim leik. Þá eiga strákarnir næsta heimaleik í deild gegn Grindavík föstudaginn 24. maí kl. 19:15. Mosfellingar eru hvattir til að mæta á völlinn í sumar. Stelpurnar Lengjubikarmeistarar B-deilda Mikil gleði er í kringum stelpurnar en þær byrjuðu tímabilið á því að sækja þrjú stig á móti ÍBV. Breytingar urðu á þjálfarateymi fyrir tímabilið en við liðinu tóku Perry Maclachlan og Toni Deion Pressley, með þeim er Ingvar Þór Kale markmannsþjálfari. Stelpurnar tryggðu sér í fyrsta skipti í sögu félagsins sigur í Lengjudeildarkeppni kvenna B-deild. Undir- búningstímabilið gefur fyrirheit um skemmtilegt og gott sumar. Næsti heimaleikur í Lengjudeildinni er gegn Grindavík 23. maí kl. 19:15. Boltinn byrjaður að rúlla • Heimaleikir í Mjólkurbikarnum 17. og 19. maí Stórleikir í bikarnum fyrsta sigri sumarsins fagnað hafsteinn páLsson fyrsti formaður knattspyrnudeiLdarinnar heiðraður

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.