Mosfellingur - 24.10.2024, Qupperneq 23

Mosfellingur - 24.10.2024, Qupperneq 23
Bambaló í Bókasafninu Notaleg samveru- og tónlistarstund fyrir yngstu krílin og foreldra þeirra í umsjón Sigrúnar Harðardóttur, fiðluleikara og tónlistarkennara, í Bókasafni Mosfellsbæjar 8. nóvember kl. 10:30. 20 pláss eru í boði - Skráning fer fram með því að senda póst á netfangið bokasafn@mos.is. Mosfellsbær Þverholti 2 525-6700 www.mos.is Bókasafn Mosfellsbæjar kynnir: Sýnishornið í Bókasafninu Mosfellsbær Langar þig að leyfa list þinni að njóta sín í Bókasafni Mosfellsbæjar? www.mos.is Nú stendur listfengum Mosfellingum til boða að sýna verk sitt í Sýnishorninu í tvo mánuði í senn. Sýnishornið er lítið sýningarrými í Bókasafninu sem rúmar eina mynd og/eða verk í glerskáp. Hafið samband á netfangið bokasafn@mos.is fyrir frekari upplýsingar. Næsta blað kemur út: fimmtudagiNN 28. Nóvember Efni og auglýsingar skulu berast fyrir kl. 12, mánu- daginn 25. nóvember. mosfellingur@mosfellingur.is Um fjögur hundruð nemendur í Varmár- skóla luku á dögunum hringferð sinni um Ísland, þegar gengið var sem svarar fjarlægðinni milli Víkur í Mýrdal og Mos- fellsbæjar. Megnið af hringveginum var hlaupið á einum degi þegar nemendur skólans hlupu samanlagt vel yfir eitt þúsund kílómetra vegalengd. Hlaupið var í tilefni af evrópskri íþrótta- viku en að þessu sinni var ákveðið að setja það markmið að ná að hlaupa sem nemur öllum hringveginum, Þjóðvegi 1, en það eru 1.321 kílómetri. „Það einfaldlega kviknaði sú hugmynd að við gætum sett okkur sameiginlegt markmið, ekki bara fyrir nemendur, heldur starfsmenn líka,“ segir Jóhanna Jónsdóttir íþróttakennari við Varmárskóla. Krakkarnir gáfust ekki upp „Við náðum um þúsund kílómetrum. Það er eins og við hefðum náð til Víkur í Mýr- dal, hefðum við farið norður fyrir. Þannig að það má segja að krakkarnir hafi stoppað í Vík yfir nótt, en síðan náð að ganga heim daginn eftir,“ segir Jóhanna hlæjandi, en bætir síðan við: „Krakkarnir gáfust ekki upp og við getum verið stolt af okkur.“ Nemendur og starfsfólk hlupu ákveðinn hring á skólasvæðinu, svokallaðan Hlé- garðshring, 450 metra leið. Hver hlaupari fékk punkt á handarbak fyrir hvern hring sem hlaupinn var. Svo var vegalengdin lögð saman. Glaðir og þreyttir nemendur fengu síðan frostpinna eftir langt hlaup. Um 400 nemendur í 1.-6. bekk eru í Varmárskóla. Þetta eru krakkar á aldrinum 6-11 ára. Hlégarðshlaup í lok september • Evrópsk íþróttavika 400 grunnskólanemar festust í Vík í Mýrdal Fréttir úr bæjarlífinu - 23

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.