Kristilegt skólablað - 01.09.1963, Síða 9

Kristilegt skólablað - 01.09.1963, Síða 9
VERK GUÐS ■•ÓRIUK ÓLAFER IUASOX, Monntaskólanuin í Kfykjavík Hvert, sem við lítum, verða fyrir augum okkar verk Guðs. Sólin, tunglið, stjörnurnar og jörðin með öllu, sem á henni er, allt varð þetta til fyrir hans orð. Drottinn talaði og það varð. Davíð konungur segir í Sálm. 8, 4—7: „Þá er ég horfi á himininn, verk handa þinna, tunglið og stjörnurnar, er þú hefir skapað, — hvað er þá maðurinn þess, að þú minnist hans, og mannsins barn, að þú vitjir þessP Og þó lézt þú hann lítið á vanta við Guð; méð sæmd og heiðri krýndir þú hann. Þú lézt hann ríkja yfir handaverkum þínum; allt lagðir þú að fótum hans.“ Maðurinn, svo smár sem hann er, hvernig getur hann verið kóróna sköpunarverksins? Svarið finnum við í I. Mós. 1,26—27: „Og Guð sagði: Vér viljum gjöra menn eftir vorri mynd, líka oss, og þeir skulu drottna yfir fiskum sjávarins og yfir fuglum loftsins og yfir fénaðinum og yfir villidýrunum, og yfir öll- um skriðkvikindum, sem skríða á jörðunni. Og Guð skapaði manninn eftir sinni mynd, hann skapaði hann eftir Guðs mynd; hann skapaði þau karl og konu.“ Þannig skapaði Guð mennina lika sér, til sam- félags við sig, og lét þá drottna yfir öllu, sem á jörð- unni hrærðist. „Og Drottinn Guð bauð manninum og sagði: Af öllum trjám í aldingarðinum máttu eta eftir vild; en af skilnings-trénu góðs og ills — af því máttu ekki eta; því að jafnskjótt og þú etur af því, skalt þú vissulega deyja“ (I. Mós. 2, 16—17). En maðurinn braut boð Guðs og hann át ávöxtinn af skilnings-trénu góðs og ills. Guð lét manninn þá fara burt úr aldingarðinum Eden, rak hann á burt. Sambandið milli Guðs og mannsins var rofið, af því að maðurinn syndgaði, en Guð er heilagur og þolir ekki synd. Þótt maðurinn hefði þannig brotið gegn vilja Guðs, þá elskaði Guð hann svo mikið, að hann gat ekki látið syndina þannig gera eilífan aðskilnað milli sín og mannsins og afkvæma hans. Og þegar í stað gefur Guð fyrirheiti um þann, sem sigrast muni á valdi syndarinnar, er aðskilur Guð og mennina, þann, sem sigrast muni á höggorm- inum, Satan, er tældi mennina til þess að syndga. „Og fjandskap vil ég setja milli þín og konunnar, milli þíns sæðis og hennar sæðis; það skal merja höfuð þitt, og þú skalt merja hæl þess“ (I.Mós.3,16). Þegar timinn var fullnaður, hljómaði rödd engils- ins á Bethlehemsvöllum: „Sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum; því að yður er i dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs.“ Það var frelsari mannanna, sem var fæddur. Og þetta var uppfylling fyrirheitsins um þann, sem rjúfa myndi vald syndarinnar. Ef mennirnir áttu að eignast samfélag við Guð, varð einhver að taka á sig syndir þein'a og hljóta refsingu fyrir þær i stað mannanna. Og kærleikur Guðs til mannanna var svo mikill, að hann í Jesú Kristi gerðist maður, lifði og dó að lokum á krossi og tók þannig út refs- ingu fyrir syndir mannanna. „En hann var særður vegna vorra synda og kraminn vegna vorra mis- gjörða; hegningin, sem vér höfðum til unnið, kom niður á honum, og fyrir hans benjar urðum vér heil- brigðir“ (Jes. 53, 5). í Jesú Kristi vann Drottinn okkur eilift líf. „Því að svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver, sem á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf“ (Jóh. 3, 16). Engin leið önnur er fær, því að allir menn hafa syndgað og skortir Guðs dýrð. Og Kristur segir: „Enginn kemur til föðurins, nema fyrir mig.“ Frh. á bls. 33. KRISTILEGT SKOLABLAÐ J

x

Kristilegt skólablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.