Mosfellingur - 24.10.2024, Blaðsíða 18

Mosfellingur - 24.10.2024, Blaðsíða 18
 - Fréttir úr bæjarlífinu18 Stefnir og Álafosskórinn bjóða til tónleika 2. nóvember Endurvekja Sönginn í Mosó í Hlégarði stefnir í hlégarði á árum áður Þann 15. október stóð bókasafn Mos- fellsbæjar fyrir skemmtilegum viðburði í tengslum við 25 ára afmæli Hins íslenska glæpafélags. Yfirskrift viðburðarins var „Er eitthvað að frétta af íslenskum glæpasögum?“ Þar leiddi Kartín Jakobsdóttir skemmti- legt spjall við Ragnar Jónasson og Yrsu Sigurðardóttir þar sem rætt var um bækur þeirra og stöður glæpasagna á Íslandi. Á myndinni eru Auður Halldórsdóttir, Ævar Örn Jósepsson, Yrsa Sigurðardóttir, Karín Jakobsdóttir og Ragnar Jónasson að loknu vel heppnuðu kvöldi. Skipulags- auglýsingar Mosfellsbær auglýsir eftirfarandi tillögur samkvæmt 40. og 41. gr. og skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nýtt deiliskipulag fyrir Lynghólsveg 24, L125324, frístundalóð F-523 Tillagan felur í sér uppskiptingu lands og stofnun einnar nýrrar lóðar. Nýtt deiliskipulag fyrir Grenndarstöð við Dælustöðvarveg Tillagan felur í sér að koma fyrir grenndarstöð með 6 gámum við Dælustöðvarveg. Deiliskipulagsbreyting fyrir Grenndarstöð við Skálahlíð Breytingin felur í sér að komið verði fyrirgrenndarstöð með 4 gámum með aðkomu frá Skálahlíð. Deiliskipulagsbreyting fyrir Grenndarstöð við Sunnukrika Breytingin felur í sér að komið verði fyrir grenndarstöð með 4 gámum með aðkomu frá Sunnukrika. Hægt er að kynna sér tillögurnar á vef Skipulagsstofnunnar, skipulagsgatt.is og á vef Mosfellsbæjar, mos.is/skipulagsauglysingar Umsagnarfrestur er til og með 8. desember 2024 og umsagnir skulu berast með rafrænum hætti í gegnum skipulagsgáttina. Mosfellsbær Mosfellsbær kynnir Þverholti 2 525-6700 www.mos.is Karlakórinn Stefnir hóf vetrarstarfið um miðjan september og eru í honum 40 starf- andi félagar og nokkur nýliðun hefur verið eftir Covid-faraldurinn. Stjórnandi er Keith Reed sem upprunn- inn er í hinni stóru Ameríku en hefur starfað á Íslandi um allmörg ár, kvæntur íslenskri konu og á uppkomin börn. Meðal þeirra er sonur sem líka er söngfugl og fengu gestir á vortónleikum sl. vor að kynnast honum þar sem hann reyndi, ásamt fleirum, að fylla skarð Gretu Salóme sem forfallaðist. Án efa verður reynt aftur að efna til samstarfs við Gretu við gott tækifæri í náinni framtíð. Gamalgróinn kór stofnaður 1980 Stefnir æfir í Harðarbóli, félagsheimili hestamannafélagsins Harðar, á þriðjudags- kvöldum kl. 19 en að auki eru tveir langir æfingalaugardagar yfir veturinn. „Við höfum verið eindregnir í því að halda þessum gamla kór á lífi í gegnum áskoranir síðustu ára og flestir sammála um mikilvægi þess að halda í það fjölbreytta samfélag karlakóra sem verið hefur við lýði hérlendis undanfarna áratugi. Nýir félagar eru ávallt velkomnir. Nú fer að líða að fyrstu uppákomu Stefnis á þessu starfsári, en þar erum við að end- urvekja það sem við kölluðum „Sönginn í Mosó“ og verður hann í Hlégarði laug- ardaginn 2. nóvember kl. 16:00. Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum en í boði verða léttar veitingar í hléi. Við höfum jafn- an fengið til okkar góða gesti á þennan við- burð og að þessu sinni ætlar Álafosskórinn að heiðra okkur með nærveru sinni. Það þekkja margir þennan gamalgróna kór sem stofnaður var árið 1980 af starfs- mönnum ullarvinnslunnar að Álafossi en stjórnandi hans í dag er Örlygur Atli Guð- mundsson. Þarnæsti viðburður verður á þorranum, en nú um nokkurt skeið höfum við dregið okkur út úr jólatónleikaösinni og haldið í staðinn upp á þorrann með þjóð- legum hætti.“ Er eitthvað nýtt að frétta af íslenskum glæpasögum? Spennandi glæpa- spjall á bókasafninu

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.