Mosfellingur - 09.05.2024, Page 36
Sendið okkur myndir af nýjum Mos-
fellingum ásamt helstu upplýsingum á
netfangið mosfellingur@mosfellingur.is
Anastasía Líf og Carmen Lára fæddust 16. júlí 2023. Anastasía fæddist kl. 20.35 og
var 1380g og 40 cm svo fæddist Carmen kl. 20.43 og hún var 1430g og 41cm. Þær
voru að drífa sig þessar elskur og áttu ekki að fæðast fyrr en 24. september þannig
þær fengu að koma tíu vikum fyrir tímann en hafa staðið sig eins og hetjur frá
fyrsta degi. Foreldrar eru Petra Ingibjörg Eiríksdóttir og Páll Arnar Jónsson.
Carmen er vinstra megin og Anastasía hægra megin á myndinni.
Í eldhúsinu
Signý skorar á Kristínu Eyjólfsdóttur að deila með okkur næstu uppskrift í Mosfellingi
Sesamhjúpaður lax
- Heyrst hefur...36
Signý Guðmundsdóttir deilir
að þessu sinni með okkur
uppskrift að vinsælum
rétti hjá fjölskyldunni að
matarmiklu salati eða
sesamhjúpuðum lax með
sinnepssósu sem bæði er
hægt að nota sem forrétt
eða aðalrétt.
Hráefni:
• 800g lax
Sesamhjúpur:
• 3 egg
• 1 ½ dl mjólk
• 3 dl haframjöl
• 3 dl sesamfræ
• 1 dl hveiti
• Salt, pipar og fiskikrydd.
Aðferð:
Pískið saman egg og mjólk, saltið, piprið og
kryddið. Laxinn er skorinn í teninga og lagður
í eggjahræruna. Blandið saman haframjöli,
hveiti og sesamfræjum og veltið laxinum upp
úr blöndunni. Steikið bitana í
olíu á pönnu. Leggið bitana á
eldhúspappír og kælið.
Sinnepssósa
• 1 egg
• 1 msk dijon sinnep
• ½ dl hvítvínsedik
• ½ dl hunang
• ½ tsk salt
• 1 msk karrý
• 2 dl olífuolía
• ½ dl mangó chutney
• Hrært saman
• Salatblandan
• 1 bakki salatblanda
• 1 rauð paprika
• 1 box piccolo tómatar
• 2 lárperur
• ½ granatepli
Laxinn blandaður saman við og sósan borin
fram með og gott súrdeigsbrauð.
Verði ykkur að góðu!
Mosó, suMir
kalla það
pizzabæ!
Jæja, ég held að það sé löngu kominn
tími til þess að við tökum mikilvægt
mál fyrir.
Ég er einstaklega stolt að því að
vera uppalin í Mosfellsbæ og á erfitt
með að ímynda mér að búa annars
staðar. Þegar ég kynni mig þá hef
ég gaman að því að segjast vera úr
Mosó, aka Pizzabæ. Oftar en ekki veit
fólk ekkert hvað ég á við þegar ég
segi Pizzabær! Það finnst mér ekki
boðlegt.
Ég tilkynni hér með að Pizzabær
er komið aftur í tísku sem gælunafn
Mosfellsbæjar (það datt aldrei úr
tísku). Ég á erfitt með að trúa því að
fólk hafi ekki hlustað á Mosó lagið
með Dóra DNA, það ætti að vera
fastur liður að þegar fólk keyrir í
gegnum Mosó þá er lagið sett á. Sama
þegar þú keyrir í gegnum Borgarnes
þá setur þú væntanlega Borgarnes er
happiness með Magga Mix í tækið.
Ef þú hefur ekki búið áður í Mosó,
þá velkomin. Ef þú hefur ekki heyrt
þetta lag þá mæli ég með að þú
setjir það á þegar þú ert búinn að lesa
þennan pistil.
Nú ert þú ábyggilega að hugsa
„af hverju er Mosfellsbær kallaður
Pizzabær?“.
Jú, ég skal segja þér það.
Í den var pizzastaðurinn Pizzabær
starfandi þar sem fengust rosalegar
pizzur og víðfræga kryddbrauðið (þau
sem þekkja þetta eru ábyggilega með
vatn í munninum núna). Út af þessum
stað var Mosó kallaður Pizzabær,
auk þess hafa þó nokkrir pizzastaðir
komið við sögu í Mosó.
Heyrst hefur að fræga kryddbrauðið
fáist á Blik Bistro í dag! Ég veit ekki
með þig en ég ætla að fá mér það um
helgina …
Skilaboðin skýrt ég sendi.
ÁFRAM, ÁFRAM AFTURELDING!
embla líf
hjá Signýju
heyrSt hefur...
...að Foldabassa, Myndó og Sigurbjörg
ætli að færa sig úr Kradimommu-
bænum yfir í rýmið við Miðbæjar-
torgið sem Evíta var með.
...að grænmetismarkaðurinn í
Mosfellsdal heyri nú sögunni til.
...að bæjarstjórn sé búin að gefa
XB Leifi leyfi frá störfum vegna
skólagöngu erlendis.
...að Gylfi Þór og félagar í Val komi í
heimsókn í Mosó 17. maí og keppi
við Aftureldingu í bikarnum.
...að loft sé komið í ærslabelgina
vinsælu í Mosó.
...að Valgarð Már sé eini umsækjand-
inn um embætti skólameistara FMOS
sem verður skipað í frá 1. ágúst, til
næstu fimm ára.
...að Tóti Eggerts sé þriðji besti
grænmetiskokkur landsins.
...söngkonan mosfellska Íris Hólm
sé með íslenska söngflokknum á
Eurovision í Malmö.
...að bærinn sé búinn að kaupa
teppaflísar á íþróttahúsið til að nota
á viðburðum í húsinu.
...að Aftureldingu séð spáð efsta sæti í
Lengjudeild karla í sumar.
...að Skólahljómsveit Mosfellsbæjar
ætli að halda upp á 60 ára afmæli sitt
í Hlégarði þriðjudaginn 28. maí.
...að von sé á 1200 blökurum á öld-
ungamót í Mosfellsbæ um helgina.
...að Mosfellskirkja sé orðin ónýt
vegna myglu og rakaskemmda.
...að Eurovision-Hera sé flutt í Mosó
og búa á Brúarhóli, neðst í Teiga-
hverfinu.
...að sauðburður sé hafinn í Dalnum.
...að Ásgeir Jóns sé orðinn formaður
Aftureldingar.
...að uppselt hafi orðið á sveitaball
með Skímó og Á móti Sól sem fram
fór í Hlégarði í lok apríl.
...að Gylfi Dalmann hafi haldið upp á
60 ára afmælið sitt með því að fá sér
eina með öllu á Bæjarins bestu.
...að verkefnið „Fótbolti fyrir alla“ sem
Afturelding er að undirbúa hafi feng-
ið styrk frá hvatasjóði „Allir með“.
...að Katrín Jak forsetaframbjóðandi
bjóði Mosfellingum í göngu á
Mosfell 15. maí.
...að forsetaframbjóðandinn Arnar
Þór hafi haldið opinn fund í Hlégarði
og Halla Hrund hafi heimsótt eldri
borgara. Aðrir ekki sést enn í Mosó.
...að mosfellska hljómsveitin Kaleo
sé að fara túra með Rolling Stones í
þriðja skiptið í júní.
...að Tjaldur sé búinn að hreiðra
um sig í bönkernum á 12. braut á
Hlíðavelli.
...að einn keppandi í skákmótinu
í golfskálanum hafi hætt keppni
vegna hávaða frá golfhermum.
...að styrktarmótið Palla Open fari
fram á Hlíðavelli 8. júní.
mosfellingur@mosfellingur.is
Mosfellskórinn hélt vortónleika í Hlégarði 5. maí. Kórinn er á sínu 36. starfsári og
hafa aðeins tveir kórstjórar stjórnað kórnum, Páll Helgason og nú Vilberg Viggósson.
Á tónleikunum voru sungin hin ýmsu dægurlög við undirleik hljómsveitar.
Vortónleikar Mosfellskórsins