Mosfellingur - 24.10.2024, Page 20
Sérsniðin þjónusta til
byggingaraðila
A L L T . I S - A L L T @ A L L T . I S - 5 6 0 5 5 0 5
- Fréttir úr bæjarlífinu20
Helgina 18.-20. október fóru bæði fál-
kaskátar og dróttskátar í haustútilegu.
Hóparnir fóru hvor í sína áttina, fálka-
skátarnir í Lundareykjadal og dróttskát-
arnir á Úlfljótsvatn.
Allir sváfu þó í skálum og höfðu hlýtt
og notalegt í kringum sig, útilegur þurfa
nefnilega ekki að vera í tjaldi. Það er þó
alltaf sama góða stemmingin og krakk-
arnir skemmtu sér saman í alls konar
áskorunum, hópefli og gleði.
Fjölbreytt afþreying
Fálkaskátarnir bökuð pönnukök-
ur yfir eldi, göldruðu fram dýrindis
kræsingar í útieldun, böðuðu sig í
einkalaug, skemmtu sér og öðrum
með töfrabrögðum, tónlistarleik og
leikþáttum. Að sjálfsögðu voru nýir
fálkaskátar vígðir og allir reyndu fyrir
sér í ullarþæfingarlist.
Dróttskátarnir tóku meðal annars
þátt í stórmóti í kokkalistum, spiluðu
um dreka og dýflissur, vígðu nýja drótt-
skáta, nutu norðurljósanna og leystu
æsispennandi morðgátu í næturleik.
Bæði drekaskátar og rekkaskátar eru
svo að fara í sínar ferðir á næstu vikum
því skátastarfið hjá Mosverjum er fullt
af gleði og áskorunum.
Skátalíf er útilíf
Falleg haustmynd yfir nýjasta hluta Helgafellshverfis en fyrsti vetrardagur er á laugardaginn. Nýjar götur taka óðum á sig mynd, Liljugata, Lóugata, Huldugata og Úugata.
Haust í Helgafellshverfi