Mosfellingur - 24.10.2024, Blaðsíða 36
Sendið okkur myndir af nýjum Mos-
fellingum ásamt helstu upplýsingum á
netfangið mosfellingur@mosfellingur.is
Sóldís Sigurðardóttir kom
í heiminn 27. júlí 2024.
Hún var 3505 gr og 51 cm.
Foreldrar eru Sigurður Atli
Sigurðsson og Helga Jónsdóttir.
Í eldhúsinu
Sara skorar á Kolbrúnu G. Þorsteinsdóttur að deila með okkur næstu uppskrift í Mosfellingi
Pylsupasta fjölskyldunnar
Sara Gunnarsdóttir deilir hér með
okkur uppskrift að pylsupasta
fjölskyldunnar. „Magn innihalds-
efna er metið hverju sinni eftir því
hvað er til í ísskápnum og hve
margir verða í mat.“
Innihaldsefni:
• Pastaskrúfur
• Pylsur
• Döðlur
• Tómatar
• Brokkolí
• Paprika
• Sveppir
• Smá hvítlaukur
• Ostasósa:
• Rjómi
• Mexíkóostur
• Hvítlauksostur
• Skinkumyrja
• Smá dass af sykri
• Salt og pipar
Aðferð:
Sósan þarf að malla
svolítið því bæði
mexíkóosturinn og
hvítlauksosturinn
bráðna ansi hægt, svo
það er best að byrja
á henni. Hellið rjóma
í pott á miðlungshita,
rífið niður ostana
og setjið út í ásamt
skinkumyrju og smá
sykri. Leyfið að malla
á meðan hitt eldast, og
smakkið svo til. Gott
að salta og pipra, en
sykurinn spilar þó lykilhlutverk.
Sjóðið pasta í saltvatni. Skerið pylsur,
grænmeti og döðlur niður og smjörsteikið þar
til mjúkt.
Þegar allt er klárt, má annaðhvort blanda öllu
saman í stóra skál, eða bera fram í þrennu
lagi.
DeilD
þeirra
bestu
Komið þið sæl, kæru sveitungar, það er
komið að reglubundnu röfli héðan frá
mér.
Nú er vetur konungur að banka á
dyrnar og sveitin okkar hefur fengið
örlítinn snjó þetta haustið og svona í
tilefni þess þá er ríkisstjórnin sprungin
enda hékk hún á slíkum bláþræði að
hún þoldi ekki haustlægðirnar né þetta
snjófok sem varð á dögunum.
Þannig að bæjarstarfsmenn munu
dusta rykið af fánaborgunum og skiltinu
góða sem stendur á „kosningastaður“
síðan í forsetakosningunum því við
þurfum að velja okkur flokk til að sjá um
heimilisbókhaldið á klakanum góða.
X-? Ja, það kemur svo í ljós.
En ég ætla nú ekki bara að tuða og
nöldra vegna þess að við Mosfellingar
höfum heldur betur tilefni til að gleðjast
vegna þess að Afturelding er komin
í deild þeirra bestu í karlaboltanum
loksins, og það meira að segja á 50
ára afmæli knattspyrnudeildarinnar.
Stelpurnar voru fyrir löngu búnar að
sýna karlpeningnum hvernig átti að
gera þetta en eins og svo oft áður vorum
við gaurarnir svolítið lengi að fatta og
læra af stelpunum en það er loksins
komið í höfn. Afturelding í Bestu deild.
Það verður gaman næsta sumar að
rassskella FH-inga og Stjörnumenn á
heimavelli í deild þeirra bestu og við
verðum að sjálfsögðu að vera dugleg
að mæta á völlinn og styðja okkar fólk
næsta sumar.
En bara svona svo að því sé haldið
til haga í stækkandi bæjarfélagi að þeir
sem eru aðfluttir í sveitina okkar og
búa hér þá eru reglurnar þannig að um
leið og þið keyrið yfir bæjarmörkin í
Mosfellsbæ og ég tala nú ekki um að þið
eruð komin með aðsetur hér í síma-
skránni þá er það skylda að halda með
Aftureldingu. Mér er bara slétt sama
hvort þú fluttir hingað frá Selfossi eða
úr Vesturbænum, hingað ertu kominn
og hér gilda sérstakar reglur. Punktur.
Nú ert þú orðin Aftureldingarmaður eða
kona og þú getur þá hundskast aftur í
Hafnarfjörðinn eða út á Seltjarnarnes
eða hvaðan sem þú komst ef þú vilt ekki
hlýða þessum reglum. Þetta gildir líka
um þig Gestur :) Áfram Afturelding!
Högni Snær
hjá söru
heyrst hefur...
...að það sé kominn nýr eigandi að
Álafossbúðinni í Kvosinni sem ætli
sér stóra hluti, opna kaffihús og
bæta þjónustu til muna.
...að kennarar í Helgafells- og
Lágafellsskóla séu á leið í námsferð
til Tenerife í vetrarfríinu.
...að Olís muni opna sínu fyrstu
bílaþvottastöð undir merkinu Glans
í Langatanga í desember.
...Ari Eldjárn verði með uppistand í
Hlégarði föstudaginn 22. nóvember
þar sem hann prófar nýtt grín fyrir
Áramótaskopið sitt.
...að lokahóf fótboltans og 50 ára
afmæli deildarinnar verði fagnað í
Bankanum á föstudagskvöldið.
...að Guðbjörg og Valdi hafi haldið
sameiginlegt stórafmæli um síðustu
helgi með mikilli tónlistarveislu.
...að hátt í 200 manns séu á leið í hóp-
ferð Aftureldingar á Kaleo tónleika í
Lissabon í næstu viku.
...að Hildur Péturs eigi afmæli í dag.
...að Afturelding sé á toppi Olís-deild-
arinnar í handbolta eftir sjö fyrstu
umferðirnar.
...að Bryndís Haralds hafi haft betur
gegn Rósu Guðbjarts bæjarstjóra í
Hafnarfirði um 3. sæti Sjálfstæðis-
manna í Kraganum.
...að Mosfellingurinn og landsliðs-
kokkurinn Gabríel Kristinn sé að
gefa út matreiðslubókina Þetta
verður veisla!
...að Þorgeir Leó sé nýr yfirþjálfari
eldri flokka hjá knattspyrnudeild
Aftureldingar.
...að Eyþór Wöhler og HubbaBubba
hafi verið að gefa út Stórustu plötu
í heimi sem tröllríður nú öllu á
streymisveitum.
...að Mosfellingarnir Cecilia Rán og
Hafrún Rakel séu mættar til Austin
í Texas með íslenska knattspyrnu-
landsliðinu að keppa við bandarísku
Ólympíumeistarana í kvöld.
...að Guðbjörg Fanndal verði fimmtug
um helgina.
...að Sveinn Óskar oddviti Miðflokks-
ins í Mosó sækist eftir eftir forystu-
sæti hjá flokknum fyrir Suðvestur-
eða Suðurkjördæmi.
...að Mollý sem sló í gegn í Gaggó
með Tik Tok skinkunni sé nú rísandi
poppstjarna í Danmörku.
...að Hrossakjötsveisla 8villtra verði
haldin í Harðarbóli 2. nóvember.
...að Íris Hólm sé búin að finna ástina
í örmum tónlistarmannsins Arnars
Jónssonar.
...að Guðný Jóna sé búin að fara yfir
200 ferðir á Úlfarsfell á árinu og
stefnir á að fara 300. ferðinni í góðu
föruneyti fyrir 1. desember.
...að ruslalyktin frá Álfsnesinu plagi
íbúa Leirvogstungu sem aldrei fyrr.
...að stefnt sé að því að bókmennta-
hlaðborðið vinsæla á bókasafninu
verði haldið 28. nóvember.
mosfellingur@mosfellingur.is
- Heyrst hefur...36
Tvöfalt brúðkaupsafmæli
Föstudaginn 18. október var haldið upp á tvöfalt brúpkaupsafmæli í Helgafellshverfinu.
Birgir D. Sveinsson og Jórunn Árnadóttir áttu 65 ára brúðkaupsafmæli en þau voru
gefin saman í Innri-Njarðvíkurkirkju 18. október 1959.
Guðrún Kristjánsdóttir og Hilmar Sigurðsson voru gefin saman 10 árum síðar, eða
18. október 1969 og fór athöfn þeirra fram í Neskirkju í Reykjavík.
Þess má geta að Birgir og Hilmar eru systkinasynir.
birgir, jórunn, guðrún og Hilmar
í moSfellSbæ 18. október 2024