Mosfellingur - 09.05.2024, Side 33

Mosfellingur - 09.05.2024, Side 33
Aðsendar greinar - 33 Okkar kæra Varmársvæði hefur þjónað bæjarbúum og fleirum einstaklega vel í gegnum árin, flestir íbúar nýta sér þá frábæru aðstöðu sem þar er að finna á einn eða annan hátt. Svæðið er sannarlega mikilvæg lífæð okkar samfélags. Íbúum er stöðugt að fjölga og iðkendum sem stunda íþróttir að Varmá einnig, það kallar því á áfram- haldandi uppbyggingu á svæðinu svo aðstaðan geti staðist nútíma kröfur. Nýr aðalvöllur Framkvæmdirnar á aðalvell- inum að Varmá hafa eflaust ekki farið framhjá neinum, enda stórar vélar þar að störfum. Unnið er hörðum hönd- um að því að skipta um jarðveg á hinum sögufræga aðalvelli, í framhaldinu þarf að fergja áður en hægt verður að hefjast handa við að leggja á nýtt gervigras á knattspyrnuvöllinn. Í næstu áföngum þar á eftir mun svo nýr frjálsíþróttavöllur líta dagsins ljós, við hlið knattspyrnuvallarins, með 200 metra hlaupabraut sem mun geta nýst öllum bæjarbúum vel. Að auki verður jarðvegurinn undir framtíðar stúku- byggingu undirbúinn. Það er því verið að taka stór skref í átt að enn betri aðal- velli að Varmá. Sparkvöllur við Varmárskóla Á skólalóðinni við Varmárskóla er fyrsti hluti endurbóta á skólalóðinni hafinn sem felur í sér að koma upp nýjum upphituðum sparkvelli ásamt stálrimlagirðingu umhverfis völlinn, hellulögn og ljósastaurum. Kallað var eftir hugmyndum frá nem- endum Varmárskóla þegar hugmyndavinna við nýja skólalóð hófst og voru flestir sem óskuðu eftir sparkvelli. Hjólabraut í Ævintýragarðinum Í Ævintýragarðinum eru framkvæmdir hafnar við nýja fjallahjólabraut sem gert er ráð fyrir að verði tilbúin í júní. Brautin verður mikil lyftistöng fyrir hjólreiðafólk og kærkomin viðbót. Þá verður farið í að uppfæra frisbígolfvöllinn í sumar, færa til nokkrar brautir og leggja heilsárspalla. Núverandi meirihluti hefur lagt mik- ið upp úr því að eiga gott samráð með hagsmunaaðilum við uppbyggingu á Varmársvæðinu, það er mikilvægt að vandað sé til verka og verkefnið unnið faglega, með hagsmuni allra að leiðar- ljósi. Til að styðja við næstu skref sem þarf að taka við uppbyggingu Varmársvæðis var unnin skýrsla um þarfagreiningu þjónustu- og aðkomubyggingar að Varmá. Mun hún hjálpa til við að ná enn betur utan um framtíðarsýn fyrir svæðið og þá uppbyggingu mannvirkja sem framundan er. Það eru því mörg spennandi verkefni í gangi og á döfinni á Varmársvæðinu sem munu vafalítið efla íþróttastarf í Mosfellsbæ enn frekar. Erla Edvardsdóttir formaður íþrótta- og tómstundanefndar, Sævar Birgisson varaformaður íþrótta- og tómstundanefndar Uppbygging á Varmársvæði Fuglaganga Fuglaganga í Leiruvoginum 25. maí Hið íslenska náttúrufræðifélag og Mosfellsbær bjóða upp á fræðslugöngu og fuglaskoðun í Leiruvogi þann 25. maí. Fuglalíf í voginum er mikið allt árið um kring en í lok maí ættum við að sjá stóra hópa vaðfugla á leið til Grænlands og Kanada ásamt mörgum öðrum erlendum og hérlendum fargestum ofan á þá fánu sem heldur til þar á varptíma. Upphafsstaður göngu er frá dælustöð neðan Holtahverfis kl. 10 laugardaginn 25. maí. Mælst er með því að allir mæti með kíki og fuglabók.

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.