Mosfellingur - 24.10.2024, Page 6
- Bæjarblað í 22 ár6
Ari Eldjárn með uppi-
stand í Hlégarði
Ari Eldjárn, einn allra vinsælasti
uppistandari þjóðarinnar ætlar
að kitla hláturtaugarnar í Hlégarði
föstudags-
kvöldið 22.
nóvember
kl. 21. Ari
stendur fyrir
skemmtilegri
og tilrauna-
kenndri uppi-
standssýningu
þar sem hann
prófar nýtt
grín. Sýningin er ákveðinn upp-
taktur að hans árlega Áramótaskopi
sem slegið hefur í gegn síðustu ár.
Sýningin varir í rúma klukkustund
og má nálgast miða á Tix.is.
Það ríkti mikil gleði í Lágafellskirkju sunnudaginn 22. septem-
ber þegar innsetningarguðsþjónusta allra presta safnaðarins fór
fram.
Segja mætti að met hafi verið slegið í Mosfellsbænum þar
sem haft var á orði að mögulega væri þetta í fyrsta skipti í sögu
þjóðkirkjunnar þar sem þrír prestar eru settir inn í söfnuð í sömu
athöfninni.
Prófastur Kjalarnesprófastdæmis sr. Hans Guðberg Alfreðsson
þjónaði fyrir altari og setti þau sr. Arndísi G. Bernhardsdóttur Linn,
sr. Guðlaugu Helgu Guðlaugsdóttur og sr. Henning Emil Magnús-
son inn í störf sín og færði þeim erindisbréf.
Henning Emil hefur starfað hjá söfnuðinum frá 1. ágúst 2022 og
Arndís tók við starfi sóknarprests 1. ágúst 2023.
Guðlaug Helga bættist svo í hóp prestanna um síðustu hvíta-
sunnu þegar hún vígðist til prests í Skálholtskirkju.
Mikil gróska einkennt safnaðarstarfið
Mikill söngur einkenndi þessa fallegu guðsþjónustu þar sem allt
starfsfólk og prestar safnaðarins tóku þátt.
Andrea Gréta Axelsdóttir kirkjuvörður og meðhjálpari og Jó-
hanna Ýr Jóhannsdóttir nýráðinn framkvæmdastjóri safnaðarins
lásu ritningarlestra.
Auk prestanna lásu Bogi Benediktsson æskulýðsfulltrúi og Kristj-
án Júlíus Kristjánsson kirkjukórsfélagi bænir.
Kirkjukór Lágafellssóknar leiddi kirkjugesti í söng undir stjórn
Árna Heiðars Karlssonar organista.
„Hjá Lágafellssókn hefur starfað öflugur hópur síðustu misser-
in og mikil gróska hefur verið einkennandi fyrir safnaðarstarf og
endurnýjun í helgihaldi,“ segir Arndís Linn. „Það má því með sanni
segja að framtíð kirkjunnar sé björt í Mosfellsbænum.“
Prestarnir þrír með Prófasti
Stór dagur í Lágafellskirkju • Arndís, Henning og Guðlaug sett í embætti í sömu athöfn
Þrír prestar settir í embætti
Lágafellssókn þakkar
fyrir vel unnin störf
Lágafellssókn þakkaði á dögunum
Kristínu Davíðsdóttur fyrir vel unn-
in störf í nútíð og framtíð. Kristín
hefur lengi vel verið kirkjugörðum
Lágafellssóknar mikill liðsstyrkur.
„Hennar grænu fingur hafa m.a.
leitt gróðursetningu á fjölda birki-
trjáa til að veita gott skjól í Mosfells-
dalnum, veitt endalausa gróður-
ráðgjöf til Boga umsjónarmanns,
verið flokksstjóri ásamt Boga þegar
bærinn lánaði okkur starfsfólk eina
viku til verkefna í Covid, almennri
gróðurumhirðu og tínslu á rusli í
veðrum og vindum. Mest af þessu
hefur hún unnið í frítíma sínum,
einhent sér í verkin enda mikil hjálp
þar sem kirkjugarðarnir eru jú þrír
talsins í Mosó. Þetta lýsir eldmóð-
inum í Kristínu. Sjálfboðaliðar
eru dýrmætir.“ Myndin er tekin af
Kristínu og Boga í fallegu umhverfi
Lágafellskirkjugarðs.
Gabríel Kristinn gefur
út matreiðslubók
Mosfellingurinn Gabríel Kristinn
Bjarnason, matreiðslumaður og
landsliðskokkur, var að gefa út sína
fyrstu matreiðslubók sem ber heitið
Þetta verður veisla!. „Síðastliðin
tvö ár hef ég verið að skrifa, græja
og gera fyrir þessa skemmtilegu
matreiðslu-
bók, hönnuð
fyrir fólkið sem
elskar að bjóða
í veislu heima
en vantar nýjar
framandi hug-
myndi, allt frá
þeyttu smjöri
í aðalrétti og
deserta,“ segir
Gabríel sem er glaður og þakklátur
fyrir að sjá draum, sem hann hefur
alið með sér frá því hann byrjaði
ungur að kokka, rætast. „Bókin er
fáanleg í öllum helstu verslunum og
verður klárlega jólagjöfin í ár. Ég er
mjög spenntur að fylgja bókinni eftir
og kynna hana vel,“ segir Gabríel
en hægt er að fylgjast með honum
á samfélagsmiðlum þar sem hann
deilir góðum ráðum.
Á fundi skipulagsnefndar Mosfellsbæjar
síðastliðinn föstudag voru tekin fyrir drög
að skipulagslýsingu varðandi verkefnið
Farsældartún, áður Skálatún í Mosfellsbæ.
Til stendur að koma upp þjónustukjarna
fyrir börn og ungmenni á svæðinu í sam-
ræmi við samning frá því í júní 2023 á milli
sjálfseignarstofnunarinnar Skálatúns og
ríkisins um uppbyggingu á þjónustu fyrir
börn og ungmenni á Skálatúni.
IOGT sem rak Skálatún ánafnaði fast-
eignum og lóðum Skálatúns til nýtingar
í málefnum barna og fjölskyldna. Þá var
sjálfseignarstofnun stofnuð um fasteignir
Skálatúns og framsal lóðaréttinda til sjálfs-
eignarstofnunarinnar bundið þeirri kvöð
að framtíðaruppbygging á svæðinu verði
einungis í þágu hagsmuna barna og fjöl-
skyldna auk þess sem frekari takmarkanir
eru á framsali landsins.
Blanda af skrifstofubyggingum
og meðferðarstarfsemi
Þá var skrifað undir viljayfirlýsingu milli
mennta- og barnamálaráðuneytis og Mos-
fellsbæjar sem lýtur að því að stofnanir rík-
isins sem sinna málefnum barna, samtök
sem vinna í þágu barna og þjónustuaðilar
barna, verði staðsett að Skálatúni í nokkurs
konar miðstöð barna auk þess að byggð
yrði upp þjónusta við börn með fjölþættan
vanda.
Efnt var til nafnasamkeppni í vetur og
varð nafnið Farsældartún fyrir valinu.
Sjálfseignarstofnunin Farsældartún hef-
ur unnið að deiliskipulagi svæðisins og
voru fyrstu drögin kynnt í skipulagsnefnd
síðastliðinn föstudag. Framtíðarskipulag
svæðisins verður kynnt vel fyrir íbúum og
öðrum hagsmunaaðilum en þar er stefnt að
því að hafa blöndu af skrifstofubyggingum
og meðferðarstarfsemi.
Nýtt úrræði á Skálatúni
Barna- og fjölskyldustofa hefur óskað eft-
ir tímabundnum afnotum af einu húsanna
sem er í Skálatúni fyrir meðferðardeild fyrir
fimm börn og unglinga.
Með því að stofna sérstakt úrræði í
Skálatúni er hægt að aðgreina börn betur
sem eru í greiningu og meðferð frá þeim
börnum sem eiga við alvarlegasta vandann
að stríða en þau verða áfram á meðferðar-
deild Stuðla. Um er að ræða nýtt úrræði.
Vegna mikillar umræðu um blöndun hópa
og smitáhrif er verið að vinna að framan-
greindri aðgreiningu.
Einnig munu þau fá þjónustu meðferðar-
teymis á vegum BOFS en það eru sálfræð-
ingar sem sinna þeirra meðferð. Áætlaður
fjöldi starfsmanna er 17.
Staðan erfið á Stuðlum
Að sögn Regínu Ásvaldsdóttur bæjar-
stjóra er það mikið fagnaðarefni ef það
verður hægt að opna meðferðardeild
fljótlega fyrir börn og unglinga sem þurfa
meðferð í rólegu umhverfi. Staðan hafi
verið erfið á Stuðlum og ekki hægt að þjón-
usta nægilega vel þau börn sem geta verið í
opnu meðferðarúrræði vegna plássleysis.
„Við höfum fundið mjög mikið fyrir því
hér í Mosfellsbæ hvað það vantar meðferð-
arheimili fyrir börn og unglinga og höfum
þrýst mjög á ríkisvaldið að stíga þar inn.
Þó svo að húsnæðið sé ekki sérhannað
fyrir slíka meðferð þá getur heimilislegt
umhverfi og fallegt nærumhverfi haft góð
áhrif á líðan barnanna meðan á meðferð
stendur.“
Aðspurð segir Regína að sex einstakl-
ingar hafa verið í neyðarvistun á Stuðlum
á vegum Mosfellsbæjar í alls 16 skipti á
árunum 2023 og 2024 og fjórir þeirra verið
á meðferðardeild eða stuðningsheimili.
Koma upp þjónustukjarna fyrir börn og ungmenni • Vöntun á meðferðarheimili
Drög kynnt að skipulagslýs-
ingu varðandi Farsældartún
Mosfellingarnir Ásmundur Einar barnamála-
ráðherra, Sigrún Lóa íbúi á Skálatúni og Regína
bæjarstjóri Mosfellsbæjar í maí 2023 þegar
undirritaðir voru samningar um að bærinn tæki
alfarið við rekstri Skálatúns.
j a ko s p o r t ( N a m o e h f ) - k r ó k h á l s 5 f - 1 1 0 á r b æ r
Sími: 566 7310 - jakosport@jakosport.is - jakosport.is
sport íslandi