Mosfellingur - 09.05.2024, Page 28

Mosfellingur - 09.05.2024, Page 28
 - Íþróttir28 Íslandsmótið í skák fór fram í íþróttamið- stöðinni Kletti í Mosfellsbæ dagana 16.- 27. apríl. Lokaumferðin fór fram laugardag- inn 27. apríl og tóku helstu stórmeistarar landsins þátt. Lokahóf­ið fór fram á Blik þar sem að Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands- ins og Halla Karen Kristjánsdóttir formaður bæjarráðs Mosfellsbæjar afhentu viður- kenningar. Helgi Áss Grétarsson varð Íslandsmeist- ari og fór taplaus í gegnum mótið. Í öðru sæti var Vignir Vatnar Stefáns- son og saman í þriðja og fjórða sæti voru Guðmundur Kjartansson og Hilmir Freyr Heimisson. Sterkustu skákmenn landsins öttu kappi í Kletti Íslandsmótið í skák haldið í Mosfellsbæ Tindahlaup Mosfellsbæjar verður haldið laugardaginn 31. ágúst, í tenglsum við bæjarhátíðina Í túninu heima. Um er að ræða 15 ára afmæli hlaupsins og verður því mikið um húllumhæ í samstarf­i við aðalstyrktaraðila hlaupsins, Nettó. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar, fulltrúi blak- deildar Aftureldingar, fulltrúi björgunar- sveitarinnar Kyndils og fulltrúi Nettó und- irrituðu þann 11. apríl samning til þriggja ára um að Nettó verði aðalstyrktaraðili hlaupsins til ársins 2026. Tindahlaup Mosfellsbæjar er krefjandi og skemmtilegt utanvegahlaup sem haldið er í Mosfellsbæ síðustu helgina í ágúst ár hvert í tengslum við hátíðina Í túninu heima. Boðið er upp á fjórar vegalengdir; 1, 3, 5 og 7 tinda, og því eiga byrjendur sem og lengra komnir að f­inna leið við hæf­i. Nettó hefur verið aðalstyrktaraðili Tindahlaupsins frá árinu 2022. Stefnir í stærsta hlaupið hingað til Að sögn Regínu Ásvaldsdóttur bæjar- stjóra hefur Tindahlaupið vaxið gífurlega á síðustu árum og farið úr 60 í um 450 þátt- takendur sem gerir hlaupið eitt af stærstu hlaupum ársins hérlendis. „Við fögnum samstarf­inu við Nettó og einnig farsælli samvinnu við skipuleggjendur, blakdeild Aftureldingar og björgunarsveitina Kyndil. Ég veit að hlaupið í ár verður sérstaklega skemmtilegt nú á 15 ára afmælinu. Miðað við vöxt síðustu ára eigum við von á yf­ir 500 þátttakendum í ár og auðvitað nokkrum nýjum Tindahöfðingjum sem eru þau sem fara allar fjórar vegalengdir hlaupsins.“ Áhersla á heilsu og heilbrigði Heiðar Róbert Birnuson, rekstrarstjóri Nettó, segir að það sé fyrirtækinu mikil ánægja að halda áfram að styrkja Tinda- hlaupið, sem hefur náð að festa sig í sessi í dagatali utanvegahlaupara sem skemmtileg en krefjandi áskorun. „Það skiptir líka máli að hlaupið býður upp á fjórar mismunandi leiðir og vega- lengdir, sem gerir það aðgengilegra fyrir fleiri. Við hjá Nettó leggjum mikla áherslu á heilbrigði og heilsu í okkar starf­i og Tinda- hlaupið því fullkominn samstarfsaðili fyrir okkur.“ Nettó áfram aðalstyrktaraðili • Þriggja ára samningur Tindahlaupið verður 15 ára Í túninu heima Fulltrúar Tindahlaupsins skrifa undir. Hrannar frá Kyndli, Regína bæjarstjóri, Heiðar frá Nettó og Gunna Stína frá blakdeildinni. verðlaunaafhending í kletti

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.