Mosfellingur - 24.10.2024, Síða 11

Mosfellingur - 24.10.2024, Síða 11
Bókasafn Mosfellsbæjar Svakalega sögusmiðjan Hrekkjavökusögur fimmtudaginn 24. október kl. 13–15. Í sögusmiðjunni búum við til skemmtilegar og hrikalegar hrekkjavökupersónur, skrifum spennandi og hrollvekjandi sögur, ásamt því að teikna hryllilegar hrekkjavökumyndir. Aldursviðmið: 9–12 ára. Skráning á sumar.vala.is Krakka Macramé Regnbogar og lauf föstudaginn 25. október kl. 10–12. Í smiðjunni lærum við að gera lauf og regnboga með macramé- hnýtingaraðferðinni. Smiðjan er fullbókuð en tekið er við skráningum á biðlista á sumar. vala.is Hrekkjavökugetraun 24.–30. október á opnunartíma safnsins. Getur þú giskað á hve mikið af ormum og leðurblökum Hexía de Trix notar í nornaseiðinn sinn? Sá þátttakandi sem giskar á rétt magn getur unnið hrekkjavökubók, andlitsmálningu og innihald pokanna! Í kjölfar bangsasögustundar í Bókasafni Mosfellsbæjar sem haldin var miðvikudaginn 23. október er börnum boðið að lita bangsamyndir, leysa bangsaþrautir og leita að bangsanum Fergus í safninu. Þátttökuverðlaun í boði. Bangsaleitin og -þrautir verða í boði út mánudaginn 28. október. Lágafellslaug Mosfellsbær hvetur til samveru fjölskyld- unnar í vetrarfríi og býður fullorðnum sem koma í fylgd barna frítt í sund fimmtudaginn 24. október kl. 14–17. Tilvalið er fyrir börn og fjölskyldur að fara í sund og grípa í nýju borðleikina í laugunum að lokinni góðri hreyfingu og spila sígild spil eins og lúdó, skák, slönguspil eða myllu. Boðið verður upp á wipeout-braut í Lágafellslaug fimmtudaginn 24. og föstudaginn 25. október kl. 10–13 báða dagana. Föstudaginn 25. október kl. 21–22 verður haldið sundlaugapartý fyrir unglinga í Mosfellsbæ í Lágafellslaug í samvinnu við Bólið. Sprite Zero Klan sjá um tónlistina. Ratleikur fyrir börn á öllum aldri í Álafosskvos Skemmtilegur ratleikur liggur úr Álafosskvos og um Reykjalundarskóg og hentar fyrir alla aldurshópa. Býður upp á þraut og útiveru í fallegu umhverfi. Þá eru fellin í Mosó galopin alla daga og hentug í bæði styttri og lengri ævintýragönguferðir. Golfklúbbur Mosfellsbæjar Boðið verður upp á kynningartíma fyrir börn í vetrarfríi kl. 12–14 fimmtudaginn 24. og föstudaginn 25. október. Allur búnaður á staðnum. Golfkennararnir Dagur og Andri taka vel á móti gestum. Hestafjör með hestamennt Á félagssvæði Harðar við reiðhöllina kl. 13–14 föstudaginn 25. október verður teymt undir börnum. Við hlökkum til að sjá ykkur í vetrarfríinu! Menning, íþróttir og lýðheilsa Vetrarfrí í Mosfellsbæ Mosfellsbær Þverholti 2 525-6700 www.mos.is Í vetrarfríinu verður að venju ýmislegt um að vera í bókasafninu, íþróttamiðstöðvum og hjá íþróttafélögum.

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.