Kristilegt skólablað - 01.09.1963, Side 14

Kristilegt skólablað - 01.09.1963, Side 14
I i;nmi\ EDDA GUBnVARSDÓXTItt, MenntaNkólanuin í Keykjavík Knsturkallar Til kross þíns, kœri Jesú, ég kom og hlaut þar frið, því aldrei ég í huga hef það hœli aS skiljast við. Og hvaS sem býður heimur mér, ég hismi met og tál, en ég hrósa mér af krossi Krists, þar Guðs kærleik vann mín sál. Kall Krists hljómar til allra: „Komið til mín att- ir þér, sem erfiðið og þunga eru hlaðnir, og ég mun veita yður hvíld“ (Matt. 11,28). Hvílíkt náðarfyrirheiti, sem þér stendur til boða að þiggja. Þú, sem hefur syndgað á móti Guði, þú mátt koma til hans með allar þínar svndir og mis- gjörðir, varpa öllu á hann, sem leið þjáningardauða á krossi, svo að þú mættir öðlast fyrrigefningingu synda þinna; svo að þú mættir eignast eilíft líf; svo að þér mætti veitast friður hans. Finnst þér þú geta hafnað boði Krists, sem elskar þig svona heitt að fyrra bragði, sem er að leita þín og vill finna þig, til þess að taka þig að sér í opinn, kærleiksríkan faðm sinn, fyrirgefa þér og varðveita þig í sér að eilífu? Ætlar þú að hlýðnast kalli Krists? Ef þú svarar játandi, þá verður þú að játa syndir þínar fyrir honum og biðja hann að fyrirgefa þér. Þá mun hann fyrirgefa þér öll afbrot þín og hreinsa þig af öllu ranglæti. Og hann mun taka þig að sér 12 KRISTILEGT SKOLABLAÐ og gefa þér sinn frið, sem er sannur, varanlegur friður. En það er ekki nóg að koma bara einu sinni tdl hans, heldur verður þú að koma daglega, já oft á dag, frám fyrir auglit hans og meðtaka náð og kærleika, fyrirgefningu og blessun frá honum. Og þú, sem hlýðir kalli Krists, þér ber einnig að vera stöðugur í honum, byggja allt á honum, sem vill sjá þér fyrir öllu. Kristur hefur sagt: „Ég er ljós heimsins. Hver, sem fylgir mér, mun ekki ganga í myrkrinu, heldur hafa Ijós lífsins“ (Jóh. 8, 12). Og annars staðar: „Munuð þér komast að raun um, að ég er í föður minum og þér í mér og ég í yður“ (Jóh. 14, 20). „Og sjá, ég er með yður alla daga, allt til enda ver- aldarinnar" (Matt. 28, 20). Þú, sem nú þegar trúir, finndu fögnuð þinn í að vera í Jesú Kristi, frelsara þínum. Taktu afstöðu til Jesú Krists, annað hvort með eða á móti. Hann sagði sjálfur: „Sá, sem ekki er með mér, er á móti mér“ (Matt. 12, 30). Og þú, sem tekur afstöðu á móti Jesú Kristi, laun þín verða dauði, „því laun syndarinnar er dauði“ (Róm. 6, 23). — En þú, sem ákveður að fylgja Jesú Kristi og lifa honum, náðargjöf Guðs til þín er eilíft líf fyrir samfélagið við Jesúm Krist (Róm. 6,23). Guð hefur gefið þér þinn eigin vilja, og nú er það þitt að velja. Hvort kýstu, lífið eða dauðann?

x

Kristilegt skólablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.