Mosfellingur - 24.10.2024, Síða 18
- Fréttir úr bæjarlífinu18
Stefnir og Álafosskórinn bjóða til tónleika 2. nóvember
Endurvekja Sönginn
í Mosó í Hlégarði
stefnir í hlégarði á árum áður
Þann 15. október stóð bókasafn Mos-
fellsbæjar fyrir skemmtilegum viðburði í
tengslum við 25 ára afmæli Hins íslenska
glæpafélags.
Yfirskrift viðburðarins var „Er eitthvað að
frétta af íslenskum glæpasögum?“
Þar leiddi Kartín Jakobsdóttir skemmti-
legt spjall við Ragnar Jónasson og Yrsu
Sigurðardóttir þar sem rætt var um bækur
þeirra og stöður glæpasagna á Íslandi.
Á myndinni eru Auður Halldórsdóttir,
Ævar Örn Jósepsson, Yrsa Sigurðardóttir,
Karín Jakobsdóttir og Ragnar Jónasson að
loknu vel heppnuðu kvöldi.
Skipulags-
auglýsingar
Mosfellsbær auglýsir eftirfarandi tillögur samkvæmt 40.
og 41. gr. og skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Nýtt deiliskipulag fyrir Lynghólsveg 24, L125324,
frístundalóð F-523
Tillagan felur í sér uppskiptingu lands og stofnun einnar nýrrar
lóðar.
Nýtt deiliskipulag fyrir Grenndarstöð við Dælustöðvarveg
Tillagan felur í sér að koma fyrir grenndarstöð
með 6 gámum við Dælustöðvarveg.
Deiliskipulagsbreyting fyrir Grenndarstöð við Skálahlíð
Breytingin felur í sér að komið verði fyrirgrenndarstöð
með 4 gámum með aðkomu frá Skálahlíð.
Deiliskipulagsbreyting fyrir Grenndarstöð við Sunnukrika
Breytingin felur í sér að komið verði fyrir grenndarstöð
með 4 gámum með aðkomu frá Sunnukrika.
Hægt er að kynna sér tillögurnar á vef Skipulagsstofnunnar,
skipulagsgatt.is og á vef Mosfellsbæjar,
mos.is/skipulagsauglysingar
Umsagnarfrestur er til og með 8. desember 2024
og umsagnir skulu berast með rafrænum hætti í
gegnum skipulagsgáttina.
Mosfellsbær
Mosfellsbær kynnir
Þverholti 2 525-6700 www.mos.is
Karlakórinn Stefnir hóf vetrarstarfið um
miðjan september og eru í honum 40 starf-
andi félagar og nokkur nýliðun hefur verið
eftir Covid-faraldurinn.
Stjórnandi er Keith Reed sem upprunn-
inn er í hinni stóru Ameríku en hefur starfað
á Íslandi um allmörg ár, kvæntur íslenskri
konu og á uppkomin börn. Meðal þeirra er
sonur sem líka er söngfugl og fengu gestir á
vortónleikum sl. vor að kynnast honum þar
sem hann reyndi, ásamt fleirum, að fylla
skarð Gretu Salóme sem forfallaðist. Án efa
verður reynt aftur að efna til samstarfs við
Gretu við gott tækifæri í náinni framtíð.
Gamalgróinn kór stofnaður 1980
Stefnir æfir í Harðarbóli, félagsheimili
hestamannafélagsins Harðar, á þriðjudags-
kvöldum kl. 19 en að auki eru tveir langir
æfingalaugardagar yfir veturinn.
„Við höfum verið eindregnir í því að
halda þessum gamla kór á lífi í gegnum
áskoranir síðustu ára og flestir sammála um
mikilvægi þess að halda í það fjölbreytta
samfélag karlakóra sem verið hefur við lýði
hérlendis undanfarna áratugi. Nýir félagar
eru ávallt velkomnir.
Nú fer að líða að fyrstu uppákomu Stefnis
á þessu starfsári, en þar erum við að end-
urvekja það sem við kölluðum „Sönginn
í Mosó“ og verður hann í Hlégarði laug-
ardaginn 2. nóvember kl. 16:00. Enginn
aðgangseyrir er að tónleikunum en í boði
verða léttar veitingar í hléi. Við höfum jafn-
an fengið til okkar góða gesti á þennan við-
burð og að þessu sinni ætlar Álafosskórinn
að heiðra okkur með nærveru sinni.
Það þekkja margir þennan gamalgróna
kór sem stofnaður var árið 1980 af starfs-
mönnum ullarvinnslunnar að Álafossi en
stjórnandi hans í dag er Örlygur Atli Guð-
mundsson. Þarnæsti viðburður verður á
þorranum, en nú um nokkurt skeið höfum
við dregið okkur út úr jólatónleikaösinni og
haldið í staðinn upp á þorrann með þjóð-
legum hætti.“
Er eitthvað nýtt að frétta af íslenskum glæpasögum?
Spennandi glæpa-
spjall á bókasafninu