Kristilegt skólablað - 01.09.1963, Blaðsíða 6

Kristilegt skólablað - 01.09.1963, Blaðsíða 6
llti.VKUIKT JASOXARSO!V, kri.>>tiiilioAi Sonur særingamannsins / þorpinu Burgudeyja, skammt frá kristniboSsstöðinni í Konsó, býr særingamaðurinn Sím- gúggu. Hann kvað sjá fyrir óorðna hluti og kunna ráð til að bægja óláni frá mönnum með særingaþulum og kænsku- brögðum, sem eiga að blíðka illa andann, meinvaldinn, eða snúa á bann. Oft rekja menn Iionum raunir sínar eða ótta við það, sem framtíðin ber í skauti sínu. Fyrir ,,hæfilega“ þóknun tekur hann svo að sér að firra skjólstæðinga sína vand- ræðum með samkomulagsum- leitunum við meinvættina, eða með því að tefla annarri öflugri gegn áformum fjandmanna, er hafa magnað illan anda Jieim til höfuðs. Stundum er hann beðinn að varna því, að óhapp hendi feröa- langa með því að gefa þeini magnaðan verntlargrip, sem haldi illvættum í hæfilegri fjar- lægð eða magna seið gegn því, að slys hendi menn við ýinis störf, t. d. varna því, að nokkur falli ofan af strákofa, sem ver- ið er að reisa. Þegar erjur eru milli þorpa eða þjóðflokka, þykir ekki að- eins sjálfsagt, heldur jafnframt hrýn nauðsyn að tryggja sér að- stoð Símgúggu eða annarra hans líka. Annað væri vítavert áhyrgðarleysi, líkast því að nálg- ast alvopnaðan fjandmann vopnlaus. Þegar Símgúggu leitaði frétta liinna válegu afla eða magnaði seið gegn illum örlögum, var Gebbino, sonur hans, oft við- staddur. Hann átti að erfa emh- ættið eftir föður sinn, en var skelfingu lostinn við tilliugsun- ina eina saman. Oft liélt umhugsunin um tengslin við illu andana vöku fvrir Iionum. Feginn hefði hann viljað losna, en þetta var ekki aðeins val föður hans, heldur hafði illi andinn, sem faðir hans þjónaði, látið að því liggja, að hann kysi soninn sem hústað sinn og umboðsmann, þegar faðir lians væri allur. Honum yrði því ekki undankomu auðið. Andinn mundi leita hann uppi, livert sem hann færi. Mótþrói mundi aðeins gera illt verra. Hann ætti þá hefnd hans vísa og mundi nauðugur verða að hýsa hann og þjóna honum, ef andstaðan við vald og vilja and- ans yrði þá ekki hani hans, áð- ur en af embættistökunni yrði. Gebbino átti því vísa fram- tíð sem liandbendi liins illa anda, og hlutskipti hans lá á honum eins og mara. Þessi skuggi livíldi yfir hernsku hans allri. Honum var glaðlyndi eig- inlegt, en samt var eins og hann gæti sjaldnast verið glaður í liópi leikfélaga. Dimma djöfla- dýrkunarinnar hvíldi einnig yfir leikbræðrum hans, en þó ineð öðrum hætti. Hann átti í vænduin að verða ríkur og voldugur, en hefði samt feginn liaft lilutverkaskipti við hvern, sem vera skyldi. En ekki var til neins að óska sér slíks. Andinn léti ekki að sér hæða. Hann var seldur undir vilja hans og lieltekinn ótta. Þegar Gebbino var 10 ára, gerðust þó atburðir, sem áttu eftir að hafa mikil áhrif á líf hans. I þorpinu Dokottó, neöar í hlíðinni, liafði Barsja Germo, máttugur töframaður (einn fjögurra hinna æðstu í félagi djöflapresta í Konsó), gerzt svo djarfur að segja upp vistinni, en Iifði samt í hezta velgengi, þrátt fyrir lirakspár um skjót- an dauða. Og nú trúði hann á einhvern Jeso, sem verndaði hann gegn hefnd andans. Fregnin flaug eins og eldur í sinu um allt héraðið, og sjálf- ur hafði hann séð Barsja á Hátíðaliöld eru í vændum. Þessir mála sig með litum og sóti. Snyrtingin getur tekið margar klukkustundir. 4 KRISTXLEGT SKOLABLAÐ

x

Kristilegt skólablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.