Kristilegt skólablað - 01.09.1963, Síða 16

Kristilegt skólablað - 01.09.1963, Síða 16
— FJÓLA GUBLEIFSDÓTTIR, Reykjavík KIUSTÍX II. PÁLSDÓTTIII. Hafnarfirði Perla Austurlandsins Noregur er jafntignarlegur, hvort sem þar ríkir suniar eða vetur. Báðar myndirnar eru frá Hurdal Verk, sem Fjóla og Kristín segja frá í bréfinu. — Kristilegir æskulýðsskólar eru fjölmargir í Noregi. Þeir hafa liaft ómetanlegt gildi í kristni- og menningarlífi Noregs. Þar hefur margur æsku- maðurinn fundið öruggan grundvöll, sem hann gat byggt líf sitt á, og notið þeirra áhrifa, sem entust honum jafnvel ævina alla. Kæru vinir. Okkur hefur verið falið að segja lítils háttar frá dvöl okkar hér í skólanum Hurdal Verk í Romerike í Noregi. Við höfum nú verið hérna í nær- fellt fimm mánuði, þegar þetta er ritað, og hefur margt á daga okkar drifið. Ættum við því að geta sagt ykkur sitt af hverju. Skólinn Hurdal Verk stendur í dal, sem heitir Hur- dalur og er um það bil 90 km frá Osló. Skólinn er svo til í miðjum dalnum, og er umhverfið mjög fall- egt. Fjöllin eru skógi klædd. Þessi dalur hefur verið kallaður „Perla Austurlandsins“, þ.e. Austur-Noregs. Hurdal Verk var byggt árið 1775, ekki sem skóli, heldur glerverksmiðja. Á sínum tíma var þessi gler- verksmiðja ein hin stærsta í Noregi. Við verksmiðj- una vann fólk af alls kyns þjóðum og tungum. Þar voru m. a. Englendingar, Frakkar, Belgir og Þjóð- verjar. Árið 1859 var Hurdal Verk keypt af ríkri fjöl- skyldu, Tannberg að nafni. Seinna varð staðurinn ferðamannahótel. En eftir lok heimsstyrjaldarinnar síðari, árið 1945, keypti Norska lútherska kristniboðssambandið þenn- an stað og kom þar á fót lýðháskóla. Áður hafði sami skóli haft aðsetur á Fjellhaug í Osló, þar sem eru Biblíuskóli og kristniboðaskóli Kristniboðssambands- ins, en þar var orðið of þröngt fyrir alla skólana. Var æskulýðsskólinn því fluttur á Hurdal Verk. Skólinn er í tveimur byggingum. Önnur þeirra er nokkuð fornleg í útliti, og er það aðalhúsið. Það er reglulega fallegt hús og byggt i gömlum stil. Þar eru herbergi stúlknanna, eldhúsið ásamt matsalnum og hinn svokallaði „Hvíti salur“, sem er notaður til ým- issa samkomuhalda og við öll hátíðleg tækifæri. Hitt húsið er alveg nýtt af nálinni og var fyrst tekið í notkun fyrir tveimur árum. Þar eru vistar- verur piltanna og allar kennslustofurnar, sem eru mjög fullkomnar. Einnig er þar leikfimissalurinn, nýtízku skólaeldhús og vefstofa. Við ætlum til gamans að lýsa einum degi héma á skólanum. Það er morgunn. Kl. 7 hringir skólaklukkan frammi á ganginum, í minnst fimm mínútur, ekki dugir ann- að. Þá verða allir að rísa úr rekkju. Fjömtíu mínút- um síðar hringir hún aftur og þá til morgunverðar. En fyrir þann tíma eiga allir að hafa tekið til í her- bergjum sínum. Morgunhugvekja er höfð í „Hvíta salnum“ strax eftir morgunverð. Þar koma saman bæði kennarar og nemendur og hugleiða Guðs orð. Á slíkn stund stíga 14 KRISTILEGT SKOLABLAÐ

x

Kristilegt skólablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.