Mosfellingur - 24.10.2024, Qupperneq 10

Mosfellingur - 24.10.2024, Qupperneq 10
Arna Kristín ráðin til Mosfellsbæjar Arna Kristín Hilmarsdóttir hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra upplýsinga og miðlunar á umhverf- issviði Mosfellsbæjar. Arna Kristín er með B.Sc. próf í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík með áherslu á alþjóða markaðsfræði. Arna hefur yfirgripsmikla reynslu sem nýtist í starfi verkefnastjóra. Undanfarin tvö ár hefur hún starfað sem framkvæmdastjóri Stay in Vík sem rekur hótel og íbúðahótel. Þar á undan starfaði hún í sex ár sem verkefna- og viðburðastjóri hjá íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardalshöll. Þar áður starfaði hún sem rekstrarstjóri hjá Hotel Luna apartments auk sem hún var yfir fyrirtækjasviði Dohop og vöru- merkjastjóri hjá Karli K. Karlssyni. Í störfum sínum hefur hún öðast mikla reynslu af verkefnastjórnun, mótun þjónustuupplifunar og gerð og framsetningu gagna og nýtist sú reynsla afar vel í þessu starfi. Arna er Mosfellingur í húð og hár og er gift Erni Unnarssyni. Hún hefur störf hjá Mosfellsbæ 1. nóvember. - Bæjarblaðið í Mosfellsbæ10 MOSFELLINGUR kemur næst út 28. nóv mosfellingur@mosfellingur.is Sælhús á Mosfells­ heiði endurreist Ferðafélag Íslands hefur undanfarin misseri unnið að endurbyggingu á sæluhúsi austarlega á Mosfellsheiði. Það var upphaflega reist um 1890 við nýjan veg til Þingvalla sem gengur núna undir nafninu Gamli Þingvallavegurinn. Sumarið 2022 voru hleðslusteinarnir teknir ofan og raðað við hliðina á rústinni. Síðan var grafið niður á klöpp og grunnurinn fylltur af grús. Eftir það lagðist vinnan í vetrardvala en í fyrrasumar var aftur tekið til óspilltra málanna og steyptur sökkull fyrir húsið. Á þeim grunni hafa veggirnir verið endurhlaðnir á sama hátt og gert var fyrir 130 árum. Þeir Örvar og Ævar Aðalsteinssynir hafa unnið þetta verk, með þeim hafa starfað Bjarni Bjarnason fjall- kóngur og verktaki á Hraðastöðum í Mosfellsdal og Unnsteinn Elíasson hleðslumeistari frá Ferjubakka í Borgarfirði. Veggjahleðslunni lauk haustið 2023 en í sumar hefur verið unnið að frágangi og frekari smíði og þak komið á húsið, en nú á eftir að klára hurð, glugga, gólf og fleira innanhúss. J Ó L A B R U N C H H L A Ð B O R Ð F Y R I R A L L A F J Ö L S K Y L D U N A J Ó L A S V E I N A R N I R K O M A O G G E F A G J A F I R A L S K Y N N S J Ó L A F Ö N D U R F Y R I R K R A K K A O G J Ó L A S T E M N I N G 7 , 8 , 1 4 , 1 5 D E S E M B E R M I L L I 1 1 : 3 0 O G 1 6 : 0 0 K Í K T U V I Ð O G N J Ó T T U H J Á O K K U R Jólasveina Brunch BlikBistro Bókaðu borð á www.blikbistro.is Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri afhenti Listaskólanum formlega nýjan flygil að gjöf frá Mosfellsbæ á fyrstu tónleikum hausttón- leikadaga skólans sem fóru fram 15.–17. október í félagsheimilinu Hlégarði. Flygillinn er af gerðinni Yamaha S3X–PE Premium Grand og hef- ur Listaskólinn lánað Hlégarði hljóðfærið á meðan eldri flygill sem þar hefur verið, 50 ára gamall Bösendorfer konsertflygill, verður tekinn í gegn og lagfærður. Reiknað er með að sú framkvæmd muni taka 1-3 ár. Flaggskip Yamaha frá Japan Um svokallaðan S3 seríu flygil er að ræða og er hann framleidd- ur af handverksmönnum Yamaha í Kakegawa í Japan. Sú sería var þróuð út frá Yamaha CFX konsertflyglinum sem er flaggskip Yamaha og eitt af fremstu tónleikahússhljóðfærum í heiminum. Þessi tenging gefur flyglinum hljóm sem nálgast gæði konsertflygils og setur flygilinn því skör hærra en flesta aðrir flygla af sambæri- legri stærð. S3 flyglar eru þekktir fyrir djúpan ríkulegan hljóm og jafnvægi milli bjartari og mýkri tóna. Hljómborðið er lofað fyrir góða ásláttarnæmni og gerir píanóleikurum kleift að tjá sig með meiri nákvæmni í túlkun og tónstyrk. Byggingarefni flygilsins er hágæða evrópskt greni, hannað til að standast álag og halda lögun og gefur hljómbotninum sérstaka eiginleika þegar kemur að tónend- urkasti. Á myndinni eru Helga Þórdís Guðmundsdóttir og Regína Ás- valdsdóttir bæjarstjóri. Nýr flygill í Hlégarði • Gjöf frá Mosfellsbæ • Gamli flygillinn þarfnast viðgerðar Lista­skól­a­n­um færð­ur n­ýr flygil­l­ Helga þórdís og regína við flygilinn

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.