Mosfellingur - 24.10.2024, Side 34
Heilsumolar gaua
- Aðsendar greinar34
mín ákvörðun
Ég er nú bara þannig að ég vil
vera gerandi í eigin lífi og þess
vegna er þetta ákvörðun mín,“ sagði
frambjóðandi í stjórnmálaflokki um
síðustu helgi eftir að uppstillingar-
nefnd í flokknum hennar hafði raðað
frambjóðendum á lista fyrir komandi
kosningar.
Ég er sammála henni. Við erum
gerendur í eigin lífi. Við þurfum
ekki að fara í gegnum lífið á forsend-
um annarra. Við búum vissulega í
samfélagi og höfum hlutverk, en við
þurfum ekki að fylgja hópnum í einu
og öllu. Okkur líður best og gerum
mest gagn þegar við finnum okkar
leið. Og það má skipta um kúrs. Við
þurfum ekki að halda okkur á sömu
leið út lífið. Það má breyta, það er
bara hollt og gott að prófa, meta og
breyta til.
Það skiptir ekki öllu máli hvað
öðrum finnst um þá leið sem
við veljum að fara. Aðalmálið er að
við séum sjálf sátt við leiðina okkar.
Þetta á við um hreyfingu, svefn og
mataræði alveg eins og stjórnmál.
Mín viðhorf gagnvart þessari mögn-
uðu þrenningu hafa breyst í gegnum
árin og nálgunin sömuleiðis. Mér
líður vel þegar ég hreyfi mig reglu-
lega, en langbest þegar hreyfingin er
á mínum forsendum. Ég veit núna
hvað gerir mér gott og hvað ekki. Það
kemur hugsanlega með aldrinum, en
ekki endilega.
Við þurfum að pæla í sjálfum okk-
ur hvað þetta varðar og hugsa
sjálfstætt. Er það til dæmis frábær
hugmynd að hlaupa mörg hundruð
kílómetra með rifinn liðþófa? Er góð
hugmynd að keyra sig algjörlega út
2-3 sinnum í viku í tæknilega flókn-
um styrktar- og úthaldsæfingum?
Fjölmiðlar og sjálfskipaðir áhrifa-
valdar elska öfgar og við hin, flest,
fréttir sem snúast um
öfgar og hetjusögur.
En hvar verða þessar
hetjur eftir mörg ár
af öfgum? Geta þær
hreyft sig? Æft? Leikið
við barnabörnin?
Hugsum sjálfstætt,
finnum okkar leið.
Guðjón
Svansson
gudjon@kettlebells.is
Mál málanna hjá bæjarstjórn í
september var uppfærður sam-
göngusáttmáli en markmiðið með
honum er að liðka fyrir umferð á
höfuðborgarsvæðinu og bjóða upp
á fjölbreyttari valkosti til ferða á
milli svæða.
Það er margt gott í sáttmálanum
en það eru líka margir þættir sem
eru óljósir og þarfnast umræðu.
Hvað er í þessu fyrir okkur?
Einhverjir vilja að við horfum til þess
hvað sáttmálinn færir höfuðborgarsvæðinu
í heild sinni en við getum ekki annað en
skoðað hvað þessi uppfærsla færir okkur,
íbúum í Mosfellsbæ. Stutta svarið er í raun
einfalt. Á komandi ári er lagt til að ferðir á
leið 15 verði tíðari.
En sú breyting ein og sér gerir ekki mik-
ið. Aðrar samgöngubætur fyrir okkur eru
annars vegar Borgarlína sem á, samkvæmt
uppfærslunni, að fara í keyrslu upp úr 2032.
Það er eftir átta ár.
Og hins vegar Sundabraut sem á að vera
tekin í gagnið á svipuðum tíma. En líkurnar
á að það gerist myndi ég telja harla litlar. Á
sama tíma mun ferðatími okkar lengjast ár
frá ári samhliða gríðarlegri uppbyggingu í
bæjarfélaginu, t.d. á Blikastöðum
og á Korputúni.
Af hverju segi ég nei?
Eftir að hafa kynnt mér málin
og rætt við fólk sem hefur meiri
þekkingu á þessu sviði ákvað ég
að segja nei við uppfærslunni.
Ástæðan er ekki það fjármagn sem
við leggjum til verkefnisins, heldur aðrir
þættir málsins.
Það er margt í sáttmálanum sem er óljóst,
sem dæmi má nefna gríðarlegar fjárhæðir
sem geta tengst hinum ýmsu verkefnum og
framkvæmdum, en ekki hefur verið ákveðið
hvar kostnaðarhliðin leggst.
Við, oddvitarnir í minnihlutanum,
bentum á þetta við umræðu málsins og
ekki að ástæðulausu. Í dag er staðan sú að
ríkisstjórnin er fallin og verkefnin í sáttmál-
anum eru ófrágengin af ríkisins hálfu.
Önnur ástæða fyrir því að ég var ekki
tilbúin að segja já við þessari uppfærslu
er sú að á sama tíma og uppbygging sam-
gönguinnviða fer fram, verðum við í fram-
kvæmdum á Blikastöðum sem eiga eftir að
kosta bæinn gríðarlega fjármuni.
Ég hefði viljað spyrja að því, fyrir und-
irritun, hvað ætlum við að gera ef sam-
gönguframkvæmdir sigla í strand eða
kostnaður eykst, á sama tíma og fjárfrekar
framkvæmdir eru í gangi hjá okkur. Það er
okkar ábyrgð að hugsa út í það.
Svo er það annað veigamikið atriði.
Kjörnir fulltrúar eru fulltrúar íbúa. Ég er
ekki tilbúin að koma fram sem kjörinn full-
trúi og segja við mína kjósendur að ég hafi
samþykkt sáttmála sem gefi okkur einhverj-
ar umferðarbætur eftir átta ár, hið fyrsta.
Hagsmunir bæjarfélagsins eru gríðarlegir,
góðar samgöngur til og frá bænum eru ein
forsenda þess að fólk vilji flytja í bæinn og
það er okkar hlutverk að standa vörð um
þann málstað.
Hver og einn bæjarfulltrúi kaus eftir sinni
sannfæringu. Mín sannfæring var þessi.
Ég er ekki tilbúin að samþykkja svo stórt
verkefni án þess að hafa allar staðreyndir
á pappír fyrir framan mig. Þarna vantaði
samráð og samtal, kjörnir fulltrúar fengu
vitneskju um sáttmálann tveimur dögum
fyrir undirritun. Svoleiðis vinnubrögð
finnast mér ekki góð.
Dagný Kristinsdóttir
Bæjarfulltrúi Vina Mosfellsbæjar
Uppfærsla samgöngusáttmála- nei takk
Á 50 ára afmæli knattspyrnudeild-
ar Aftureldingar tókst loks að ná
langþráðu markmiði.
Karlalið deildarinnar tryggði sér
sæti í BESTU deildinni í hreinum
úrslitaleik um sætið fyrir framan
tæplega 3.000 áhorfendur á Laug-
ardalsvelli.
Þessi árangur er enginn tilviljun. Um
árabil hefur uppbygging verið stigvaxandi,
bæði innan liðsins og ekki síður í umgjörð-
inni. Sjálfboðaliðar hafa unnið þrekvirki í
að efla allt sem snýr að umgjörð fyrir liðið
og framkvæmd leikja, án þess að ég taki
nokkuð af frábærum árangri þjálfarateym-
isins eða liðinu sjálfu.
Ekki má heldur gleyma hlut styrktaraðil-
anna í þessum árangri. Með stækkandi hóp
öflugra styrktaraðila hefur verið
hægt að auka fagmennskuna og
bæta í á ýmsum stöðum.
Nú byrjar hins vegar næsti kafli,
að halda liðinu uppi, því við erum
komin til að vera!!
Um aðstöðuna þarf ekki að fjöl-
yrða, en þar treystum við algjörlega á að
Mosfellsbær sé í liði með okkur til að það
gangi upp að fá undanþágur frá leyfiskerf-
inu á meðan varanleg aðstaða rís vonandi
sem allra fyrst.
Þjálfarar og leikmenn munu leggja enn
harðar að sér en áður, það vitum við. En
það þurfum við sjálfboðaliðar líka að
gera. Það vantar ekkert upp á að þetta
er súper gaman, það vitnar fjöldinn um,
sjálfboðaliðahópurinn telur tugi manna
og kvenna.
En lengi getur gott batnað, það er pláss
fyrir mikið fleiri og þörf á ef við ætlum að
bæta í. Þeir sem sitja heima og hugsa um að
það gæti verið gaman að ganga til liðs við
sjálfboðaliða íþróttastarfsins eru hvattir til
að láta verða af því, við tökum öllum fagn-
andi. Ekki síður ef einhverjir hafa áhuga á
að styrkja starfið, þar er heldur betur hægt
að taka við og fara vel með.
Endilega setjið ykkur í samband við okk-
ur ef þið hafið áhuga á að vera með okkur
í þessari skemmtilegu vegferð, í gegnum
netfangið: aftureldingmflkk@gmail.com
Hanna Sím.
sjálfboðaliði
Við erum komin til að vera – Viltu vera með?
www.fastmos.is
586 8080
Sími:
Viltu selja?
Hafðu
samband
Svanþór Einarsson
Löggiltur fasteignasali
Fasteignasala Mosfellsbæjar • Þverholti 2 • S. 586 8080 • www.fastmos.is